Morgunblaðið - 28.05.2021, Side 1

Morgunblaðið - 28.05.2021, Side 1
F Ö S T U D A G U R 2 8. M A Í 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 124. tölublað . 109. árgangur . BRYNJARI INGA ERU ALLIR VEGIR FÆRIR SÓLARKÚLAN HEYRIR NÚ SÖGUNNI TIL NÝR TÓNN Í ÍSLENSKUM BÓKMENNTUM VEÐURATHUGANIR 18 MARGRÉT VERÐLAUNUÐ 54BESTI LEIKMAÐURINN Í MAÍ 52 Snekkjan A lónar nú á Skjálfanda úti fyrir Húsavíkurhöfn. Snekkjan er í eigu rússneska auðjöfursins Andreis Melin- chenckos sem hefur verið á ferðalagi við Íslandsstrendur und- anfarnar vikur. Melinchencko hefur meðal annars komið við á Siglufirði, í Skagafirði og Eyjafirði svo og Önundarfirði og víðar á Vestfjörðum. Melinchencko heimsótti Húsavík fyrir fáeinum vikum og leigði þá sjóböðin Geosea til einkanota. Snekkjan A er tæpir 143 metrar að lengd, 25 metrar að breidd og ná möstur hennar þrjú hátt í 100 metra hæð. Rússnesk lúxussnekkja lónar á Skjálfanda Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson _ Joe Biden Bandaríkja- forseti hefur fyr- irskipað leyni- þjónustum undir sinni stjórn að herða rann- sóknir á upp- runa kór- ónuveirunnar og að þar á meðal verði að kanna til hlítar hvort hún hafi lekið út af rannsóknarstofu. Í því samhengi beinast augu manna fyrst og fremst að Veirurannsóknarstofn- uninni í Wuhan í Kína, en þar í næsta nágrenni komu fyrstu Cov- id-19-smitin fram. Slíkur veiruleki af rannsóknarstofum er alls ekki óþekktur, oft án þess að nokkur skýring finnist. Kínversk stjórnvöld sitja hins vegar föst við sinn keip um að kór- ónuveiran hafi borist með náttúru- legum hætti úr dýrum í menn. Fyrir því hafa engar vísbendingar eða sannanir fundist þrátt fyrir gríðarlegar rannsóknir undanfarið eitt og hálft ár. »10 Biden fyrirskipar rannsókn á tilurð kórónuveirunnar Joe Biden Bandaríkjaforseti. Alexander Kristjánsson alexander@mbl.is Framkvæmdir vegna rakaskemmda og myglu í Fossvogsskóla, sem staðið hafa yfir með hléum í tvö ár, hafa ekki skilað tilskildum árangri og enn er glímt við sömu vandamál og áður en þær hófust; rakaskemmdir og hátt rakastig á sömu svæðum. Ákveðið hefur verið að engin kennsla fari fram í skólanum á næsta skólaári, en allar þrjár byggingar skólans verða gerðar upp. Ákvörðun- in er tekin í kjölfar úttektar sem verk- fræðistofan Efla gerði fyrir borgina. Efla mun hafa eftirlit með fram- kvæmdunum allt þar til yfir lýkur og er það nýbreytni frá því sem áður var þegar eftirlit var í höndum fram- kvæmdaaðilans sjálfs. Borgaryfirvöld funduðu í gær- kvöldi með foreldrum skólabarna. Áætlanir gera ráð fyrir að fram- kvæmdir standi yfir allt næsta skóla- ár, en ekki er þó hægt að slá því föstu fyrr en vinna er hafin og í ljós kemur hve útbreitt vandamálið er. Hafa áhyggjur af næsta ári Karl Óskar Þráinsson, formaður foreldrafélags Fossvogsskóla, segir að foreldrar séu ánægðir með að Efla hafi verið fengin til verksins enda hafi eftirliti verið ábótavant á fyrri stigum. Hann segir foreldra þó áhyggjufulla vegna þess sem fram undan er næsta skólaár. Útlit er fyrir að skólastarf fari fram í Korpuskóla í Grafarvogi, hinum megin í borginni. Foreldrar hafa lagt á það áherslu að leitað verði leiða til að tryggja að skólahald verði í hverfinu, til dæmis með því að settar verði upp færanlegar kennslustofur. „Við vitum að það gerist ekki yfir nótt, en það þarf að byrja þá vinnu strax,“ segir Karl Óskar. 600 milljónir í framkvæmdir Í svari borgarinnar við fyrirspurn borgarstjórnarflokks Sjálfstæðis- flokksins kemur fram að kostnaður við framkvæmdir í Fossvogsskóla hafi hingað til numið 600 milljónum króna. Inni í þeirri tölu eru þó ýmsar framkvæmdir sem ekki snúa að myglu- og rakaskemmdum, svo sem endurnýjun á bókasafni, kennara- stofu og tæknimálum. „Engu að síður er það tilfinning okkar að mælikvarði [borgarinnar] á árangur hafi hingað til verið í fjölda króna en ekki í upp- lifun notenda,“ segir Karl Óskar. »32 Aftur á byrjunar- reit í Fossvogsskóla - Rakaskemmdir á sömu svæðum og áður - Framkvæmdir næsta vetur - Ánægja með að Efla sé fengin að verkinu Hækkandi fasteignaverð er það sem helst knýr verðbólguna áfram milli mánaða að sögn aðalhagfræðings Ís- landsbanka. Bendir hann á að sér- býli á höfuðborgarsvæðinu hafi hækkað um 20% síðastliðið ár og aukist munurinn milli þess eigna- flokks og fjölbýlis þar sem árstakt- urinn sé nær 12%. Bendir hann á að lóðaskortur hamli uppbyggingu sér- býlis á höfuðborgarsvæðinu og leita þurfi leiða til að ná jafnvægi á þeim markaði. »24 Morgunblaðið/Sigurður Bogi Húsnæði Sérbýli hækkar stöðugt. Sérbýlið rýkur upp - 20% hækkun á höfuðborgarsvæðinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.