Morgunblaðið - 06.05.2021, Síða 51

Morgunblaðið - 06.05.2021, Síða 51
MINNINGAR 51 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2021 ✝ Silke Waelti fæddist í Biel í Sviss 6. mars árið 1972. Hún lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 17. apríl 2021. Foreldrar henn- ar eru Inge Waelti, f. 1949, og Jean Waelti, f. 1948, d. 2003, en þau eign- uðust ekki fleiri börn. Eiginmaður Silke er Garðar Jónsson, f. 28. júlí 1969. Börn þeirra eru: 1) Benjamín Tumi Bergsveins- son, f. 12. apríl 2002 (faðir Berg- sveinn Ólafsson), og 2) Móey Garð- arsdóttir, f. 13. maí 2014. Útför Silke fór fram í kyrrþey 27. apríl 2021. Við kynntumst þar sem við mættum með dætur okkar í að- lögun á leikskólanum Brákar- borg. Ég tók strax eftir mæðg- unum með fallegu djúpu augun sem spjölluðu saman á þýsku. Dætrunum varð fljótt vel til vina og hið sama átti við um okkur Silke. Silke kenndi þýsku við MS og var mjög fær tungumálakona, eins og heyra mátti á íslenskunni hennar. Hún var hæglát í fasi en ákveðin, með ríka réttlætiskennd og skarpgreind. Hún lagði áherslu á kjarnann en ekki hism- ið, gæði umfram glys. Vinir henn- ar og fjölskylda fengu að njóta skemmtilegrar kímnigáfu, góð- mennsku og hugulsemi en Silke var mikil fjölskyldukona og góð mamma. Þegar ljóst var að krabbinn væri að ná yfirhöndinni tókst hún á við það af miklu æðruleysi, kaus að horfa raunsætt á stöðuna og var oft ekkert að skafa ofan af hlutunum, hristi höfuðið yfir uppástungum um að eyða ein- hverju í sjálfa sig eða tilraunum vina eða ættingja til að gefa henni eitthvað! Á sama tíma vildi hún reyna að njóta hverrar stundar. Lífið er bara núna og jafnvel þegar hún var orðin mjög veik fann hún orkuna til að skapa góðar minn- ingar með fjölskyldunni. Silke elskaði útiveru, fór oft út að ganga og var dugleg að eiga frumkvæðið að skemmtilegri úti- vist. Við fórum í ófá ævintýrin með Móeyju, Sóleyju og Krist- jáni og stundum fleiri vinum af leikskólanum: Í göngu- og róló- ferðir, rölt í Húsdýragarðinum, busl í Nauthólsvík eða á fjöl- skyldukaffihús ef veðrið var mjög slæmt. Þessar stundir eru ómetanlegar. Síðar tóku við heimsóknir og samverustundir í sumarbústöðum. Síðasta sumar tjölduðum við krílin við bústað Silke og Garðars og nutum fal- lega íslenska sumarsins saman. Þau voru góð hjón heim að sækja, svo ástfangin, náin og samrýnd og með hlýja og rólega nærveru. Það er erfitt að sjá lífið umbreytast og missa stjórn. Kennslan sem gaf henni svo mik- ið var fyrst til að fara og þótti henni sárt þegar hún áttaði sig á að hún myndi ekki geta kennt aftur. En allra sárust var þó tilhugs- unin um að fara frá fjölskyldunni sinni, Garðari, Tuma og Móeyju. Allt, allt of snemma. Við ræddum um dauðann og var það hennar heitasta von að eftir andlátið fengi hún að fylgjast áfram með börnunum sínum, fylgjast með Móeyju þroskast og sjá Tuma verða að manni. Og ég er viss um að hún gerir það. Elsku Garðar, elsku Tumi, elsku Móey. Mínar einlægu samúðarkveðj- ur, Bryndís. Það var gæfa fyrir MS þegar ég fékk Silke til starfa sem þýskukennara. Það var komið að kynslóðaskiptum í þýskudeild- inni og í skólanum var hafin vinna við breytingaferli sem ekki var vitað hvert leiddi. Draumur- inn var að ná í þýskukennara sem hefði sterkan faglegan bakgrunn. Kennara sem væri annt um vel- ferð nemenda sinna og hefði getu til þess að