Morgunblaðið - 06.05.2021, Side 48

Morgunblaðið - 06.05.2021, Side 48
48 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2021 ✝ Matthildur Ingvarsdóttir fæddist á Landspít- alanum í Reykjavík 27. mars 1948. Hún lést á heimili sínu Lóulandi 9 26. apríl 2021. Foreldrar henn- ar voru hjónin Ingvar Júlíusson, f. 5.12. 1912, d 11.3. 1992, og Halldóra Jóna Valdimarsdóttir, f. 2.7. 1913, d. 4.12. 1995. Matthildur ólst upp á Bjargi í Garði og var næstyngst systkinanna, en þau eru: Guðbjörn, f. 1935, Haf- steinn, f. 1936, Agnes, f. 1938, d. 1999, Sigurður, f. 1941, Kristjana, f. 1943, Helgi, f. 1946, d. 1946, og Ingvar Jón, f. 1952. Einnig ólst upp á Bjargi Einar Jón, sonur Matthildar, f. 1967. Fyrri maður Matthildar var Páll Lárusson (Bobby), f. 1949, þau skildu. Sonur þeirra er Ein- ar Jón, f. 14.10. 1967, maki Hildur Hauksdóttir, börn þeirra eru Una Margrét, f. 1998, og Eyþór Ingi, f. 2003. Matthildur giftist eftirlifandi eiginmanni sínum Magnúsi Þór Magnússyni, f. 15.1. 1947, hinn 15.5. 1975. Foreldrar Magnúsar voru Jónína Þórðardóttir, f. 13.8. 1902, d. 2.1. 1992, og Kristinn Magnús Kristjánsson, f. 7.8. 1904, d. 25.11. 1962. Börn Matthildar og Magn- úsar eru: 1) Elmar Þór, f. 13.3. 1973, maki Helga Andersen, gekk í Gerðaskóla. Versl- unarprófi lauk hún frá Fjöl- brautaskóla Suðurnesja árið 1977. Matta fór snemma að vinna og fór í vist á Raufarhöfn, vann á Arnarholti, og var vinnukona hjá Birgi Jóhanns tannlækni og frú. Megnið af starfsævinni starfaði hún við verslunarstörf, lengst af eða um 20 ár í hús- gagnaversluninni Duus. Á Hornafirði rak hún pylsuvagn en eftir að hún flutti aftur í Garðinn vann hún sem mót- tökuritari, bæði á Heilsugæslu- stöðinni í Garði og á HSS. Matta og Maggi ráku veitingastaðinn Flösina á Garðskaga í fimm ár. Hennar vinnuferli lauk svo við störf á Hótel Aurora. Matta starfaði fyrir knatt- spyrnufélagið Víði og Kven- félagið Gefn, þar sem hún staf- aði í ýmsum nefndum, í um 40 ár allt frá því hún flutti í Garð- inn árið 1979. Hún var einn af máttarstólpum Víðis og kom þar að öllum árshátíðum, setti upp og samdi leikþætti auk þess að semja mikið af vísum. Hún var einn af stofnendum Kvenna- klúbbs Víðis sem var stuðnings- net leikmanna Víðis. Matta var sæmd silfurmerki Víðis á 60 ára afmæli félagsins. Matta var virk á prjónakvöld- um og í félagsstarfi eldri borg- ara í Auðarstofu. Útför Matthildar fer fram frá Útskálakirkju í dag, 6. maí 2021, klukkan 13 að viðstöddum nánustu aðstandendum. Streymt verður frá útförinni á slóðinni: https://www.facebook.com/ groups/matthilduringvarsdottir Streymishlekk má einnig finna á: https://www.mbl.is/andlat börn þeirra eru Alex Breki, f. 2002, Aron Máni, f. 2004, og Kolbrún Líf, f. 2006. 2) Harpa Lind, f. 7.12. 1979, börn hennar Krist- ófer Máni, andvana fæddur 2004, og Matthildur Erna, f. 2005. Stjúpbörn Hörpu Lindar eru Aron Björn, f. 1995, Jóhann Helgi, f. 1997, Halldór Heiðar, f. 2001, og Katrín Rós, f 2004. 3) Sigmar Víðir, f. 4.9. 1982. Uppeldisdóttir Matthildar og Magnúsar er Ingibjörg Ólafs- dóttir, f. 13.8. 