Morgunblaðið - 06.05.2021, Page 44

Morgunblaðið - 06.05.2021, Page 44
44 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2021 Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Gelísprautun • Gefur náttúrulega fyllingu • Grynnkar línur og hrukkur • Sléttir húðina Gelísprautun er náttúruleg andlitslyfting án skurðaðgerðar sem framkvæmd er með náttúrulegu fjölsykrunum frá Neauvia Organic. Tímapantanir í síma 533 1320 Búumyfir 20 ára reynslu í húðmeðferðum -Þitt útlit.Okkar þekking. Öðru hvoru er þetta 45 ára gamla mál, Geirfinnsmálið, í umræðunni. Ég minnist þeirra tíma þegar Geirfinnur hvarf og allra mála- ferlanna í kjölfarið. Þrátt fyrir nokkrar efasemdir mínar, þá man ég það svo að ég hafi – eins og flestir – trúað því að dómsniðurstaðan væri sannleikanum samkvæm. Samt sýndist mér sumt í frétta- flutningi af hvarfi Geirfinns vera ótrúverðugt, m.a. hef ég alla tíð talið að svokallaður „Leirfinnur“ sé óviðkomandi hvarfi Geirfinns. Yfirheyrslutækni Nú legg ég það til að hæfir og lærðir rannsakendur verði fengn- ir til að skoða á ný einn þátt þessa máls. Ég gef mér það að allar yfirheyrslur vegna þessa máls séu geymdar á segulbands- spólum. Hér á ég ekki við yf- irheyrslur, á þess tíma ætluðum sakborningum, heldur yfir- heyrslur á allt öðru fólki, sem gæti hugsanlega leitt til þess að færa okkur nær því, hvaða maður eða menn það voru sem ollu hvarfi Geirfinns. Er það ekki lík- legt, að Geirfinnur hafi eitthvað þekkt og haft kynni af þeim sem ollu hvarfi hans? Er ekki líklegt að hann hafi – eins og kannski fyrir tilviljun – minnst á og nafn- greint þann mann, eða menn? Með þetta í huga gef ég mér að rannsóknarmenn hljóti að hafa yf- irheyrt eftirtalið fólk: Fjölskyldu Geirfinns, tengdafólk hans og alla hans nánustu ættingja. Enn frem- ur alla hans vini og kunningja, vinnufélaga og allt það fólk sem hann hafði þá umgengist síðustu árin. Hljóta ekki rannsakendur að hafa yfirheyrt allt þetta fólk aft- ur, einhverjum dögum síðar og í þriðja skiptið að mánuði liðnum, alltaf með nákvæmlega sömu spurningunum? Nú þekki ég ekki hvaða vinnutilhögun lærðir rann- sakendur viðhafa, en það er vitað að menn þurfa að hafa gott minni til að geta endurtekið síðar eitthvað sem ekki er fyllilega satt. Oft má líka heyra á radd- hreim manna þegar eitthvað er ekki full- sagt eða eitthvað er sagt ósatt. Með ofangreindum orðum er ég ekki að ætla vinum Geirfinns neitt óheiðarlegt, en ég tel hins vegar að lykillinn að þessu máli kunni að liggja í öllu því sem hann kann að hafa sagt í þeirra áheyrn og eins hvort menn hafi greint persónuleikabreytingar í fari hans áður en hann hvarf. Spurningar Geirfinnsmálið er svo marg- slungið að þar hafa kviknað margar spurningar sem ekki hafa fengist svör við. Sumar þeirra kunna að þykja fjarstæðu- kenndar, en þar skyldi ekkert úti- loka fyrir fram. Hér koma fáeinar þeirra: 1. Kemur til greina að Geirfinn- ur hafi sjálfur ákveðið hvarf sitt og undirbúið það á þann veg, að hvarfið upplýstist ekki, m.a. með villandi orðum við aðra? Ólíklegt er að honum hafi tekist að komast af landi brott og dyljast þar án þess að af honum fréttist. Hafi hann framið sjálfsmorð, þá ættu einhverjir að hafa orðið varir við persónuleikabreytingar eða und- arleg orð af hans vörum síðustu vikur og mánuði fyrir hvarf hans. Hafi hann framið sjálfsmorð, þá er nær útilokað að hann hafi átt sér vitorðsmann. 