Morgunblaðið - 06.05.2021, Síða 50

Morgunblaðið - 06.05.2021, Síða 50
✝ Ingibjörg Þór- ey Sveinbjörns- dóttir fæddist í Stykkishólmi 28. janúar 1951. Hún lést 30. mars 2021 á heimili sínu í Reykjavík. Foreldrar henn- ar voru bæði frá Grundarfirði, Magnþóra Kristín Þórðardóttir, f. 4.4. 1932, d. 2.6. 2010, og Sveinbjörn Árnason, f. 20.8. 1926, d. 22.6. 2020. Ingibjörg var elst sex systkina. rún Inga, f. 1957, maki Ingolf J. Petersen, f. 1940, börn þeirra eru: a) Berglind, maki Guð- mundur Örn Guðmundsson, börn: Elvar Örn, Embla Rún og Eva Karen. b) Ingolf Davíð, maki Anna Dewhurst. 4) Díana Særún, f. 1961, maki Jón Þór Trausta- son, f. 1960, d. 2013, börn þeirra eru a) Linda Björk, dóttir: Ellen Katrín. b) Aron Örn, maki Sól- veig Eva Pétursdóttir, barn: Jón Þór. c) Egill þór, maki Inga María Árnadóttir, barn: Aron Trausti. 5) Kolbrún Linda, f. 1964, maki Stefán Halldórsson, f. 1962, synir þeirra eru Ívar Mika- el og Samúel. Sambýlismaður Ingibjargar var Guðmundur Bjarni Jóhanns- son, f. 1956. Ingibjörg Þórey var jarð- sungin frá Neskirkju 20. apríl 2021. Systkini hennar eru 1) Árni, f. 1953, maki Marianne Lindkvist Svein- björnsson, sonur þeirra Jonathan Sveinbjörn er lát- inn. 2) Sveindís María, f. 1954, maki Óskar Sigurbjörns- son, f. 1954, börn þeirra eru: a) Vikt- or Björn, maki Vaka Hildur Valgarðsdóttir, börn: Viktoría Tea og Alexander Adríel. b) Tinna María, börn: Mikael Úlfur og Krummi. 3) Sig- Okkur finnst það ákaflega óraunverulegt og sárt að Ingi- björg Þórey, elsku systir okk- ar, sé látin. Hún varð bráð- kvödd, enginn fyrirvari; vaknaði bara ekki einn morg- uninn. Hún var nýorðin sjötug. Nú fáum við ekki fleiri sím- hringingar frá henni á kvöldin þar sem hún var að biðja okk- ur um greiða eða vildi bara spjalla. Lífið fór ekki alltaf mjúkum höndum um Ingibjörgu. Hún varð fyrir erfiðum áföllum sem settu mark sitt á hana. Orkumikill krakki var hún, ákveðin og dálítið hvatvís. Hún var hörkudugleg til vinnu, vann m.a. við fiskverk- un og saumaskap. Nokkur sumur fór hún í sveit til Her- dísar ömmu og Árna afa vest- ur í Hellnafell við Grundar- fjörð. Ingibjörg var ávallt kát, brosmild og létt í skapi og var fljót að koma auga á hið spaugilega í tilverunni. Hún var hrókur alls fagnaðar í fjöl- skylduboðum, naut sín mjög vel á ferðalögum okkar saman og þegar Árni bróðir kom frá Sví- þjóð með gítarinn og við sátum og sungum dátt. Þá var oft glatt á hjalla og Ingibjörg söng þar manna hæst. Systkinabörn- unum fannst mjög gaman að hlusta á frænku sína segja sög- ur og hlógu með henni dátt. Hún hlustaði mikið á tónlist og hafði mikið yndi af bókalestri. Þrátt fyrir erfiða lífsleið gaf Ingibjörg ótalmargt af sér með geislandi persónuleika sínum; fallega glettna brosinu og ein- lægninni sem skein úr augun- um. Nú fer þessi fjársjóður í banka minninganna. Við systkinin kveðjum nú yndislega systur okkar með trega og sorg í hjarta en einnig með virðingu og kæru þakklæti fyrir samveruna. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Sveindís María. Ingibjörg Þórey Sveinbjörnsdóttir 50 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2021 ✝ Bertha I. Jo- hansen fædd- ist á Reyðarfirði 2. maí 1934, dóttir hjónanna Johan Thulin Johansen, f. 7.6. 1907, d. 1975, og Svövu Þorgerðar Þór- hallsdóttur, f. 29.6. 