1960, maki Sveinn H. Zophoníasson. Börn þeirra eru: a) Eva María, f. 1986, maki Björn Magnús og börn þeirra Eyþór Ingi, Sveinn Kristinn, Hólmfríður Addý og Ragnhildur Emma. b) Heiða, f. 1987, maki Ævar Örn. Synir þeirra eru Tristan Andri og Jökull Heiðar. c) Fannar Þór, f. 1989, maki Ragna Dís. Dætur þeirra eru Regína María og Ingibjörg Erla. d) Andri Freyr, f. 1994, maki Guðrún Arndís. Sonur þeirra Ásgeir Karl. Matta og Maggi hófu búskap á Brekkubraut 9 í Keflavík 1971. Þau fluttu í Garðinn um 1979, síðan á Hornafjörð í tvö ár og aftur í Garðinn 1997 á Sunnubraut 1, en síðustu fjögur ár bjuggu þau í Lóulandi 9 í Garði. Matta ólst upp á Bjargi og Mánudagurinn 26. apríl sl. var í raun bjartur og fagur þrátt fyr- ir að sorgin hafi yfirtekið allt þann dag er móðir mín kvaddi þetta jarðneska líf. Já í raun átti maður ekki von á að mamma mundi kveðja svona snemma þótt vitað væri hvert stefndi. Við systkinin höfðum setið og spjall- að við mömmu kvöldið fyrir and- látið, slegið á létta strengi og hlegið, við áttum von á að sam- tölin yrðu fleiri, en þau verða að vera án mömmu þar til við kom- um öll saman í annarri vídd. Mamma hafði fengið sinn skerf af veikindum en hún var einungis 37 ára þegar hún greindist fyrst með krabbamein og átti það eftir að taka sig upp nokkrum sinnum á æviskeiðinu. Hún hafði verið laus við þennan óvin í langan tíma og því var það mikið áfall er veikindi gerðu vart við sig í fyrra. Það stóð ekki til að gefast upp núna frekar en áður. Þrátt fyrir mikinn vilja og bestu fáanleg lyf þá varð því miður ekki komist hjá því að játa sig sigraða. Fréttirnar tóku mjög á okkur öll enda ekki vaninn hjá mömmu að gefast upp. Mamma tók niður- stöðunni af miklu æðruleysi og eins og hún orðaði það sjálf við mig, þá fékk hún annað tækifæri þegar hún var 37 ára og hún hafði nýtt það vel. Mamma var einstök kona, dugleg og ósérhlífin hvort heldur var í vinnu eða við félagsstörfin sem voru hennar líf og yndi. Víð- isfélagið fékk svo sannarlega að njóta hennar krafta, sama hvort það var fjáröflun eða að setja upp leikþætti fyrir árshátíðir, þar var hún á heimavelli og í essinu sínu. Ég held að svarið „nei“ hafi sjaldan verið notað. Jafnvel þeg- ar hún var orðin 70 ára þá kom hún og vann á barnum á 700 manna þorrablóti sem haldið er árlega í Garðinum og ástæðan var, að það var svo gaman að geta lagt félaginu lið og vinna með unga fólkinu, já þetta þótti henni gaman. Kvenfélagið var svo hinn póst- urinn í félagslífinu, sama upp- skrift, gaman saman og leggja sig fram fyrir samfélagið sitt. Það eru ófáar veislurnar sem þær hafa komið að konurnar og erfidrykkjurnar eru óteljandi. Sjálf sagðist hún ekkert ætla að kveðja fyrr en hægt yrði að halda almennilega veislu, en Covid stoppar það í bili. Já jafnvel mamma sem var mjög ákveðin kona, og er þá vægt til orða tekið, stjórnar ekki þessum ströngu samkomuskilyrðum. Sjálfur er ég ekki alinn upp hjá mömmu, en móðuramma og –afi ólu mig upp. Eftir að pabbi og mamma skildu, þá var ég eins árs, bjuggum við mamma hjá ömmu og afa á Bjargi. Mamma fór svo að búa í Keflavík og mál þróuðust þannig að ég fékkst ekki til að flytja. Mamma sagði mér þegar ég var orðinn fullorð- inn að þetta hefðu verið erfiðir tímar fyrir sig, en mér leið vel og hún setti sig í annað sætið fyrir mig. Alltaf voru tengsl okkar mömmu góð og alltaf var Maggi mér góður, ég var alltaf þeirra sonur. Nú þegar komið er að kveðju- stund er gott að horfa til baka og láta hugann reika til þeirrar ferð- ar sem við höfum átt, hún var sátt við drenginn sinn og hans ferðalag, barnabörnin sem hún eignaðist og stolt