2. Mér vitanlega hefur her- stöðin á Keflavíkurflugvelli aldrei verið bendluð við hvarf Geirfinns. Sumir Keflvíkingar þekktu per- sónulega bæði erlenda og íslenska starfsmenn þar. Rannsakendur hljóta að hafa kannað það til hlít- ar, hvort Geirfinnur hafði tengsl og sambönd við fólk þar. 3. Við yfirheyrslur hljóta rann- sakendur að hafa gert ráð fyrir því að einhverjir svarendur gæfu vísvitandi röng svör til að villa um og leiða rannsóknina á villi- götur. Með aðferðum sem ég nefndi áðan, þá eiga rannsókn- armenn að átta sig á slíku. 4. Gert er ráð fyrir að Geirfinn- ur hafi horfið af mannavöldum. Þá vakna tvær spurningar. A) Ætlaði sá eða þeir sem Geirfinn hittu einungis að eiga við hann einhver samskipti, en rás atburða hafi leitt til manndráps? Eða B) Var það ásetningur að myrða hann? (Sú tilgáta hefur líka komið fram að hann hafi slasast – látist við einhver „störf“, án þess að hann eða aðrir hafi ætlast til að svo færi – en er það ekki heldur ólíklegt?) Hafi það hins vegar verið ásetningur að myrða Geirfinn, þá hafa minnst tveir menn staðið að verki. Hafi slíkt verið ásetningur, þá er líklegt að önnur hvor af tveimur ástæðum liggi þar að baki; annað er eitthvað persónu- legt og þá mjög djúpstætt og hitt er viðkomandi fjármálalegum og viðskiptalegum samskiptum. (Hann kynni líka að hafa verið látinn hverfa, af því að hann vissi of mikið um eitthvað, sem alls ekki mátti vitnast). Í áður nefnd- um yfirheyrslum kynni að leynast lykillinn að því að nálgast þetta. Enginn vafi er á að rannsak- endur hljóta að hafa skoðað í þaula allar peningafærslur sem höfðu farið í gegnum hendur Geirfinns. Á þeim árum voru handskrifaðar bankaávísanir mik- ið notaðar og ég ætla að hægt hafi verið að rekja allan feril þeirra. Nánasta fólk Geirfinns hlýtur að hafa vitað hvort hann notaði peningaseðla mikið í við- skiptum. Meira verður fjallað um mál þetta síðar. Geirfinnsmálið Eftir Gunnar Guðmundsson frá Heiðarbrún » Geirfinnsmálið er svo margslungið að þar hafa kviknað marg- ar spurningar sem ekki hafa fengist svör við. Gunnar Guðmundsson Höfundur er fræðimaður og m.a. höfundur bókarinnar „Leitin að Njáluhöfundi“. Tannsteinn er tann- sýkla, sem við köllum oft skán, sem kalkar vegna steinefna í munnvatninu. Það tekur tannstein um það bil 48 klukku- stundir að myndast, ef tannsýklan fær að liggja óáreitt á tönn- unum. Þegar tann- steinn hefur myndast finnur fólk stundum aukinn hrjúfleika tannar með tungu en í ójöfnurnar setjast bakteríur og litur úr fæðu og getur tann- steinn oft orðið ansi dökkur. Hvar er algengast að tannsteinn myndist? Þar sem útfærslu- gangar munnvatnsins eru, þar myndast tannsteinninn vanalega fyrst. Þetta er aftan við neðri góms framtennur og utan við efri góms jaxla (við kinnina). Svæð- in alveg upp við tannholdið eru einnig algengir staðir tannsteins sem og á milli tanna, sem leiða oft til tannholdsbólgu og blæðingar við burstun/tannþráðsnotkun. Undir tannholdsbrún myndast einnig tannsteinn, þó mismikið milli fólks en erfðir og meðal ann- ars reykingar eiga þarna stóran þátt. Tannsteinn undir tannholdi er töluvert meira áhyggjuefni því þarna fá bakteríurnar frið til þess að mynda ákveðinn vítahring sem getur leitt til tannholdssjúkdóma. Hvernig er best að koma í veg fyrir tannstein? Munnhirðan á gríðarstóran þátt í því hvort tannsteinn myndast eða ekki. Oftast er mælt með svokall- aðri Bass-tækni við burstun, en þá höllum við tannburstanum 45 gráð- ur upp að tönn/tannholdi, hreyfum burstann í litla hringi á hverri tönn, svo burstahárin fari helst að- eins undir tannholdið. Mikilvægt er að nota mjúkan bursta og lítinn þrýsting svo við eigum ekki á hættu að skaða tannholdið. Mikilvægt er að nota tannþráð- inn