1912, d. 2003. Systkini hennar eru Rolf, f. 1933, d. 2007, Kitty, f. 1936, Hulda Gerður, f. 1938, stúlka, f. 1938, d. 1938, Þór- hallur Dan, f. 1943, d. 2013, og Thulin, f. 1946. Bertha lést 28. október 2020. Útför hennar fór fram í kyrrþey 4. nóvember 2020. Þegar við minnumst elsku- legrar systur okkar, Berthu Ingibjargar, sem hefði orðið 72 ára 2. maí 2021, rifjast upp margar góðar og skemmtilegar minningar sem við áttum á upp- vaxtarárum okkar á Reyðar- firði. Á heimili foreldra okkar var gott að alast upp þar sem ást og kærleikur var í öndvegi. Við vorum fljótt látin vinna og hjálpa til við húsverkin enda fjölskyldan stór og oft mjög gestkvæmt. Bertha var næst- elst af okkur systkinum og kom það mest í hennar hlut að gæta yngri barna á heimilinu. Eftir hefðbundna skólagöngu á Reyð- arfirði fór hún í Héraðsskólann á Eiðum og lauk þaðan lands- prófi. Síðan lá leið hennar í Samvinnuskólann í Reykjavík þaðan sem hún útskrifaðist 1951. Þetta sama ár var hún valin ein íslenskra ungmenna til að fara í norræna skógrækt- arferð til Norður-Noregs á veg- um Skógræktarfélags Íslands. Þetta var að vonum mikið æv- intýri fyrir svo unga stúlku enda minntist hún oft á þessa ferð með mikilli gleði og ánægju. Um eins árs skeið dvaldi Bertha í New York og lagði stund á bókmenntir. Frá árinu 1953 til 1964 starfaði hún sem flugfreyja hjá Flugfélagi Íslands hf., bæði innan lands og utan. Hún nefndi oft hversu erf- iðar þessar ferðir voru, langir og strangir vinnudagar við erf- iðar aðstæður og oft við frum- stæð skilyrði. Sérstaklega Grænlandsflugið. Þetta gekk þó alltaf upp að lokum og með góðu og skemmtilegu sam- starfsfólki. Eftir að fluginu lauk starfaði hún sem gjaldkeri á Hótel Sögu og síðar á Hótel Loftleiðum sem aðalgjaldkeri. Þar lauk hún sínum starfsferli. Bertha ferðaðist mikið til út- landa með vinkonum sínum, sérstaklega eftir að hún hætti að vinna. Hún drakk í sig menningu og siði þeirra landa sem hún heimsótti enda var hún góð tungumálakona. Bertha var ein af stofnendum Félags fyrr- verandi flugfreyja, Svalanna, og studdi það félag alla tíð. Bertha var ógift og barnlaus. Hún tók saman við fyrrverandi samstarfsmann sinn, Hörð Sig- urjónsson flugstjóra, f. 1921, d. 2003, eftir að hann varð ekkju- maður. Þau voru bæði mjög tónelsk og var mikið spilað á flygilinn á Háaleitisbrautinni forðum. Góðar minningar það- an. Bertha var fjölhæf kona, spilaði fallega á píanó þótt hún kynni engar nótur og söng eins og engill. Bertha var glæsileg kona með mikla útgeislun sem gaman var að tala við. Hún var vel að sér í allri þjóðfélagsumræðu og fylgdist vel með því sem var að gerast á innlendum og erlend- um vettvangi alveg til síðasta dags. Sérstakt dálæti hafði hún á bresku konungsfjölskyldunni og fylgdist vel með því fólki, las t.d. Hello-blaðið af mikilli inn- lifun. Síðustu ár hennar voru henni erfið. Hún gekk í gegnum mikil veikindi sem leiddu hana til enda þessa lífs, en þrátt fyrir þær þjáningar sem hún þurfti að þola var hún alltaf jákvæð í hugsun. Hún vildi lítið gera úr sínum veikindum og því síður vildi hún tala um þau. Þegar hún var spurð hvernig henni liði þá var svarið oftast, verra getur það verið en þetta kemur allt með hækkandi sól og brosi. Við systkinin þökkum Berthu fyrir allar fallegu og góðu stundirnar sem við áttum með henni og geymir hver um sig þær fallegu minningar og myndir sem við eigum af henni í huga okkar. Síðustu árin bjó Bertha á Dalbraut 14 þar sem hún undi hag sínum vel. Blessuð sé minning hennar. Kitty, Hulda og Thulin Johansen. Bertha I. Johansen ✝ Þorleifur Guð- mundur Jóhannesson var fæddur í Reykjavík 7. júní 1937. Hann lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu í Nes- kaupstað 18. apríl 2021. Foreldrar hans voru Jóhannes Jónsson frá Litlu- Þverá í Fljótum, f. 14.6 1911, d. 23.8. 