var hún af öllu sínu fólki. Elsku mamma, ég þakka ferð- ina okkar saman, bestu þakkir fyrir allt. Þinn sonur, Einar Jón. Elsku Matta amma var ein- stök og best allra. Hún var ekki bara amma mín heldur amma allra sem ég þekkti líka. Mínar uppáhaldsminningar frá yngri árum voru þegar ég kom í heim- sókn upp á Flös með vinkonum mínum og við fengum að vera með þér á veitingastaðnum. Góð- semin og hjálpsemin einkenndi þig allt þitt líf og ég trúi því að það hafi algerlega skinið í gegn á Flösinni. Síðustu jól voru sérstök fyrir okkur tvær. Við gátum setið tím- unum saman að drekka kaffi og tala um allt og ekkert. Ég man að ég hugsaði oft hversu mikið ég kunni að meta okkar vinskap og hversu nánar við vorum alltaf. Það var sama þótt síðustu ár kæmi ég einungis heim nokkrum sinnum á ári, það var alltaf eins og við sæjum hvor aðra á hverj- um degi. Ég mun alltaf muna eft- ir síðustu jólum og varðveita þær minningar sem við bjuggum til. Matta amma var einstök og best allra. Hennar verður sárt saknað en minnst sem konu sem gladdi hjarta allra, barðist fyrir því sem hún trúði á og var mesti dugnaðarforkur sem fyrirfinnst og sá alltaf það góða í öllum. Þeg- ar ég verð stór langar mig að verða eins og amma. Þín Una Margrét. Elsku amma. Það hafa verið forréttindi að eiga þig að allt mitt líf. Þú sagðir það sem þú hugsaðir og meinaðir það sem þú sagðir, ekkert kjaft- æði. Hreinni og beinni mann- eskju hef ég ekki fyrirhitt. Alltaf varstu svo góð, svo ljúf og svo fyndin. Þú hafðir þennan hlátur sem fékk mig alltaf til að brosa. Ég er þakklát fyrir að við náðum að ferðast saman hér um árið og þær minningar sem ég eignaðist þar, þær mun ég bera í hjarta mér alla tíð. Elsku amma, góða ferð í sumarlandið og við hitt- umst aftur þegar minn tími kem- ur. Takk fyrir allt. Ég elska þig alltaf! Ég sendi mínar dýpstu sam- úðarkveðjur til fjölskyldunnar. Minningin um góða konu lifir í hjörtum okkar. Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt, hvað er, aldrei skal ég gleyma þér. (Vatnsenda-Rósa) Eva María og fjölskylda. Ég var ekki gömul þegar ég hitti þig fyrst, en þú áttir áttir í mér hvert bein strax þá. Alltaf gat ég reiknað með stuðningi ykkar Magga Þórs í öllu sem ég gerði, en líka bent á ef ég ætlaði að gera einhverja vitleysu. Þegar við Denni fluttum norð- ur spurðir þú hvort ég væri ekki í lagi að flytja í þessa snjóakistu, ég róaði þig, sagðist bara ætla að vera í 2 ár, en þau eru nú orðin 36. þetta þýddi margar ferðir ykkar Magga Þórs norður með fullt skott af tertum og mat, því það voru allskonar veislur sem þurfti að sjá um. Við Denni eig- um ykkur Magga Þór svo mikið að þakka í gegnum öll árin, takk fyrir allan stuðninginn við mig þegar ég þurfti, sem barn, ung- lingur, ung kona og til dagsins í dag, takk fyrir að gefa mér aðra fjölskyldu sem mér þykir afar vænt um og hafa tekið mér sem dóttur ykkar, takk fyrir allar gleðistundirnar og stuðninginn þegar eitthvað bjátaði á, takk fyrir allar skemmtilegu ferðirn- ar, bæði innanlands og utan- lands. Takk fyrir að vera alltaf til staðar fyrir manninn minn, börn- in mín og barnabörn. Elsku Maggi Þór, Einar Jón, Elmar Þór, Harpa Lind, Sigmar Víðir og fjölskyldur, hugur okkar er hjá ykkur. Að eiga vin er vandmeðfarið, að eiga vin er dýrmæt gjöf. Vin, sem hlustar, huggar, styður, hughreystir og gefur von. Vin sem biður bænir þínar, brosandi þér gefur ráð. Eflir þig í hversdagsleika til að drýgja nýja dáð. