Morgunblaðið - 06.05.2021, Side 63

Morgunblaðið - 06.05.2021, Side 63
MITT SJÓNARHORN Phillip Lahm @philipplahm Pep Guardiola er mér mjög minn- isstæður. „Í mikilvægum leikjum vel ég einfaldlega ellefu bestu leikmenn- ina,“ sagði hann gjarnan. Taktu nú vel eftir því í þessu felst hvað knatt- spyrnan snýst um: Hæfni ein- staklingsins. Guardiola er topp þjálf- ari. Hann elskar að uppgötva hæfileika og getu leikmanna. Margir þjálfarar vilja gjarnan fækka flækjustigum í knattspyrn- unni. Guardiola sækist á hinn bóginn eftir því að ná tökum á þeim. Líkja mætti aðferðum hans við stórmeist- ara í skák eða hljómsveitarstjóra sem nær því besta út úr hverjum hljóðfæraleikara. Helsti munurinn er sá að í knattspyrnunni er ekki hægt að spila eftir nótum og fleiri breytur hafa áhrif á knattspyrnumanninn heldur en hrók og riddara á taflborð- inu. Það er alls ekki auðvelt að koma auga á hvað leikmaður getur eða get- ur ekki framkvæmt á vellinum. Ekki er heldur auðvelt að lýsa því með orðum. Framúrskarandi þjálfari er fljótur að átta sig á hvað menn hafa fram að færa og hver verður lykilleikmaður. Í framhaldinu kemur þjálfarinn því á framfæri við hvern og einn í hverju styrkleikar og veikleikar leikmanns- ins felast sem og liðsfélaganna. Á hverjum einasta degi er varpað skýr- ara ljósi á hlutverk leikmannsins. Þessa vinnu innir Guardiola af hendi af meiri ástríðu en ég hef séð hjá öðr- um. Því lýkur með því að allir átta sig á að þjálfarinn hefur rétt fyrir sér, meira að segja þeir sem ekki fengu að spila. Þessi niðurstaða færir hon- um óskorað vald. Liðin þekkjast á svipstundu Knattspyrnuliðum veitir ekki af hjálp, ekki síst meðan á leik stendur. Guardiola er svo virkur að hann get- ur náð til leikmanna í leikjum. Lyk- ilmenn hjá honum eins og Kevin de Bruyne eru undir áhrifum frá honum í leikjum og koma skilaboðum frá honum til annarra leikmanna. Kyle Walker er ekki dæmigerður leik- maður hjá Pep en Pep hefur gert hann að betri leikmanni. Það hefur sýnt sig að Guardiola er traustur gagnvart öllum og fyrir vikið verða allir öruggir. Í báðum undanúrslita- leikjunum gegn París Saint Germain náðu sterkir einstaklingar hjá París að ógna marki Manchester City í fyrri hálfleik, en City tók völdin í síð- ari hálfleik. Ilkay Gündogan er gott dæmi um leikmann sem Pep kann að meta því hann les aðstæður í leikjum. Hann hagar sér alltaf á vellinum í takti við hvernig leikurinn þróast og velur fullkomnar hlaupaleiðir bæði í vörn og sókn. Hann áttar sig á hvenær best sé að halda boltanum innan liðs- ins og hvenær best sé að koma bolt- anum inn í vítateig andstæðinganna. Slík áhættustjórnun krefst hæfni. Hann veit oft hvernig mun spilast úr aðstæðum sem upp koma og þess vegna skorar hann mörk. Guardiola þarf á slíkum leikmönnum að halda. Á móti kemur að Gündogan nýtur þess sérstaklega að leika undir hans stjórn því hann hefur ánægju af því hlutverki sem Guardiola bjó til fyrir hann. Með þessu skapast liðsheild. Hægt er að þekkja knatt- spyrnulið sem Guar- diola stýrir á svip- stundu. Jafnvel þótt sjónvarpsmyndirnar væru í svarthvítu. Hlaupin, sending- arnar, staðsetn- ingar í víta- teigunum og hvernig lið hans fer með boltann fram völlinn í sameiningu þannig að leik- urinn fer fram á vall- arhelmingi andstæð- inganna. Svona löguðu er ekki hægt að ná fram með því að þjálf- arinn gefi