Morgunblaðið - 06.05.2021, Síða 68
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2021
Þ
au Haukur og Lilja, par á
miðjum aldri, eru á leið í
veislu. Hún er ekki viss um
hvort hún sé nógu fín. Hún
veit að hana langar ekki, en finnst
hún verða að fara. Hann er löngu
hættur að spá í hvort hann langar
eða ekki. Hann er einfaldlega að fara
í þessa veislu. Aðspurður er hann á
því að hún sé vissulega fín. Hún
gengur til sálfræðings. Honum
finnst það vera rugl. Sálfræðingar
eru fyrir fólk sem hefur lent í
einhverju. Hefur hún kannski lent í
einhverju?
Þetta eru svona nokkurn veginn
útveggirnir á því völundarhúsi lífs
og vana sem Haukur og Lilja búa í,
og er búið að koma fyrir í Ásmund-
arsal, á einkar smekklegan og
áreynslulausan hátt af Maríu Th.
Ólafsdóttur sem einnig hannar stíl-
hreina og fallega hvíta búninga pars-
ins. Lýsing Ólafs Ágústs Stefáns-
sonar varpar viðeigandi litum á það
sem fram fer og þeir Stefán Már
Magnússon og Þorvaldur Þór
Þorvaldsson bæta fleiri við í gegnum
hljóðfærin sín af mikilli fimi og
fagmennsku.
Ekkert af þessu umgjarðarefni
dregur athyglina frá því sem allt
snýst um: innra lífi Hauks og Lilju,
og tilraunum þeirra til að ýmist
afhjúpa það eða fela, eftir því sem
við á. Fyrir sambandið, fyrir eigin
sálarheill, fyrir stundarvellíðan,
fyrir langtímaheilbrigði.
Það er látleysi og agi í leiktexta
Elísabetar Kristínar Jökulsdóttur,
nokkuð sem hefur ekki alltaf verið
höfuðeinkenni verka hennar, en átti
til dæmis sinn þátt í að gera nýjustu
skáldsögu hennar, Aprílsólarkulda,
svona einstaklega vel heppnaða, og
verðskuldað verðlaunaða. Hér beitir
hún t.d. endurtekningum af listfengi,
teiknar andstæður persónanna
skýrum línum án þess að ýkja eða
stílfæra um of.
Útkoman minnir stundum á
kringumstæðurnar sem Beckett býr
sínum fjötruðu og þjökuðu persón-
um. Valdatafl og sambandsleysi
persónanna, í bland við hálfgleymda
ástina, kallar Strindberg á köflum
upp í hugann. En þetta er samt okk-
ar fólk. Við höfum öll verið í svona
partíi eins og þau skötuhjú eru á leið
í. Við höfum staðið við þennan spegil
og spáð í hvernig við tökum okkur
út. Eða sótt staðfestingu á að við
séum þrátt fyrir allt fín hvort til ann-
ars. Léttleikinn og leikurinn í text-
anum og sýningunni er Elísabetar,
og leikstjórans, Maríu Reyndal, sem
mótar þennan dans Hauks og Lilju,
sem stundum eru líkust köttum á
sveimi í kringum heitan graut til-
finninga sinna.
Þetta er kannski ekki djúprist eða
ofsafengin dramatík. En allir ættu
að geta speglað sig í henni. Og alltaf
öðru hverju falla einhver sér-elísa-
betönsk snjallyrði. Sum þeirra
hanga innrömmuð á vegg
Ásmundarsalar.
Alúð og framúrskarandi vinna
Eddu Bjargar Eyjólfsdóttur og
Sveins Ólafs Gunnarssonar blasir
við í sýningunni. Sveinn er fyrir
löngu búinn að hasla sér völl sem
nokkurs konar sérfræðingur í að
túlka stífa, bælda og taugaveiklaða
karla, ekki í alveg öruggri fjarlægð
frá barmi taugaáfallsins, og þannig
kemur Haukur áhorfendum fyrir
sjónir. Að svo miklu leyti sem hann
er öruggur með sig er það að mestu
uppgerðin tóm. Edda hefur öllu víð-
ara svið að leika með og er hreint
frábær sem kona að troða marvað-
ann í lífi sínu, fyndin og berskjölduð
á víxl.