daglega, á milli allra tanna og beita honum þannig að hann „faðmi“ hvora tönn fyrir sig, sirka 1-2 mm undir tannholdið. Ef blæð- ing verður við notkun tannþráðs er það vísbending um bólgur, en fólk skal ekki hræðast þetta heldur halda samviskusamlega áfram notkun, þar sem blæðing stöðvast oftast á 1-2 vikum. (Undantekning á þessu eru óléttar konur en hjá þeim er tannholdið mjög viðkvæmt og blætt getur við minnsta áreiti. Við mælum þó áfram með tann- þræði á meðgöngu en gott er að fara varlegar með tannþráðinn ef blæðir mikið). Ef myndast hafa bil undir snertipunkti milli tanna, þ.e. upp við tannholdið, er mikilvægt að hefja notkun millitannabursta, sem koma þá oft í staðinn fyrir tann- þráðinn. Á þá skal setja tannkrem og bursta hliðarfleti tannanna með þeim daglega. Gott getur verið að fá aðstoð við val á stærð/sverleika hjá tannlækni og jafnvel hvernig best er að beita þeim. Mikilvægt er að halda sykurneyslu í al- gjöru lágmarki til þess að halda heilsu tann- holds góðri. Meiri syk- ur þýðir meiri tann- sýkla og þar með meiri tannsteinn, en einnig getur syk- urneysla ýtt undir bólgumyndanir. Enn- fremur er mikilvægt að næra sig rétt og vel til þess að fá öll næringarefni, vítamín og steinefni sem lík- aminn þarfnast til við- gerða og uppbygg- ingar, hvort sem er í munnholinu eða öðr- um hlutum líkamans. Hver er besta meðferðin? Besta meðferðin er einstaklingsbundin en meta þarf hvort tann- steinn er undir eða yf- ir tannholdsbrún, hvort tannholdsbólgur séu til stað- ar og hvort komnir séu pokar nið- ur með tönnum og þar með tann- holdssjúkdómur myndaður. Mikilvægt er að fara til tann- læknis að minnsta kosti einu sinni á ári í skoðun og tannhreinsun og ef þörf er á frekari djúphreinsun er oft sett upp plan með ein- staklingnum. Mögulega þarf að byrja á að hreinsa vel upp úr pok- um og svo tekur við viðhalds- meðferð sem getur verið tíðari heimsóknir til tannlæknis í ein- hvern tíma og kennsla í bættri munnhirðu. Tannsteinn er skafinn af tönn með þar til gerðum áhöldum og er ekki mælst til þess að fólk reyni að hreinsa hann sjálft heima. Ekki er sársaukafullt að hreinsa tann- stein nema hann liggi undir tann- holdi. Þá má grípa til þess að deyfa og djúphreinsa án þess að fólk finni til. Tannsteinn og börn Nokkuð algengt er að börn myndi tannstein eins og við full- orðna fólkið, jafnvel þau allra yngstu. Myndun tannsteins hjá börnum er hins vegar ekki áhyggjuefni heldur þvert á móti merki um sterkt og öflugt munn- vatn sem hjálpar til við end- urkölkun tannanna og viðhald sýrujafnvægis í munni. Ekki er jafn mikilvægt að hreinsa tannstein hjá ungum börn- um eins og hjá fullorðnum og er því oft beðið þar til barnið hefur náð aldri og þroska til þess að setjast í tannlæknastól og láta framkvæma hreinsun. Það getur verið ansi breytilegt milli barna hve ung þau eru tilbúin í þetta og ekkert áhyggjuefni á meðan beðið er. Ég hvet alla til þess að fara til tannlæknis að minnsta kosti einu sinni á ári og sinna daglegri munn- hirðu af ástríðu. Við fáum því mið- ur ekki nema tvö tannsett og dýr- keypt getur verið að tapa einni tönn eða fleirum, sérstaklega ef hægt er að komast hjá því. Mun- um einnig að kenna börnunum okkar mikilvægi góðrar munnhirðu svo þau fari inn í lífið með heilar og heilbrigðar tennur. Tannsteinn Eftir Írisi Þórsdóttur Íris Þórsdóttir »Ég hvet alla til þess að fara til tann- læknis að minnsta kosti einu sinni á ári og sinna dag- legri munnhirðu af ástríðu. Höfundur er tannlæknir. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.