skipanir í búningsklefanum. Til að ná slíkum yf- irburðum þarf að vinna að því með markvissum hætti á hverjum degi. Erfið deildakeppni Þegar Guardiola hóf störf í Manchester árið 2016 setti hann saman nýjan leikmannahóp. Eftir að hafa hafnað í 3. sæti tókst liðinu að vinna tvo meistaratitla og hafna í 2. sæti. Nú er hann aftur á toppnum og keppnin er ekkert sérstaklega jöfn. Frammistaða liðsins dettur aldrei það mikið niður að tilviljunar- kenndum úrslitum er haldið í lágmarki eftir 38 umferðir. Fyrir ensku liðin er deildakeppnin sú keppni sem skiptir mestu máli. Þar er mest flæði fjármagns í deilda- keppnum. Samkeppnin er hörð. Af þeim ellefu knattspyrnuliðum í heim- inum sem eru með mesta veltu koma meira en helmingur þeirra frá Eng- landi. Sex til átta bestu liðin eru að minnsta kosti með þrjá til fjóra leik- menn í hæsta gæðaflokki. Þetta er óvenjulegt. Fimm lið hafa orðið Eng- landsmeistarar síðasta áratuginn. Einungis City undir stjórn Guardiola hefur tekist að verja titilinn á þess- um tíma og gerði það einu sinni, árið 2019. Þá hefur hann einnig unnið fimm bikara af tíu mögulegum. Ekki sterkasti hópurinn Til að vinna Meistaradeildina þarf hins vegar heppni þegar dregið er og í útsláttarkeppninni. Frá 8-liða eða 16-liða úrslitum eru yf- irleitt allra bestu lið Evrópu eftir í keppninni. Ef allir bestu leikmennirnir eru ekki heilir í apríl og maí þá er erf- itt að vinna keppnina. Einnig þarftu að vera með leikmenn sem búa yfir sérstökum hæfileikum. Í fyrsta þjálfarastarfinu í Barcelona var Guar- diola með fjóra til fimm slíka leikmenn og voru þeir reglulega valdir í heimsliðið. Slíka menn er hann ekki með í Manchester þótt mjög hafi verið fjárfest. Gu- ardiola hefur sjálfur bent á að ýmis undra- börn eins og Kylian Mbappé og Neymar kjósi heimsborgir eins og London og París eða þá félög með glæsilega sögu. Ef við horfum til leikmannahópsins var City ekki sigurstrang- legasta lið keppninnar. Ekki síst í ljósi þess að Sergio Agüero, sem er leikmaður með sérstaka hæfileika, hefur verið meiddur og ekki náð fullum styrk. Myndi velja ellefu Iniesta Ef haft er í huga hvernig leikstíll Guar- diola sem þjálfara var á Spáni þá get- urðu séð að hann hefur þróað sinn stíl. Barcelona var vel samæft lið þar sem nánast allir gátu spilað á hvaða hljóðfæri sem var. Þegar liðið vann 2009 og 2011 þá tókst því að kæfa andstæðingana. Mögulegt var að leika með þessum hætti vegna þess að allt félagið var undir áhrifum frá Johan Cruyff og „Total Football“. Guardiola sér sjálfan sig sem hluta af þeirri hefð og hann myndi vilja geta valið ellefu leikmenn eins og Iniesta. Annars staðar hefur hann þurft að laga sínar hugmyndir að að- stæðum. Í München leyfði hann snillingunum Franck Ribéry og Ar- jen Robben að athafna sig á könt- unum en í staðinn færðu bakverð- irnir sig inn á miðsvæðið þegar liðið var með boltann. Í jafnri deild eins og ensku úrvals- deildinni getur Guardiola ekki haft þá yfirburði sem hann kynntist hjá Barcelona og Bayern München. City leggur nú meiri áherslu á varnarleik og treystir á vel þjálfaða varn- armenn sem eru sterkir í loftinu. Stíllinn hefur þróast Stundum lætur liðið andstæðing- unum boltann eftir, dregur sig aftar, verst í vítateignum, kastar mæðinni og bíður eftir tækifæri á skyndisókn. Hann hefur einnig lært að meta ein- föld mörk eftir hornspyrnu