Morgunblaðið - 28.05.2021, Page 11

Morgunblaðið - 28.05.2021, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 2021 Mörkin 6 - 108 Rvk. s:781-5100 Opið: 11-18 virka daga og 11-15 laugardaga www.spennandi-fashion.is LURDES BERGADA FRÁ BARCELONA arfsmannafatnaður rir hótel og veitingahús Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | www.eddaehf.is Hótelrúmföt kristin@run.is | Starfsmannafatnaður thorhildur@run.is Eigum allt fyrir: • Þjóninn • Kokkinn • Gestamóttökuna • Þernuna • Hótelstjórnandann Hótelrúmföt Sérhæfum okkur í sölu á rúmfatnaði og öðru líni fyrir hótel Njótum sumarsins Fyrir veisluna Bæjarlind 6 | Sími 554 7030 | Við erum á facebook Kjóll kr. 9.500 Str. S-XXL Atvinnuleysi jókst um 0,3 prósentu- stig á milli mánaða og voru u.þ.b. 17.700 einstaklingar atvinnulausir síðastliðinn apríl, sem jafngildir um 8,6% árstíðaleiðréttu atvinnuleysi. Til samanburðar var atvinnuleysið 8,3% í mars. Þetta kemur fram í vinnumarkaðskönnun Hagstofu Ís- lands. Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 78,1% til samanburðar við mars síðastliðinn en þá var atvinnuþátt- taka 78,7% og má því sjá að atvinnu- þátttaka dróst saman um 0,6 pró- sentustig á milli mánaða. Atvinnuleysi jókst um 2,8 pró- sentustig á milli ára og hefur at- vinnulausum fjölgað um 6.900 manns á meðan atvinnuþátttaka hefur auk- ist um 5 prósentustig á milli ára. Það er áætlað að um það bil 206 þúsund manns, á aldrinum 16-74 ára, hafi verið á vinnumarkaði og þar af eru 184 þúsund manns starfandi og um það bil 22.000 atvinnulausir en í at- vinnuleit. Áætlað er að atvinnuleysi hjá ungu fólki, á aldrinum 16-24 ára, sé um 36,6% og hefur það ekki verið meira síðan maí árið 2010 þegar at- vinnuleysi var 37,1%. Yfirleitt er at- vinnuleysi hjá ungu fólki mest í maí þar sem námsmenn fara þá að leita að sumarstarfi. Atvinnuleysi er mun meira hjá ungu fólki en það var á síð- asta ári. logis@mbl.is Atvinnuleysi jókst í apríl - Atvinnuleysi á landinu fór í í 8,6% í apríl samkvæmt könn- un Hagstofunnar - Það mesta hjá ungu fólki síðan árið 2010 Tillaga að nýju rekstrarleyfi til handa Löxum fiskeldi sem Mat- vælastofnun hefur auglýst áskilur að lágmarksstærð útsettra seiða skuli vera 200 grömm. Er það í samræmi við úrskurð úrskurðarnefndar um- hverfis- og auðlindamála sem felldi úr gildi fyrra rekstrarleyfi Mast vegna þess að lágmarksstæð seiða, 56 grömm, var ekki í samræmi við áform fyrirtækisins eins og þeim var lýst í skýrslu um mat á umhverfis- áhrifum. Frestur til að skila athugasemdum er til 23. júní og eftir þann tíma hefst vinna við útgáfu rekstrarleyfis. Skal þeirri vinnu lokið innan fjögurra vikna, eða fyrir 24. júlí. Leyfið hljóðar upp á 10 þúsund tonna viðbót við þau 6 þúsund tonn sem Laxar fiskeldi er með í Reyðar- firði og á að gilda til ársins 2037. Leyfið sem var ógilt var gefið út í byrjun október. Fyrirtækið hefur fjárfest mikið til að nýta það og áformaði að hefja útsetningu stór- seiða á vormánuðum, eða seiða um 400 grömm að meðaltali. helgi@mbl.is Nýtt leyfi verði gefið út í júlí - Miðað við útsetn- ingu 200 g seiða Eggert Skúlason eggertskula@mbl.is „Mér finnst þetta grimmt, mjög grimmt,“ segir Sigmundur Þór Árna- son, bróðir ósakhæfs manns sem vist- aður er á réttargeðdeildinni á Kleppi. Sigmundur segir bróður sinn hafa sætt hörðum refsingum og gagnrýnir starfshætti stofnunarinnar. Sigmundur ræddi við Eggert Skúlason í þættinum Dagmál, sem birtist í dag og er opinn áskrifendum Morgunblaðsins. Hann segir að bróðir sinn hafi ver- ið sviptur allri afþreyingu og ein- angraður í upp undir ár. Þetta gerð- ist í kjölfar þess að hann réðst á geðlækni inni á Kleppi og reyndi að kyrkja hann. Hann var þá kærður fyrir morðtilraun en er sem áður ósakhæfur. Starfsmenn á Kleppi hafi neitað því að um refsingu hafi verið að ræða. Vistaður eftir að hafa orðið manni að bana Bróðir Sigmundar var upphaf- lega vistaður á réttargeðdeild Klepps eftir að hafa orðið manni að bana. Sigmundur segir að bróðir sinn hafi verið mjög veikur frá því hann greindist með geðklofa fyrir 20 árum. Hann hafi síðast átt eðli- legt samtal við bróður sinn á ung- lingsárum. Í hans tilfelli fylgir sjúk- dómnum ofbeldishneigð. Bróðir hans hafi í fyrsta sinn náð bata er hann fór inn á réttar- geðdeildina fyrir nokkrum árum og fékk lyf. Hann hafi byrjað að byggja aftur upp tengsl við fjölskyldu- meðlimi, en hann hafði einangrað sig meðan á veikindunum stóð. Stuttu fyrir fyrrnefnda morð- tilraun á Kleppi hafi bróðir hans hins vegar hætt að fá lyfin sín. Sig- mundur telur að starfsfólk hafi verið að athuga hvort hann þyldi annars konar lyf, töflur í stað sprautna. Augljóst hafi verið að bróðir hans væri í geðrofi og hann hafi varað starfsfólkið við. Hafi framkallað geðrof Sigmundur segir ósanngjarnt að bróður sínum sé refsað vegna þess sem hann telur vera mistök af hálfu Klepps. „Stofnunin sem hann er vistaður á vegna þess að hann er ósakhæfur kærir hann fyrir morð- tilraun sem er vegna geðrofs sem þau framkalla,“ segir Sigmundur. „Mér finnst það bara mjög grimmt.“ Dagmál Sigmundur Þór Árnason ræðir við Eggert Skúlason í þættinum. „Mér finnst þetta grimmt“ - Gagnrýnir starfshætti Klepps

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.