1991, og Sig- urbjörg Þorleifsdóttir frá Hofi í Norðfirði, f. 17.12. 1912, d. 20.7. 2003. Þorleifur var næstelstur sjö barna þeirra. Sigmar, f. 27.8. 1935, d. 25.4. 2015, Þorleifur sem hér er kvaddur, 7.6. 1937, Jón Þórir, f. 12.12. 1940, Sigrún Hild- ur, f. 18.12. 1941, Anna Björk, f. 11.11. 1947, Jóhanna Kolbrún, f. 7.6. 1949, d. 15.10. 2018, Óli Sæv- ar, f. 6.12. 1951, d. 20.9. 2019. Árið 1966 kvæntist Þorleifur Þrúði Jónsdóttur frá Reykjavík, f. 9.10. 1947. Börn þeirra eru: 1) Una Berg- lind, f. 8.1. 1966. Hún giftist Víði Gunnarssyni, f. 29.11. 1962. Þau slitu samvistir. Börn þeirra eru: (1a) Lilja Rut, f. 8.2 1985, maki Einar Eysteinsson, f. 4.8. 1988. Börn þeirra eru Freyja Mjöll, f. 2.9. 2013, Baldur Logi, f. 12.8. 2016. (1b) Berglind Helga, f. 27.9. 1989, maki Andri Valsson, f. 11.5. 1984. (1c) Bergþór, f. 5.9. 1993, maki Aníta Brá Leifsdóttir, f. 20.9. 1994. 2) Arnar Þór, f. 3.4. 1967, maki Hjálmfríður Þöll Friðriksdóttir, f. 17.1. 1969, börn hennar eru Emil Aðalsteinsson, f. 23.2. 1998, Elísa Aðalsteinsdóttir, f. 23.1. 2002. Þau eru búsett í Danmörku. Börn Arnars eru: (2a) Sveinn Valur, f. 4.11. 1988. Móðir Sveins Vals, Inga Rún Harðardóttir, f. 2.2. 1969. (2b) Ellen, f. 2.6. 1997, barn hennar Adrian Miguel Ugembe, f. 20.4. 2018. (2c) Andrea Lind, f. 11.9. 1998. (2d) El- ísa Margrét, f. 3.7. 2001, móðir þeirra er Anna Kristín Axels- dóttir Sandholt, f. 2.10. 1976. (2e) Elma Rún, f. 30.12. 2009, móðir hennar er Heiða Björg Árnadótt- ir f. 3.6. 1982. Þorleifur ólst upp með for- eldrum sínum og systkinum í Reykjavík. Smálönd nefndist hverfi í útjaðri borgarinnar þar sem þau bjuggu um árabil þar til þau fluttu í Melbrekku sem stóð við Bleikargróf 7, þar var sann- kallað hjarta fjölskyldunnar og samkomustaður ættingja og vina. Móðurfjölskylda Þorleifs bjó að Hofi í Norðfirði þar sem hann hann dvaldi flest sumur frá unga aldri. Þorleifur fer til sjós nítján ára gamall og vann sem háseti á netabátum, síðutogurum og öðr- um gerðum skipa frá hinum ýmsu útgerðum. Fram að þrítugu stundaði hann sjóinn á vetrum, en kaus að vera í landi á sumrin. Síðar á lífsleiðinni tók hann þá ákvörðun að flytja austur á land. Hann bjó á Eiðum um árabil. Þegar heilsunni fór að hraka flutti hann til Egilsstaða og bjó hann þar síðustu árin. Útför fór fram frá Graf- arvogskirkju 28. apríl 2021. Elsku pabbi. Við minnumst þín með hlýju og væntumþykju og söknum þess að hafa þig hjá okkur. Við söknum samtalanna sem oft gátu orðið löng og innihald þeirra var oft allt annað en mað- ur bjóst við, því þú hafðir frá svo mörgu að segja hvort sem það var hvernig þú ætlaðir að mat- reiða kvöldmatinn í þetta skiptið eða hugmyndir um samgöngu- bætur og verndun sjávar sem voru þér ofarlega í huga, eins og öll umhverfisspjöll sem höfðu hættuleg áhrif á allt dýralíf sem þér var svo umhugað um. Þér var annt um fólkið þitt og hvernig okkur öllum vegnaði, því þér var mjög í mun að við hefðum það sem best og þú spurðir gjarnan „hvernig líður þér?