Morgunblaðið - 28.05.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 2021
Við skoðum
glæsilegustu
miðalda borgir
Evrópu frá
11. og 12. öld
Tallinn, Vilnius og Riga og kynnumst
miðaldastemningu sem er engri lík.
Borgir sem eru á minjaskrá Unesco,
miðstöð menningar og lista við
Eistrasaltið.
Á vegi okkar verða m.a. dómkirkjur,
þröngar steinilagðar götur, hallir,
kastalar, fallegar sveitir og sveita-
þorp með brosandi heimamönnum.
Síðumúli 29, 108 Reykjavík | Sími 588 8900
info@transatlantic.is | www.transatlantic.is
Eistland, Lettland,
Litháen
Innifalið í verði er:
• Flug ásamt sköttum og
gjöldum
• Allur akstur skv. dagskrá
• Gisting með morgunmat
• 2 X hádegisverður (dagur 3
og 8)
• Tveir kvöldverðir á hefðar-
setrum (dagur 5 og 7)
• Aðgangur að söfnum þar sem
við á; Rundale höll, Gediminas
kastallinn, Trakai kastali, Opna
byggðasafnið, Turaida kastali,
Eistnesta þjóðminjasafnið,
Sovéska neðanjarðarbyrgið
• Enskumælandi leiðsögumaður
• Íslenskur fararstjóri
Stígðu aftur í miðaldir
321.600
á mann í 2ja manna herbergi
10.-19.
september
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Esther Hallsdóttir
esther@mbl.is
„Ég harma það að Alþýðusam-
bandið skuli leggjast gegn því að
fólk hafi meira valfrelsi og geti
haft meiri áhrif á sín lífeyrisrétt-
indi en það hefur í dag. Þarna er
ekki verið að semja um lakari rétt-
indi en eru til staðar í dag, heldur
aukið frelsi til að ráðstafa sínum
lífeyri,“ segir Vilhjálmur Bjarna-
son, formaður Verkalýðsfélags
Akraness.
Verkalýðsfélag Akraness
(VLFA) og Elkem Ísland ætla að
fara með ágreining um lífeyrismál
fyrir Félagsdóm vegna andstöðu
ASÍ við samningsatriði í nýgerðum
kjarasamningi
þeirra.
VLFA og El-
kem sömdu um
að félagsmenn
VLFA gætu ráð-
stafað allt að
3,5% af iðgjaldi í
lífeyrissjóð, ann-
aðhvort í sam-
tryggingu, til-
greinda séreign
eða frjálsan lífeyrissparnað.
Í frétt á vef VLFA kemur hins
vegar fram að forseti ASÍ hafi
„lagst gegn því að félagsmenn
VLFA fái þetta aukna valfrelsi og
lagt stein í götu þessa samkomulags
á þeirri forsendu að það sé ASÍ sem
fari með samningsumboðið um líf-
eyrismál en ekki Verkalýðsfélag
Akraness“.
„Við stöndum frammi fyrir því að
Alþýðusamband Íslands og Samtök
atvinnulífsins segja á ótrúlegan hátt
að við förum ekki með samningsrétt
um lífeyrismál. Viðauki sem við
gerðum við Elkem Ísland gengur út
á að við förum með þennan ágrein-
ing fyrir Félagsdóm og fáum úr því
skorið hvort samningsrétturinn
liggur hjá stéttarfélaginu, ASÍ eða
SA. Í lögum um stéttarfélög og
vinnudeilur stendur skýrum stöfum
bæði í 2. og 5. grein að það eru
stéttarfélögin sem semja um kaup
og kjör sinna félagsmanna,“ segir
Vilhjálmur.
Vilhjálmur segir að hvergi sé get-
ið um ASÍ sem samningsaðila í lög-
um enda geri ASÍ ekki neina kjara-
samninga og hafi ekki samnings-
umboð. „Það stendur líka í þessum
tilteknu lögum að stéttarfélögin
ráða sínum málefnum sjálf og það
er ekki hægt að taka samningsrétt-
inn af stéttarfélögunum með þess-
um grófa hætti eins og þarna er
verið að gera,“ segir Vilhjálmur.
Stefna Elkem til málamynda
Aðspurður hverjum VLFA ætli
að stefna fyrir Félagsdóm segir Vil-
hjálmur að vegna þess að félagið
geti ekki stefnt ASÍ sé niðurstaðan
að stefna SA og Elkem Ísland, en
því síðara einungis til málamynda.
„Elkem mun bara mæta fyrir Fé-
lagsdóm og segja að þeir séu sam-
mála VLFA um þetta valfrelsi, að
við séum búin að semja svona. SA,
sem fara í raun og veru með samn-
ingsumboðið fyrir Elkem, segja að
þau geti ekki samið svona við
VLFA vegna þess að þau telja sig
þurfa að semja við ASÍ. Þannig að
við stefnum í raun og veru Sam-
tökum atvinnulífsins og Elkem
svona til málamynda, en þeir munu
ekki taka afstöðu til málsins að öðru
leyti en því að þeir eru bara sam-
mála þessum samningi,“ segir Vil-
hjálmur.