vinna að breytingum. Við vildum kennara sem væri staðfastur, hugmyndaríkur og laginn við að sætta ólík sjónar- mið. Allt þetta fengum við í Silke og svo miklu meira. Silke var ekki mikið fyrir að berast á. Hún var hlédræg, hæglát og ekkert fyrir að trana sér fram. Þeir sem þekktu hana ekki vel gátu vel haldið að þessi hægláta kona gæti átt erfitt með að tjónka við ofurhressa menntaskólanemend- ur en þannig var það alls ekki. Ég minnist þess ekki að agavanda- mál hafi verið uppi á borðum hjá Silke. Hún naut mikillar virðing- ar nemenda og samstarfsfólks og hún bjó yfir þeim göldrum sem aðeins framúrskarandi kennarar ráða við. Kennara eins og Silke er ekki að finna á hverju strái. Það var mikið áfall þegar Silke greindist með krabbamein. Þannig er það alltaf og ekki verð- ur auðveldara að takast á við veikindin þegar fjölskyldan er dreifð og börn og maki eru til staðar. Í veikindum Silke áttum við stundum djúpar og góðar samræður um þessa erfiðu stöðu. Silke sýndi mikið æðruleysi gagnvart eigin veikindum en hafði áhyggjur af börnunum og fjölskyldunni. Móðureðlið var sterkt. Silke var baráttukona og það sýndi hún svo sannarlega í veik- indum sínum. Hún gafst ekki upp og nýtti þau tækifæri sem gáfust til þess að njóta og lifa lífinu með fjölskyldunni. Allt til hins síðasta vildi hún leggja sitt af mörkum til skólans og þegar orkan var ekki lengur nægjanleg til að takast á við kennsluna tóku önnur störf við. Silke sagði að það hjálpaði sér að dreifa huganum að vera að vinna, sem var örugglega rétt, en ég veit að umhyggja fyrir nem- endum og starfinu átti einnig þar sinn þátt. Ég kveð Silke, vin minn, með djúpri sorg. Ég þakka fyrir vin- áttuna, samstarfið, öll samtölin og það traust sem hún sýndi mér. Ég sendi Garðari, Benjamín Tuma og Móeyju mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Silke verð- ur sárt saknað. Már Vilhjálmsson. Samstarfskona mín til margra ára, Silke Waelti, er látin. Við spyrjum hrygg: Hafa örlaga- nornir rúnir rist eða ræður til- viljun ein þegar kona í blóma lífs- ins er kölluð burt frá barnungri dóttur, ungum syni og eigin- manni sem hún kynntist fyrir að- eins níu árum og fann lífsham- ingjuna með? Frammi fyrir meginspurningum mannlífsins og torræðum gátum tilverunnar stöndum við jafnan ráðþrota, en hvílíkt ómælisdjúp óréttlætis! Welch unermessliches Unrecht! Við Silke töluðum alltaf þýsku saman. Við kynntumst veturinn 2003-2004 þegar hún sótti nám- skeið mitt í þýskri málfræði við Háskóla Íslands til að afla sér kennsluréttinda. Því námi lauk hún með láði, enda stálgreind og þýska með svissnesku ívafi móð- urmál hennar. Íslenskukunnátta hennar var þá þegar til fyrir- myndar. Örfáum árum síðar urð- um við vinnufélagar við þýsku- deild Menntaskólans við Sund og fljótlega vinir. Á samstarf okkar féll aldrei skuggi. Hlið við hlið undirbjuggum við dagleg störf, notkun nýrra kennslubóka og fyrstu námsferð þýskunema skólans til Berlínar. Silke var besti starfsfélagi sem hægt var að hugsa sér. Hún auðgaði kennsluefni okkar að fjölbreytni og fyllingu og hafði svo notalega nærveru. Hún var áhugasöm, hugmyndarík og heiðarleg, dug- leg og vandvirk – og úrræðagóð ef vandamál komu upp. Kennslan lék í höndum hennar og af nem- endum sínum var hún metin að verðleikum. Hún gat töfrað fram á fáeinum mínútum verkefni sem hrifu nemendur með sér. Sam- þætting