eða lang- skot og að í þeim geti falist fegurð. Hann er ekki með sóknardjarfan „Tiki Taka“-leikstíl á heilanum. Þess í stað þróar hann hæfileika sinna manna bæði með og án bolta. Hann hugsar um hlutverk allra leikmanna bæði hvað varðar vörn og sókn. Sjálfur var ég sókndjarfur varn- armaður og kannski er það þess vegna sem okkur semur svona vel. Með hans leiðsögn tekst varn- armönnum Manchester að skipu- leggja vörnina af meiri skilvirkni. Meira að segja Jérome Boateng sagði Guardiola hafa kennt honum sitt hvað um stöðu varnartengiliðs. Við hjá Bayern nutum góðs af því að hafa Guardiola sem þjálfara, hvort heldur sem einstaklingar eða heild. Verðmæti sköpunargáfunnar Hjá Guardiola þurfa allir að leggja eitthvað af mörkum með hagsmuni liðsins að leiðarljósi. Hann býr meira að segja til stöður fyrir framúrskar- andi leikmenn. Hann leyfði til að mynda Lionel Messi, sem undir hans stjórn þróaðist út í einhvers konar undur, að hanna stöðu framherja upp á nýtt. Hann gerir sér einfald- lega grein fyrir því að stjörnuleik- mennirnir ráða úrslitum í mikilvæg- ustu leikjunum. Sköpunargáfan verður verðmætari en leikáætlunin. Leikstíll hans fagnar einstaklings- framtaki. Pep Guardiola sýnir leik- mönnum sínum virðingu og setur hvorki sjálfan sig né leikkerfi eins og 4-3-3 eða 3-5-2 ofar leikmönnum. Hann er vinur leikmanna og þjónar þeim. Hann er vinur leikmanna - Pep Guardiola sýnir öllum leikmönnum virðingu - Leikstíll sem fagnar einstaklingsframtaki - Ljósi varpað á hlutverk leikmannsins á hverjum degi ÍÞRÓTTIR 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2021 Þorvaldur Örlygsson verður einn með karlalið Stjörnunnar í knatt- spyrnu eftir að Rúnar Páll Sig- mundsson hætti störfum í gær. Engar skýringar hafa fengist á brotthvarfi Rúnars en samkvæmt heimildum skilur hann við félagið í góðu. Rúnar þjálfaði Stjörnuna frá 2014 og liðið varð Íslands- og bik- armeistari undir hans stjórn. Þor- valdur kom til Stjörnunnar í vetur og er með langan þjálfaraferil að baki, með KA, Fjarðabyggð, Fram, ÍA, HK og Keflavík, en var síðustu ár þjálfari U19 ára landsliðs karla. Þorvaldur einn með Stjörnuna Ljósmynd/Þórir Tryggvason Stjarnan Þorvaldur Örlygsson stjórnar liðinu einn. Hákon Daði Styrmisson, handknatt- leiksmaður frá Vestmannaeyjum, hefur samið við gamla þýska stór- veldið Gummersbach til tveggja ára frá og með næsta sumri. Félagið til- kynnti þetta í gær og Guðjón Valur Sigurðsson þjálfari Gummersbach sagði á heimasíðu félagsins að hann hlakkaði mikið til að fá Hákon sem sé sérstaklega snöggur og mark- sækinn leikmaður. Gummersbach er í þriðja sæti B-deildarinnar og því mögulegt að Hákon fari beint í bestu deild heims til að spila með liðinu næsta vetur. Hákon Daði til Gummersbach Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Þýskaland Hákon Daði Styrmisson leikur undir stjórn Guðjóns Vals. Philipp Lahm var fyrirliði þýska landsliðsins í knattspyrnu þegar það varð heimsmeistari árið 2014 og lék með Bayern München í fimmtán ár. Hann er mótsstjóri Evrópumóts karla sem fram fer árið 2024. Pistlar hans um knattspyrnu, „Mitt sjónarhorn“ munu birtast reglulega í Morgunblaðinu. Þeir eru skrifaðir í samvinnu við Oliver Fritsch, íþróttaritstjóra þýska net- miðilsins Zeit Online, og birtast í fjölmiðlum nokkurra Evrópulanda. Fyrsti pistill hans fjallar um Pep