Hann segist bjartsýnn á að
VLFA vinni málið í Félagsdómi
enda séu lögin þeirra megin.
VLFA fer gegn ASÍ fyrir Félagsdómi
- Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir ASÍ leggjast gegn auknu valfrelsi félagsmanna í
lífeyrismálum - Ætlar að stefna SA og Elkem fyrir Félagsdóm til að skera úr um ágreininginn
Vilhjálmur
Birgisson
Malbikunarframkvæmdir eru
komnar á fullt og var byrjað að
malbika Kringlumýrarbraut í
gærmorgun. Það geta myndast
miklar umferðarteppur við fram-
kvæmdirnar eins og íbúar Kóra-
hverfisins í Kópavogi fundu fyrir
í gær.
Í sumar ætti þó malbikun að
hafa minni áhrif en oft áður þar
sem tiltölulega fáar af stærri
götum borgarinnar þarfnast
malbikunar, segir í tilkynningu
frá gatnadeild Reykjavíkur-
borgar.
Áætlað er að malbikun ljúki í
september. Í sumar er áætlað að
malbikað verði fyrir 1,1 milljarð
króna en til samanburðar var
malbikað fyrir tæpan milljarð
króna í fyrra. logis@mbl.is
Minni áhrif
frá malbik-
un en áður
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
ÍL-sjóður, sem tók við réttindum og
skyldum Íbúðalánasjóðs, var í gær
sýknaður af fullskipuðum Hæstarétti
af kröfum lántaka sem kröfðust end-
urgreiðslu uppgreiðslugjalds. Hér-
aðsdómur taldi í lok síðasta árs að
uppgreiðslugjöld ÍL-sjóðs hefðu ver-
ið ólögmæt. Hefði Hæstiréttur stað-
fest þann dóm hefði það haft umtals-
verð áhrif á ÍL-sjóð og kostnaðurinn
getað hlaupið á tugum milljarða.
Hjón sem vildu endurfjármagna 40
ára lán sitt hjá ÍL-sjóði voru krafin
um 16% af uppgreiðsluverðmæti
lánsins sem var tekið árið 2008. Há-
marksuppgreiðslugjald á Íslandi hef-
ur verið 1% frá 2013. Hæstiréttur
féllst á með ÍL-sjóði að hjónin hefðu
með fullnægjandi og bindandi hætti
afsalað sér rétti til uppgreiðslu láns-
ins án þóknunar þegar þau undirrit-
uðu veðbréf með þeim skilmálum. Þá
taldi dómurinn að reglugerð sem ÍL-
sjóður byggði uppgreiðslugjaldtök-
una á hefði fullnægjandi lagastoð. Í
öðru máli sem einnig varðaði upp-
greiðslugjald ÍL-sjóðs var héraðs-
dómur ómerktur og málinu vísað aft-
ur í hérað vegna skorts á
rökstuðningi héraðsdóms. Málið
snerist líkt og hitt málið um upp-
greiðsluþóknun á 40 ára húsnæðisláni
sem hjón höfðu tekið hjá ÍL-sjóði árið
2008. Hæstiréttur taldi héraðsdóm
réttilega hafa komist að þeirri nið-
urstöðu að í veðbréfi vegna lánsins
hefði ekki verið gætt fyrirmæla um
að tilgreina hvernig uppgreiðslugjald
skyldi reiknað út. Hins vegar taldi
Hæstiréttur að héraðsdómur hefði
átt að taka rökstudda afstöðu til þess
hvort og þá á hvaða grundvelli ágall-
inn leiddi til þess að ráðstöfunin hefði
verið ógild og að fallast bæri á kröfur
hjónanna.
Uppgreiðslumál
féll ÍL-sjóði í vil
Morgunblaðið/Eggert
Hæstiréttur Íslands Sneri við nið-
urstöðu héraðsdóms í öðru málinu.
- Héraðsdómur
ómerktur - ÍL-
sjóður sýknaður
Benedikt Jóhannessyni fyrrverandi
formanni Viðreisnar og Þorgerði
Katrínu Gunnarsdóttir núverandi
formanni flokksins ber ekki saman
um hvort Benedikt hafi hafnað því
að taka 2. sæti á lista flokksins að
boði uppstillingarnefndar. Í síðustu
viku greindi Benedikt frá því að
honum hefði verið boðið neðsta
sæti á lista Viðreisnar, en hann
sóttist eftir oddvitasæti í kjördæmi
á höfuðborgarsvæðinu. Þorgerður
sagði í samtali við mbl.is í gær að
Benedikt hefði verið boðið annað
sætið á lista flokksins en hafnað
því. Benedikt greindi í kjölfarið frá
því að hann hefði þvert á móti fall-
ist á að taka 2. sæti á lista, en þótt
eðlilegt að beðist yrði afsökunar á
upphaflegri ákvörðun uppstilling-
arnefndar um að bjóða honum
neðsta sæti lista til þess að leggja
grunn að góðu samstarfi. Þorgerð-
ur hafi hins vegar svarað því að
slík afsökunarbeiðni væri ekki í
boði.
Benedikt
Jóhannesson
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
Viðreisnarfólk
ósammála um hver
hafnaði hverju