Morgunblaðið - 06.05.2021, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 06.05.2021, Qupperneq 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2021 Allir M E Ð M B L . I S O G H A G K A U Pgrilla Frábært úrval af kjöti á grillið Kíktu við! Er ekki kjörið að grilla? Sími 557 8866 | www.kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími 8:00-16:30 Mestu skiptir að grillið sé vel heitt áður en það er notað. Ef hitinn er ekki nægur er hætt við að það sem verið er að grilla hreinlega sjóði og nái ekki þeirri áferð og bragði sem sóst er eftir. Ef til stendur að grilla við 180°C er gott að ná hit- anum fyrst í 250°C, því við það að opna grillið tapast hiti auk þess sem hráefnið er alltaf mun kaldara en grillflöturinn. Mikilvægt er að nota kjarnhita- mæli til að ná sem bestri nið- urstöðu, stingið í þykkasta hluta kjötsins án þess að snerti bein. Grillið á alltaf að vera hreint, lag af ösku og fitu gefur grillmatnum vont bragð og því skipta hreint grill og grind öllu máli og minnka líkur á íkveikju. Einfalt ráð áður en kjötið er grillað er að ná því fyrst upp í stofuhita. Þá styttist eldunartíminn og verður jafnari. Til að kjötið brúnist sem best er gott að salta það með flögusalti 5– 10 mín. fyrir eldun. Þetta er gert til þess að þurrka yfirborð kjötbit- ans og með því móti brúnast það betur og hraðar (Maillard reaction). Til að fá eftirsótt reykjarbragð á rafmagns- eða gasgrilli er hægt að setja álpappír með ögn af við- arkurli sem komið er fyrir yfir hitagjafanum, til dæmis aftast á grillfletinum. Forðist að nota mik- ið af olíu á kjötið því það getur orð- ið til þess að hún leki niður á kolin eða brennarana og kveiki eld. Ef stærri stykki með langan eldunartíma eru elduð á grilli skal raða kolunum þannig að „köld“ hlið sé öðrum megin á grillinu, beinn hiti á stærri kjötstykki leiðir til bruna. Bitann er gott að setja í álbakka til að safna safanum sem lekur af því. Forðist að vefja kjöti í álpappír ef til stendur að grilla það, því þá kemst raki ekki frá yf- irborðinu og lítil sem engin grillun á sér stað. Í flestum tilvikum festist kjöt ekki við grindina ef hún er nógu heit. Ástæðulaust er að vera hræddur við háan hita, sér- staklega þegar byrjað er að grilla, því hann hjálpar til við að fá rétta áferð á kjötið og það festist síður. Öfug grillun eða „reverse sear“ er aðferð sem verður æ vinsælli hér á landi. Þá er kjötið sett á kaldari stað grillsins og notast við lágan hita á bilinu 70°-120°C uns það hefur náð réttu kjarnhitastigi. Þá er kjötið tekið af grillinu og það hitað upp í 250°-300°C og kjötið brúnað vel á öllum hliðum. Salta þarf kjötið aftur eftir að það kem- ur af grillinu. Forðist að krydda kjöt með pipar áður en það er brúnað því pipar brennur við lág- an hita og veldur brunabragði. Best er að krydda með pipar eftir að grillun hefur átt sér stað. Mjög mikilvægt er að hvíla kjöt eftir að það kemur af grillinu til að lág- marka vökvatap. Heimild: Íslenskt lambakjöt Grillráð vikunnar Þóra Kolbrá Sigurðardóttir thora@mbl.is Grilllæri frá Hagkaup sem búið er að marinera með íslenskum kryddjurtum. Bökunarkartöflur Ferskur maís Plómur Hunang Piparostasósa BBQ-sósa: Famous Dave Texas Dip Dressing: Sýrður rjómi Fersk steinselja Hitið grillið upp í miðlungshita og setjið lærið á það. Æskilegt er að kjötið sé við stofuhita þegar það fer á grillið. Snúið lærinu reglulega (á 15-20 mínútna fresti) uns kjarnhitinn er kominn upp í 65 gráður. Penslið reglulega með BBQ-sósu. Á sama tíma skal byrja að grilla kartöflurnar en gott er að forbaka þær í ofni þar sem þær þurfa töluvert langan tíma til að verða gegneldaðar. Hreinsið maísinn og sjóðið í nokkr- ar mínútur til að hann þurfi styttri tíma á grillinu. Setjið því næst á grill- ið. Hreinsið stilkinn og skafið innan úr sveppunum. Skerið ostinn í sneið- ar og raðið inn í sveppinn. Skerið plómurnar í tvennt. Fjar- lægið steininn og hellið hunangi yfir. Hitið sósuna upp í potti. Setjið maísinn, sveppina og plóm- urnar á grillið og grillið uns tilbúið. Takið af grillinu, gott er að láta kjötið hvíla um stund áður en það er borið fram en hér er öllum matnum raðað á eitt fat og borið fram þannig. Afar einföld en algjörlega frábær máltíð. Grillað lambalæri eins og það gerist best Grillað lambalæri er hin fullkomna grillmáltíð því vel eldað lambakjöt er eins og við vitum – algjört sælgæti. Að grilla lambalæri er fremur einfalt, þá ekki síst ef heimilið býr svo vel að eiga kjarnhitamæli. Meðlætið er eins einfalt og hugsast getur. Grillkartöflurnar leika þar stórt hlutverk og ekkert verið að flækja einfaldan hlut. Með kartöflunum er svo löguð einföld sósa úr sýrðum rjóma og steinselju. Grillaður maís og síðan plómur sem búið er að skera í helminga og setja hunang yfir. Punkturinn yfir i-ið eru síðan portobello-sveppirnir sem búið er að fylla með frönskum camembert-osti. Einfalt Að grilla lambalæri í álpappír tekur um 50-60 mínútur. Best er að byrja á mjög háum hita fyrstu mínúturnar en lækka svo og leyfa því að liggja á jöfnum miðlungshita næstu 40-50 mínúturnar en þá tekur þú álpappírinn og grillar kjötið á háum, beinum hita síðustu mínúturnar til að fá grill bragðið utan á kjötið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.