Guardiola, knattspyrnustjóra Manchester City, en Lahm lék undir hans stjórn hjá Bayern á árunum 2013 til 2016. Pistlahöfundurinn Phillip Lahm Knattspyrnuþjálfarinn Rúnar Páll Sigmundsson kom mjög á óvart í gær þegar hann sagði upp störfum sem þjálfari karlaliðs Stjörnunnar eftir að hafa stýrt liðinu frá því í október 2013. Segja má að það sé langur tími miðað við það sem gengur og gerist í knattspyrnuheim- inum. Ástæður þess að Rúnar tók þessa ákvörðun þekki ég ekki en heyrði á samtölum við Garðbæinga í gær að ákvörðunin kom á óvart. Hver svo sem kveikjan var að þessari ákvörðun getur Rúnar alla vega verið ánægður með ár- angurinn. Hann markaði tíma- mót fyrir knattspyrnulið félags- ins. Enginn hörgull er á sérfræðingum þegar niðurstaða liggur fyrir en ef við horfum um öxl þá spáði svo gott sem eng- inn Stjörnunni sigri á Íslands- mótinu árið 2014. Undir stjórn Rúnars blómstruðu þá leikmenn sem fremur lítið hafði farið fyrir eins og Ólafur Karl Finsen, Arnar Már Björgvinsson og Pablo Pu- nyed. Tapaði liðið ekki leik í deildinni. Tímasetningin er athygl- isverð því einungis einni umferð er lokið í Pepsí Max-deildinni. Maður verður alltaf undrandi þegar slíkar breytingar verða rétt í upphafi móts eftir langt undirbúningstímabil. En ástæð- urnar geta verið misjafnar. Upp í hugann koma dæmi sem vöktu mikla athygli. Arnari Grét- arssyni var sagt upp hjá Breiða- bliki eftir tvo leiki árið 2017 og Marteini Geirssyni hjá Fram eftir tvo leiki árið 1995. Breiðablik hafði tapað báðum en Fram hafði tapað og gert jafntefli. Ár- ið 1997 var Lúkasi Kostic sagt upp eftir fimm deildarleiki hjá KR. Hafði liðið unnið einn, tapað einum og gert þrjú jafntefli. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is Þýskaland Göppingen – Flensburg...................... 28:28 - Gunnar Steinn Jónsson skoraði ekki fyr- ir Göppingen. Janus Daði Smárason er frá vegna meiðsla. - Alexander Petersson skoraði ekki fyrir Flensburg. Wetzlar – Lemgo ................................. 21:27 - Bjarki Már Elísson skoraði 5 mörk fyrir Lemgo. Essen – Bergischer ............................. 22:32 - Arnór Þór Gunnarsson skoraði 7 mörk fyrir Bergischer. Staðan: Kiel 47, Flensburg 47, RN Löwen 42, Magdeburg 38, Göppingen 35, Wetzlar 30, Bergischer 29, Füchse Berlín 29, Lemgo 26, Melsungen 25, Leipzig 25, Erlangen 24, Stuttgart 23, Hannover-Burgdorf 22, Minden 18, Balingen 17, Ludwigshafen 13, Nordhorn 13, Essen 11, Coburg 8. Frakkland Chambéry – Aix................................... 27:23 - Kristján Örn Kristjánsson skoraði 2 mörk fyrir Aix. _ Efstu lið: París SG 44, Montpellier 40, Nantes 35, Nimes 28, Aix 26, Chambéry 25, Limoges 23, Toulouse 22. Danmörk Úrslitakepnin, 2. riðill: Skjern – Aalborg ................................. 28:28 - Elvar Örn Jónsson skoraði eitt mark fyr- ir Skjern. - Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal- borg. Skanderborg – Tvis Holstebro .......... 28:36 - Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 5 mörk fyrir Tvis Holstebro. _ Aalborg 7, Tvis Holstebro 7, Skjern 3, Skanderborg 2. Sviss 8-liða úrslit, fyrsti leikur: Kadetten – Bern .................................. 30;29 - Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten. %$.62)0-# AFP Sigursæll Pep Guardiola er með góða ferilskrá hjá stórliðunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.