Morgunblaðið - 06.05.2021, Page 40

Morgunblaðið - 06.05.2021, Page 40
Þjóðleikhúsið ber nafn með rentu – næstum þriðjungur þjóðarinnar sækir sér þangað skemmtun og andlega upplyftingu á hverju ári. Jafnvel á þessum afleitu Covid- tímum hefur því tekist að gleðja gesti sína með nýju íslensku verki (Kópavogskrónika), erlendu samtímaverki (Upphaf), nýju barnaleikriti (Kafbáturinn), sígildu nútímaverki í sterkri og ögrandi uppfærslu (Nashyrningarnir), skil- að merkilegu innleggi í umræðu samtímans um andleg veikindi og ábyrgð þjóðfélagsins (Vertu Úlfur) og sett á svið uppáhaldsfjölskyldu- skemmtun Íslendinga með nýjum þrótti (Kardemommubærinn), og er þó ekki allt talið; þegar öll sund virtust bókstaflega lokuð var bara leikið á tröppunum fyrir framan húsið. Í fyrra fagnaði Þjóðleikhúsið 70 ára afmæli og er þó mun lengra síð- an hafist var handa við bygginguna. Húsið var að stórum hluta byggt fyrir röskum 90 árum í miðri heimskreppu. Það var Íslendingum til sóma að láta erfiða tíma ekki aftra sér frá því að gera að veru- leika þann draum sem Indriði Ein- arsson og Sigurður Guðmundsson höfðu fyrst kastað á milli sín fyrir hálfri annarri öld. Með sama hætti var það mikil framsýni að ljúka við byggingu Hörpu, þess frábæra tónlistarhúss sem nú fagnar tíu ára afmæli, þrátt fyrir bankahrunið 2008. Að nýju hafa stjórnvöld boðað miklar fjárfestingar í innviðum til að bregðast við þeirri efnahags- kreppu sem er fylgifiskur veirufar- aldursins mikla. Þá er gott að minna á að innviðir eru ekki bara vegir og brýr, skólar og sjúkrahús og allt hvert öðru þarfara; það eru líka til menningarlegir innviðir og á því sviði býðst núna al- veg sérstakt tækifæri sem snýr að Þjóðleik- húsinu. Um áratuga skeið hefur verið bent á nauðsyn þess að bæta aðstöðu Þjóðleikhúss- ins til sýninga á minna sviði. Í því sambandi hefur verið viðraður sá kostur að byggja við Þjóðleikhúsið, austan megin, einfalda við- byggingu, svokallaðan svartan kassa, með leiksviði fyrir um það bil 200-300 áhorfendur. Minna svið hússins hefur lengi verið í hinu gamla leikfimishúsi Jóns Þorsteins- sonar sem er einmitt það, gamalt leikfimishús. Það uppfyllir ekki kröfur sem eðlilegt er að gera til aðstöðu helstu sviðslistastofnunar þjóðarinnar. Svartur kassi sem er sambyggður leikhúsinu er næsta stóra skrefið í þróun Þjóðleikhúss- ins sem leikhúss og samverustaðar, rétt eins og bygging nýja sviðsins varð Borgarleikhúsinu mikill vegs- auki. Í anddyri og á veitingastaðn- um hittast gestir sem eru að fara að sjá ólíkar sýningar og ferðin verður meiri upplifun fyrir vikið. Eins yrði það í Þjóðleikhúsinu, þar sem góðar breytingar hafa nú verið gerðar á framhúsi sem gætu nýst gestum beggja sviða, þar myndu blanda geði nashyrningar og ræningjar, úlfar og Kópavogsbúar. Með þessari viðbyggingu fengi Þjóðleikhúsið ekki bara svið sem sæmir slíkum stað, heldur gæti það líka leyst ýmiss konar vanda annan. Íslenski dansflokkurinn, sem hefur verið á skammarlegum hrakhólum í mörg ár, gæti fengið aðstöðu í Jóns Þorsteinssonar húsinu og haft sýn- ingar ýmist þar eða í Þjóðleikhús- inu, ef um semdist, svo dæmi sé