Haukur og Lilja – Opnun er lát-
laus, skýr og fallega formuð leiksýn-
ing um samband sem er mögulega á
síðustu metrunum. Allavega ef þau
komast ekki á næstu orkustöð til að
fylla á tankinn. Nærandi og kæfandi
samband, vissulega vanafjötrað en
kannski býr það einhvers staðar enn
yfir gömlu möguleikunum. Elísabet
Kristín Jökulsdóttir er alltaf að
minna okkur á töfrana. Við getum
ekki án þeirra verið, en við getum
líka verið viss um að þeir eru þrátt
fyrir allt til.
Út í kvöld
Ljósmynd/Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir
Töfrar „Haukur og Lilja – Opnun er látlaus, skýr og fallega formuð leiksýning um samband sem er mögulega á
síðustu metrunum. Allavega ef þau komast ekki á næstu orkustöð til að fylla á tankinn,“ segir í leikdómi.
Ásmundarsalur
Haukur og Lilja – Opnun bbbbn
Höfundarverk: Elísabet Kristín Jökuls-
dóttir. Samsetning leiktexta: Leikstjóri
og leikarar. Leikstjórn: María Reyndal.
Leikmynd og búningar: María Th. Ólafs-
dóttir. Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson.
Tónlist: Stefán Már Magnússon og Þor-
valdur Þór Þorvaldsson. Leikarar: Edda
Björg Eyjólfsdóttir og Sveinn Ólafur
Gunnarsson. Framleiðsla: EP. Frum-
sýning í Ásmundarsal fimmtudaginn 29.
apríl 2021, en rýnt í 2. sýningu á sama
stað föstudaginn 30. apríl 2021.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST
Miðstöð íslenskra bókmennta hefur
úthlutað 28 milljónum króna í útgáfu-
styrki til 55 verka en alls bárust 116
umsóknir og sótt um styrki upp á
rúmar 130 milljónir króna. Í fyrra
bárust 69 umsóknir og er þetta því
68% fjölgun umsókna milli ára. Meðal
verka sem hlutu styrki eru eftir-
farandi, að því er fram kemur á vef
miðstöðvarinnar:
Húsnæðiskostur og híbýlaprýði.
Ritstjóri: Anna María Bogadóttir.
Útgefandi: Úrbanistan.
Í leit að listrænu frelsi (vinnutitill) /
Ævi og listsköpun Muggs, Guð-
mundar Thorsteinssonar. Aðalhöf-
undur er Kristín Guðnadóttir, ritstj.
Harpa Þórsdóttir. Útgefandi: Lista-
safn Íslands.
Kristín Þorkelsdóttir: ferill, störf og
verk. Höfundar: Bryndís Björgvins-
dóttir og Birna Geirfinnsdóttir.
Útgefandi: Angústúra.
Merki Íslands. Höfundur: Bragi
Valdimar Skúlason. Útgefandi:
Brandenburg hönnunarstofa.
Á elleftu stundu – Uppmælingarferðir
danskra arkitektaskóla til Íslands
1970-2006. Höfundur: Kirsten Sim-
onsen. Myndhöfundar: Poul Neder-
gaard Jensen, Jens Frederiksen o.fl.
Útgefandi: Þjóðminjasafn Íslands.
Ísland undraland. Höfundur: Ómar
Ragnarsson. Útgefandi: Sögur
útgáfa.
Veitt í vötnum. Höfundur: Ingimund-
ur Bergsson. Útgefandi: Útgáfuhúsið
Verðandi.
Bláleiðir. Höfundar: Oddný Eir
Ævarsdóttir og Guðrún Kristjáns-
dóttir. Útgefandi: Eirormur.
Með flugur í höfðinu. Sýnisbók
íslenskra prósaljóða og örsagna 1922-
2012. Höfundar: Kristín Guðrún
Jónsdóttir og Óskar Árni Óskarsson.
Útgefandi: Forlagið.
Heildarlista yfir styrki má finna á
islit.is.
Styrkumsóknum fjölg-
aði um 68% milli ára
Anna María
Bogadóttir
Bragi Valdimar
Skúlason
Oddný Eir
Ævarsdóttir
Ómar
Ragnarsson
alla virka morgna
frá 06 til 10