myndmáls og talmáls var henni sérlega hugleikin. Mér kenndi hún að viðtengingarhátt- ur, þolmynd og þungar þýðingar eru ekki endilega máttarstólpar málakennslu. Við Silke hættum bæði störf- um við MS árið 2018, ég af fúsum og frjálsum vilja, kominn nálægt formlegum starfslokum, hún enn á besta aldri, en tilneydd af ólæknandi meini. Við vorum í reglulegu sambandi allt þar til yfir lauk. Ég dáðist að baráttu- þreki hennar og æðruleysi. Ég sit aftur við gömlu tölvuna mína í MS og skrifa þessi örfáu minningarorð. Stóllinn við hliðina á mér er auður. Það er skarð fyr- ir skildi í þýskudeild og kennara- hópi skólans. Alpafjallastúlkan Silke er fallin frá, dýravinurinn og grænkerinn sem unni öllu lífi, fíngerða stúlkan með fallega brosið sem var svo sterk. Ég kveð Silke með mikilli hlýju og miklum söknuði. Hafi hún þökk fyrir allt. Fólkinu hennar votta ég dýpstu samúð. Guðmundur Viðar Karlsson. Leiðir okkar Silke lágu fyrst saman árið 2003 þegar strákarnir okkar, Tumi og Logi, byrjuðu í leikskólanum Mýri í Litla- Skerjafirðinum, þá ársgamlir. Það vakti fljótt athygli mína að Silke virtist alltaf hafa allan tíma í heiminum fyrir litla fallega Tuma sinn og hún var yndislega góð mamma. Hún var róleg og yfirveguð en líka alltaf svolítið hugsi, skartandi sínu fallega brosi með greindarlegt og glettið augnaráð og þægilega nærveru. Strákarnir okkar urðu bestu vin- ir og dýrmæt vinátta myndaðist á milli okkar ungu mæðranna. Drengirnir okkar uxu úr grasi og fóru svolítið hvor í sína áttina, eins og gengur og gerist, og við Silke hittumst æ sjaldnar. En stundum hittir fólk á þannig streng í hjartanu að vináttan er alltaf til staðar. Silke kynntist Garðari eigin- manni sínum og saman eignuðust þau fallegan gullmola, hana Mó- eyju. Ég var í fæðingarorlofi þeg- ar Móey fæddist árið 2014 og því var rakið tækifæri að hittast oft- ar á ný. Meðan krakkarnir okkar ærsluðust og léku sér sátum við gjarnan á bekk í Húsdýragarð- inum eða við eldhúsborðið heima í Miðhúsum og spjölluðum um líf- ið og tilveruna. Silke sýndi ótrú- legt æðruleysi og hugrekki í veikindum sínum og talaði um þau opinskátt. Hún var svo þakk- lát fyrir að hafa kynnst Garðari og að hafa eignast með honum Móeyju og var alltaf svo stolt af Tuma sem nú er orðinn ungur maður. Mikið hefði ég óskað að Silke hefði fengið meiri tíma hér á jörðinni til að fylgjast með elsku litlu stelpunni sinni vaxa og dafna og elsku stóra stráknum sínum þroskast og taka fleiri skref út í lífið. Missirinn er sannarlega mikill en ljósið hennar Silke held- ur áfram að skína í Tuma og Mó- eyju og hún mun ávallt lifa í hjörtum okkar. Hvíl í friði elsku Silke og takk fyrir vináttuna. Þín verður sárt saknað. Elsku Garðar, Tumi, Móey og aðrir aðstandendur, við fjölskyld- an vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Megi Guð gefa ykkur styrk á erfiðum tímum. Hlédís, Stefán, Logi, Kári og Halldór Máni. Hún Silke okkar kvaddi þenn- an heim eftir baráttu við illvígan og óréttlátan sjúkdóm. Hún vissi í nokkurn tíma hvernig myndi fara og aðeins kraftaverk kæmi henni til bjargar. Við héldum þó lengi í vonina að einn daginn myndi birta til. Silke starfaði með okkur við Menntaskólann við Sund frá árinu 2005. Hún var góður sam- starfsfélagi, metnaðarfullur kennari og vel liðin hjá bæði nemendum og starfsmönnum skólans. Silke var