tekið. Undanfarið hafa verið mjög athyglisverðar umræður um nauð- syn þess að stofna þjóðaróperu. Yrði það gert, gæti hún átt í góðri samvinnu við Þjóðleikhúsið, komist með sýningar á Stóra sviðið vegna aukins sveigjanleika hjá leikhúsinu sjálfu, eða sýnt á nýja sviðinu og auðvitað líka í Hörpu eftir atvikum. Eðlilegt væri að skoða þann kost að þjóðarópera yrði sjálfstæð listræn eining tengd þjóðleikhúsi, eins og er víða í Evrópu. Þá myndi yf- irbygging og stoðdeildir samnýtast vel og stærstur hluti framlags til óperuflutnings geta farið til list- sköpunarinnar sjálfrar, eins og vera ber. Hús eru byggð utan um líf og viðbyggingin við Þjóðleikhúsið gæti stuðlað að farsælli lausn á ýmsum vanda íslenskra sviðslista, sé skyn- samlega á málum haldið. Þetta er sannarlega ekki ný hug- mynd og fyrir fimmtán árum vann þýskt verkfræðifyrirtæki ítarlega úttekt á slíkri viðbyggingu sem að flestu leyti er kórrétt enn þann dag í dag. Upp úr henni vann Gunnar Torfason verkfræðingur aðra góða úttekt nokkrum árum síðar. Alltaf öðru hverju síðan hafa verið haldnir líflegir fundir í ráðuneytum um nýj- ar úttektir og frumathuganir og minnisblöð og margt eyðublaðið hefur mátt lúta í gras. En nú er sá kostur að ganga til verka og leysa húsnæðismál Þjóðleikhússins, eins og mennta- og menningar- málaráðherra lagði til í grein í til- efni afmælisins (Morgunblaðið, 23. apríl 2020). Hér skal tekið undir það, nú þegar stendur til að fjár- festa í innviðum: Notum tækifærið, eflum menningarstarf okkar þegar sverfur að og ráðumst í viðbygg- ingu við Þjóðleikhúsið og eignumst um leið það leikhús sem þjóðin á skilið. Eftir Halldór Guð- mundsson »Notum tækifærið, eflum menningar- starf okkar þegar sverf- ur að og ráðumst í við- byggingu við Þjóðleikhúsið. Höfundur er rithöfundur og formaður þjóðleikhúsráðs. Eflum menningu á krepputíma – Ljúkum við byggingu Þjóðleikhússins 40 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2021 Við Íslendingar elskum að syngja. Við eigum líklegast heimsmet miðað við höfðatölu í þátttöku í kórastarfi, nema ef vera skyldi að frænd- ur okkar Færeyingar standi okkur framar enda eru þeir líka kórelskir með af- brigðum. En Færeyingar vin- ir okkar standa okkur langt að baki í fjölda óperusöngvara, þar tel ég hundrað prósent öruggt að við sláum allar þjóðir út, að sjálf- sögðu miðað við þessa frægu höfðatölu. Íslenskir söngvarar úr öllum geirum vekja hrifningu og aðdáun um allan heim. Leitun er að betri fulltrúum fyrir Ísland; vel mennt- að, menningarsinnað fólk sem hríf- ur með sér áhorfendur um allan heim með undurfögrum röddum sínum og músíkalíteti. Flest hefur þetta fólk, sama úr hvaða geira, komið við í tónlistarskólakerfinu. Úr skólanum okkar, Söngskóla Sigurðar Demetz, eru nú til að mynda fimm söngvarar fastráðnir við virt óperuhús í Evrópu, og fjöldinn allur af fyrrverandi nem- endum skólans stundar nám er- lendis. Þetta hlýtur að teljast land- kynning sem segir sex. Einn okkar allra besti mennta- málaráðherra, Gylfi Þ. Gíslason, lagði grunninn að íslenska tónlist- arskólakerfinu á sjöunda áratug síðustu aldar. Kerfið er einstakt á heimsvísu