“ Elskulegi faðir okkar. Við þökkum þér samfylgdina, hún var fróðleg og skemmtileg. Vonandi líður þér vel. Þú samdir þetta vísukorn handa mér dóttur þinni á erf- iðum tíma í mínu lífi. Syngdu þig frá öllum áhyggjum og þá verður allt mikið betra. Að vori spretta nýsprungin fræ og þá verður allt mikið betra. Ég elska þig, þinn pabbi. Allt sem þú kenndir mér í líf- inu hefur ávallt reynst mér best. Kveðja frá syni þínum og dótt- ur, Arnar Þór og Una Berglind. Þorleifur Jóhannesson Innst í Önundarfirði gnæfir fjallið Hestur Móðir, ég heyri þitt fót- mál þegar ég hugsa til þín vestur Þar hófst þín saga við sléttur tún og engi Þar lékstu heyrnarlaus á þína himnastrengi. Við bæinn Hest þú bjóst til tákn og myndir og myndaðir fyrstu orðin mállaus við æskulindir Við árnar Hest og Korpu liggja þínar rætur, þar sem fjallið fagra Hestur hefur á þér gætur. Ég sé hvar hestvagn stendur við hafnarmynni og föður horfa á eftir mállausri dóttur sinni. Og systkini hennar sem náðu að dafna og lifa hrópa við lofum þér Hervör að skrifa. Með vélbáti á suðurleið þú fórst með móður þinni ferð sem leið þér seint úr minni Við borgarljósin tóku tárin af söknuði að streyma en það var móðurástin sem fékk þig til að gleyma. Hervör Guðjónsdóttir ✝ Sigurbjörg Her- vör Guðjóns- dóttir fæddist 27. janúar 1931. Hún lést 2. apríl 2021. Hervör var jarð- sungin 30. apríl 2021. Þú lagðir þig fram við að skilja varalestur en óttaðist mest að móðir þín væri á förum vestur. Hún svæfði þig, en þú vaknaðir og sást hana í gegnum glugga en sárast var að sjá hana líta við og hverfa eins og skugga. Svo fréttir þú suður að systir þín væri dáin og áfram hjó hann í hópinn, maðurinn með ljáinn Og fingurtákn við auga þér fylgir sem minnisvarði er minning um systkini þín sem hvíla í Holtskirkjugarði. Ég kvaddi þig á Hrafnistu, veika á dánarbeði. Þar mættir þú himnaföður með þínu jafnaðargeði Þú hafðir gæsku og töfra sem ég í mínu hjarta geymi Fingur þínir og fögur tákn er eitthvað sem ég aldrei gleymi. Nú leitar minn hugur vestur, yfir sléttur tún og engi. Móðir, ég sé þig þar við bæinn Hest, leika á himnastrengi Þar sem nú er auðn og gamlar húsatóftir Hvílir þín minning Sigurbjörg Hervör Guðjónsdóttir. Þinn sonur, Guðjón Gísli. Okkur, sem heppin erum, hlotnast sá heiður að fá að hitta fólk á lífsleiðinni sem skilur eftir sig einstaka gleði og jákvæðni, lætur heiminn líta betur út en hann oft gerir. Sigga var slíkur engill. Einstaklega hjartahlý, gjafmild og hreinlega góð í gegn, gaf svo mörgum í kring- um sig von og trú á að það Sigríður Valsdóttir ✝ Sigríður Vals- dóttir fæddist 10. nóvember 1955. Hún lést 19. apríl 2021. Útför Sigríðar fór fram 30. apríl 2021. væri ekkert sem ekki væri hægt að yfirstíga. Ég er afskaplega þakklát fyrir þessi kynni mín af henni. Elsku Guðmundur og stórfjölskylda, mínar innilegustu samúðarkveðjur, það er sárt að sleppa, en þið vonandi finnið einhverja huggun í að vita að hún skilur eftir sig von og jákvæðni frá ótöldum einstaklingum sem hún gaf af sér til í gegnum ár- in. Erna Huld Arnard. Lilliendahl Harpa Heimisdóttir s. 842 0204 Brynja Gunnarsdóttir s. 821 2045 Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær s. 842 0204 | www.harpautfor.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.