lausnamiðuð, hugmyndarík, nákvæm og um- hyggjusöm og gerði allt sem hún tók sér fyrir hendur af alúð og nákvæmni. Það er enginn vafi á því að djúpt skarð hefur myndast í okkar góða hóp í MS. Þau okkar sem hafa starfað lengi með Silke hafa fengið að fylgjast með börnunum hennar vaxa úr grasi, ástinni kvikna og hamingjusömu fjölskyldulífi verða að veruleika. Kæri Garðar, Tumi og Móey, nokkur orð gera lítið á stundu sem þessari því missirinn er mik- ill og sorgin djúp. Dýpsta sæla og sorgin þunga svífa hljóðlaust yfir storð. Þeirra mál ei talar tunga, tárin eru beggja orð. (Ólöf frá Hlöðum) Fyrir hönd kennara og starfs- manna Menntaskólans við Sund, Helga Sigríður Þórsdóttir rektor. Silke Waelti Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Sigurður Bjarni Jónsson útfararstjóriMagnús Sævar Magnússon útfararstjóri Guðmundur Baldvinsson útfararstjóriJón G. Bjarnason útfararstjóri Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, BJARNA HÓLM BJARNASONAR, fyrrverandi lögreglumanns. Kristín H. Bjarnadóttir Jónmundur Kjartansson Arnþór Heimir Bjarnason Lovísa Guðmundsdóttir Anna Hlín Bjarnadóttir Berglind H. Bjarnasóttir Þórarinn Gestsson barnabörn, langafabörn, langalangafabörn Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem sýnt hafa okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar yndislegu móður, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, RAGNHEIÐAR AÐALGUNNAR KRISTINSDÓTTUR. Færum starfsfólki á Dvalarheimilinu Hlíð sérstakar þakkir fyrir hlýju og nærgætni við umönnun hennar, einnig viljum við þakka öllum þeim er komu að útför hennar, útfararþjónustu, presti og tónlistarfólki fyrir dásamlegan flutning tónlistar við athöfnina. Kveðjur til vina og ættingja með ástarþökkum fyrir falleg orð og kveðjur. Reynir Heiðar Antonsson Jóna Kristín Antonsdóttir Þorsteinn Rútsson Ragnheiður Antonsdóttir Arndís Antonsdóttir Ólafur Ragnar Hilmarsson Börkur Antonsson Janne Antonsson barnabörn og allir aðrir afkomendur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG BJARNADÓTTIR húsmóðir, lést á Skjóli hjúkrunarheimili mánudaginn 26. apríl. Starfsfólki Skjóls eru færðar sérstakar þakkir fyrir góða umönnun. Bjarni Jensson Elínborg Theodórs Arnar Jensson Ragna Björk Þorvaldsdóttir Sólveig Jensdóttir Gunnlaugur Bjarnason Sigrún Jensdóttir Birgir Ingvason barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR BJÖRN BJÖRNSSON, Leirubakka 22, Reykjavík, lést þriðjudaginn 27. apríl á Vífilsstöðum. Útförin fer fram frá Langholtskirkju þriðjudaginn 11. maí kl. 13. Hjartans þakkir til allra sem hafa komið að umönnun Sigurðar síðustu ár. Guðrún Sigurðardóttir Alfreð Svavar Erlingsson Berglind Sigurðardóttir Björn Harðarson Hjördís Rut Sigurðardóttir Ólafur Lúther Einarsson og fjölskyldur Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ERNA BERGMANN GÚSTAFSDÓTTIR, Pósthússtræti 3, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn 2. maí. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 12. maí klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt á https://www.facebook.com/groups/ernabergmann Oddur Gunnarsson Gunnar Oddsson Kristín Bauer Oddur Gunnarsson Bauer Katrín Ágústsdóttir Henrý Þór Bauer Eva Sif Gunnarsdóttir Stefán Birgir Jóhannesson Ísold Kristín Stefánsdóttir Sesselja Erna Benediktsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.