og öfundarefni kollega okkar um allan heim og við eigum að hlúa að því fremur en gera því erfiðara um vik, enda hefur það margsannað gildi sitt bæði með blómstrandi menningarlífi hér á landi og þeirri miklu jákvæðu landkynningu sem tónlistarmenn okkar hafa staðið fyrir. Síðan kerfið komst á í núverandi mynd hefur söngkennsla hérlendis blómstrað. Fjöldi barna, unglinga og fullorðinna stundar söngnám í Söngskóla Sigurðar Demetz, Söng- skólanum í Reykjavík, Listaháskól- anum og í söngdeildum ýmissa tónlistarskóla um land allt. En nú eru blikur á lofti í höf- uðborginni Reykjavík. Hér hefur nemendum í söngnámi fækkað ansi mikið frá því að samningur milli borgar og ríkis tók gildi um tón- listarkennsluna. Sá samningur fel- ur í sér að mið- og framhaldsstig í söngnámi fellur undir ríkið, og okkur reiknast til að nú séu 120 færri söngnemar við nám í borg- inni en fyrir 10 árum. Leita þarf skýringa á þessari fækkun, enda er engin vöntun á um- sóknum um skólavist, og því er minnkuð að- sókn ekki fullnægj- andi skýring á stöð- unni. Nú bregður svo við að enn einu sinni steðja fjárhagserf- iðleikar að skólanum okkar, þar sem í fyrr- nefndum samningi milli ríkis og borgar gleymdist að gera ráð fyrir eðlilegum launa- hækkunum kennara. Þessi staða, sem kemur upp ítrekað frá því að ríkið tók við efri stigum námsins, er líklegasta skýringin á fækkun nemenda þar eð skólar þurfa að bregðast við þessari stöðu með fækkun nemenda og minnkuðum stöðugildum kennara. Víða um land, þar sem tónlistar- skólarnir eru reknir af sveit- arfélögunum, hafa þau gripið inn í og bætt upp þessa skekkju, en því hefur ekki verið fyrir að fara hjá borginni hingað til. Það stefnir því í að ómögulegt verði að halda úti þessu glæsilega metnaðarfulla námi eins og við viljum hafa það og erum svo stolt af. Við skólann okkar, Söngskóla Sigurðar Demetz, starfa söngkenn- arar sem flestir hverjir eru enn starfandi söngvarar. Það er erfitt að horfa upp á að eftir þetta krefj- andi ár með tilheyrandi tekjufalli sem við höfum þurft að þola í skugga heimsfaraldurs þurfi mögu- lega líka að saxa á þær föstu tekjur sem fólk hefur haft fyrir kennslu ef grípa þarf til nið- urskurðar kennslumagns. Í kreppunni miklu tóku þáver- andi stjórnvöld þá djörfu ákvörðun að efla allt nám, enda er nám for- senda allra framfara. Mig langar til að hvetja ríki og borg til að taka höndum saman og taka aðra eins ákvörðun varðandi tónlist- arnám í borginni, menningarlífi landans og heimsins alls til gæfu. Íslenskt söngnám á ögurstundu Eftir Hallveigu Rúnarsdóttur »Höfundur hvetur ríki og borg til að taka höndum saman og standa vörð um blóm- legt söngnám hér- lendis. Hallveig Rúnarsdóttir Höfundur er söngkona, formaður FÍT – klassískrar deildar FÍH og verðandi aðstoðarskólastjóri Söngskóla Sig- urðar Demetz. hallveigrunars@gmail.com SÓLGLERAUGU frá Aspinal of London LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranesi | Sími 511 2022 | dyrabaer.is Úrval náttúrulegra bætiefna og fóðurs fyrir hunda og ketti. Nánar á dyrabaer.is HOLLUSTA OG HEILBRIGÐI FRÁ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.