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Imma og fjölskylda. Ingibjörg María Ólafsdóttir. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð hjartans þakkir fyrir liðna tíð lifðu sæl á ljóssins friðarströnd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsd. frá Brautarholti) Í dag þegar ég kveð elsku Möttu okkar leitar hugurinn 60 ár til baka þegar ég kom í fyrsta sinn að Bjargi. Þá mætti mér andlit í eldhúsglugganum, ung- lingsstelpu sem náttúrlega var forvitin að sjá þessa stelpu sem Siggi bróðir var að koma með heim. Þetta var Matta. Okkur varð fljótt vel til vina sem haldist hefur öll þessi ár. Það má með sanni segja að Matta var litrík kona. Það var aldrei nein logn- molla í kringum hana sama hvert var litið. Hún var dugnaðarfork- ur til allra verka, þrátt fyrir að heilsan hafi ekki alltaf verið góð. Matta greindist fyrst með alvar- legt krabbamein fyrir rúmlega 35 árum, en hún hélt ótrauð áfram þangað til fyrir rúmu ári að allt blossaði upp aftur og nú varð ekki við neitt ráðið. Þetta hefur verið erfitt ár í alla staði, ekki hvað síst vegna aðstæðna í þjóðfélaginu. En hún kaus að vera heima og fékk að deyja heima eins og hún vildi. Bjargfjölskyldan hefur alla tíð verið samheldin og má segja að Matta hafi verið límið í fjölskyld- unni. Alltaf var gott að leita til henn- ar og það var aldrei neitt mál hjá henni, hún var boðin og búin að hjálpa öllum þegar þess þurfti. Að lokum langar mig að þakka Möttu mágkonu minni samfylgd- ina og þakka minningar sem munu lifa áfram um ókomna tíð. Elsku Maggi Þór og fjölskyld- an öll, Guð gefi ykkur styrk á erf- iðum tímum. Farðu í guðs friði. Þín mágkona, Kristín Erla Guðmunds- dóttir (Didda). Okkur systrum langar til að minnast elskulegu Möttu föður- systur okkar og yndislegrar vin- konu, með nokkrum orðum. Matta var ótrúleg kona, það eru eiginlega ekki til nógu mörg lýsingarorð sem lýsa henni nógu vel. Hún var dugleg, jákvæð, hress, brosmild, hreinskilin, stjórnsöm, þrjósk, beinskeytt og allt þar á milli. Það var gott að koma til Möttu. Við systur höfum alltaf getað leitað til hennar ef eitthvað bjátaði á hjá okkur. Hún hafði alltaf tíma til að hlusta og veita góð ráð. Þau hjónin Matta og Maggi pössuðu okkur þegar við vorum litlar og hafa alla tíð verið stór partur af okkar lífi. Matta var þannig manneskja að hún vildi allt fyrir alla gera, alltaf tilbúin að hjálpa til alveg sama hvernig stóð á hjá henni sjálfri. Lífið var ekki alltaf auð- velt hjá henni en hún greindist fyrst með krabbamein fyrir um 35 árum síðan. Seinna tók það sig upp í beini og nú síðast í lunganu. Hún var ótrúleg baráttukona og barðist fram á síðustu stundu. Hún valdi það sjálf að fara ekki á sjúkrahús, hún ætlaði að fá að deyja á Lóulandinu og þannig fór það. Hún talaði opinskátt um dauðann með mikilli yfirvegun og æðruleysi og var sjálf búin að skipuleggja jarðaförina sína. Okkur er alveg fyrirmunað að skilja hvernig henni tókst að tak- ast á við veikindi sín með slíku æðruleysi vitandi hvað framund- an var. Mikið er sárt að kveðja elsku Möttu okkar. Það var skrítið að sjá hana ekki lengur í stólnum sínum í Lóulandinu, en þar hafði hún haldið til meira og minna s.l. ár vegna veikinda sinna Matta var í okkar augum hin sanna íslenska kona: Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að sér. Hún heitast þig elskaði’ og fyrirgaf þér. Hún ætíð er skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Hún er íslenska konan, sem ól þig og þér helgaði sitt líf. Með landnemum sigldi’hún um svarrandi haf. Hún sefaði harma. Hún vakti’er hún svaf. Hún þerraði tárin. Hún þerraði blóð. Hún var íslenska konan, sem allt á að þakka vor þjóð. Hún þraukaði hallæri, hungur og fár. Hún hjúkraði’og stritaði gleðisnauð ár. Hún enn í dag fórna sér endalaust má. Hún er íslenska konan, sem gefur þér allt sem hún á. Ó, hún er brúður sem skín! Hún er barnsmóðir þín eins og björt sólarsýn! Ó! Hún er ást, hrein og tær! Hún er alvaldi kær eins og Guðsmóðir skær! Og loks þegar móðirin lögð er í mold þá lýtur þú höfði og tár falla’á fold. Þú veist, hver var skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Það var íslenska konan sem ól þig og gaf þér sitt líf. En sólin, hún sígur, og sólin, hún rís, og sjá: Þér við hlið er þín hamingjudís, sem ávallt er skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf: Það er íslenska konan, tákn trúar og vonar, sem ann þér og þér helgar sitt líf. (Ómar Ragnarsson) Elsku Matta. Hafðu þakkir fyrir allt og allt. Við systur þökkum góð ár með þér og þínum. Elsku Maggi Þór og fjölskyld- ur, Guð gefi ykkur styrk til að takast á við þessa miklu sorg og tímann sem framundan er. Jóna Sigurðardóttir og Guðlaug Sigurðardóttir (Jóna og Gullý). Þegar einhver fellur frá fyllist hjartað tómi en margur síðan mikið á í minninganna hljómi. Á meðan hjörtun mild og góð minning örmum vefur þá fær að hljóma lífsins ljóð og lag sem tilgang hefur. Ef minning geymir ást og yl hún yfir sorgum gnæfir því alltaf verða tónar til sem tíminn ekki svæfir. (Kristján Hreinsson) Látin er kær vinkona, Matta á Bjargi. Matta hefur verið mér af- ar kær allt mitt líf, í leik og ráð- leggingum. Við skautuðum á síkinu, renndum okkur á skíðasleðum, sippuðum um allan Garð, svo fínu hvítu sportsokkarnir urðu allir í slettum. Við gerðum líka smá prakkarastrik stundum, en gleymdum þeim mjög fljótt, fór- um þann sama dag að sníkja servéttur og vorum þá teknar og skammaðar. En Matta var fljót að svara fyrir okkur. Hún var ráðgjafi minn er ég eignaðist frumburðinn, hafði hún eignast sinn fjórum árum áður. Gat ég endalaust hlustað á henn- ar góðu ráð og frásagnir. Minning þín sem stjarna skær skín í huga mér svo kær. Ég sendi út í húmið hljótt hundrað kossa – góða nótt. (Íris Dungal) Blessuð sé minning þín, elsku vinkona. Guðveig Sigurðardóttir (Veiga í Brautarholti). Vorið var rétt að vakna í Garð- inum þegar Matta kvaddi á heim- ili sínu í Lóulandi. Vildi vera í faðmi fjölskyldu sinnar. Stjórn- söm og hiklaus sem fyrr. Hún náði að finna að sumarið var á næsta leiti. Við ræddum það. Hún var sátt eins og hægt er, þakklát fyrir árin sem hún átti. Við þekktum ekki annað en væri gott að vera barn í Garðinum. Ævintýri og frelsi í leik og svo fljótlega einnig í starfi. Tún og fjara, síkin með fugli og stundum rennislétt fyrir sleða og skauta. Fiskvinnsla í húsum og á fisk- Matthildur Ingvarsdóttir Sálm. 14.2 biblian.is Drottinn horfir á mennina af himnum ofan til þess að sjá hvort nokkur sé hygginn, nokkur sem leiti Guðs.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.