Morgunblaðið - 28.05.2021, Síða 20

Morgunblaðið - 28.05.2021, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 2021 Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Þegar seðlabankastjóri skrifar bók liggur beinast við að hugsa sem svo, að efni hennar hafi með efnahag landsins að gera, vaxtaþróun, stöðu gjaldmiðilsins eða hvers konar hag- stjórn sigli landinu áfallaminnst um öldudal kórónufaraldursins.“ Með þessum orðum hefst umfjöll- un norska rithöfundarins Knut Ødegård í kristilega dagblaðinu Vårt Land um bók Ásgeirs Jóns- sonar seðlabankastjóra, Uppreisn Jóns Arasonar, sem hann gaf út fyrir jólin. Ødegård er mikill Íslandsvinur og hefur um áratuga skeið búið jöfnum höndum á Íslandi sem í Noregi. Hann hefur þýtt fjölda ís- lenskra skáldverka, þar á meðal leikrita, á norsku, stóð að stofnun Listvinafélags Hallgrímskirkju ásamt Herði Áskelssyni árið 1982, en gegndi auk þess forstöðu- mennsku Norræna hússins árin 1984-’89. Ødegård var sæmdur stórriddarakrossi fálkaorðunnar árið 1993 fyrir framlag sitt til efl- ingar menningartengslum milli Ís- lands og Noregs en hafði áður hlotið riddarakross hennar árið 1987. Tengist norskri kirkjusögu Heldur Ødegård áfram í inngangi greinar sinnar og kveður Ísland ólíkt öðrum löndum. Gildi þau ólík- indi engu síður um seðlabankastjór- ann íslenska, sem í fyrra hafi sent frá sér bók um Jón Arason, síðasta kaþólska biskup Íslendinga. Ekki um vaxtaþróun eða hagstjórn á kór- ónutímum sem sagt. Í bók sinni fari Ásgeir 500 ár aft- ur í tímann, til siðaskipta 16. aldar og biskupsins, sem tekinn var af lífi með sjö axarhöggum árið 1550, en skrif Ødegårds bera einmitt yfir- skriftina Biskupinn sem var líflátinn með sjö axarhöggum. Hann segir bók Ásgeirs tengjast norskri kirkju- sögu órofa böndum, enda hafi Ís- land heyrt undir kirkjuumdæmi Niðaróss í Noregi þar sem erkibisk- upsstóll var á miðöldum. „Við skrifum gjarnan að kaþ- ólskur siður hafi verið aflagður hjá okkur með siðaskiptunum árið 1537. Á Íslandi var átökunum ekki lokið fyrr en 1550,“ skrifar Ødegård og segir allrar athygli vert að lesa þennan hluta siðaskiptasögunnar með augum hagfræðings, sem með- al annars hafi rannsakað íslenskt hagkerfi tímabilið 1400 til 1600, ver- ið dósent í hagfræði og stýri nú seðlabanka landsins. Ásgeir beini sjónum að þáttum í siðaskiptunum á Íslandi sem ekki blasi við af því sem sagan almennt segir af uppgjöri kaþólsks og lútersks siðar. Lítil borg og fjarlæg „Ísland hafði fylgt með Noregi inn í Kalmarsambandið og þar með inn í það sem síðar urðu dönsk yfir- ráð. Í raun stýrðu þýskir kaupmenn þó landinu. Margar þjóðir stunduðu fiskveiðar og verslun við Ísland án þess að Danir fengju rönd við reist. Kaupmannahöfn var lítil borg og fjarlæg. Þannig var ástandið fram yfir 1540,“ skrifar Ødegård. Hann segir enga ástæðu til að draga það í efa að fyrir Jóni Ara- syni biskupi hafi vakað að verja kaþólsku kirkjuna með kjafti og klóm þegar hann bauð Kristjáni þriðja Danakonungi og lúterstrúnni birginn. Undir niðri hafi þó bar- áttan um völd og eignir kraumað. Auk þess að ætla sér af sannfær- ingu að vinna lúterskunni braut- argengi hafi enn fremur vakað fyrir Kristjáni konungi sú ætlan að fjár- magna rekstur Danmerkur sem staðið hafi höllum fæti. „Þarna berst okkur kærkomin aðstoð hagfræðingsins til að koma auga á að minnsta kosti hluta af heildarmynd þess pólitíska, trúar- lega og efnahagslega ástands sem ríkjandi var á umbrotatímabili í Evrópu […] Konungur heldur sér til hlés í sjö ár, allt þar til Jón gerir uppreisn gegn konungi og lúterstrú árið 1548,“ skrifar Ødegård og vísar til bréfs Jóns Arasonar frá 21. apríl það ár, þar sem hann tekur sér erkibiskupsvald yfir Íslandi. Í kjöl- farið hafi komið til þeirra væringa sem lauk með aftöku Jóns og sona hans í Skálholti rúmum tveimur ár- um síðar. Biskup í eldlínunni „Ásgeir Jónsson teiknar upp vef af pólitískum og fjárhagslegum hagsmunum og blekkingum í kring- um sögu Jóns biskups og varn- arbaráttu hans fyrir biskupsstólinn á Hólum og kaþólska trú. Ísland heyrði undir Kaupmannahöfn, en hin lúterska Hamborg var enn þá rammasta erlenda aflið á Íslandi. Innanlands geisa átök um eignir þar sem Jón biskup er í eldlínunni. Hann var ekki líflátinn fyrir trú sína, heldur fyrir að óhlýðnast kon- ungi og reyna að hrifsa Ísland úr greipum dansks konungsvalds. Hve traust sambönd Jón hafði er- lendis er vafamál, en til er bréf frá páfanum frá 1549 þar sem páfi hvetur biskup til að halda bisk- upsdæminu kaþólsku. Einnig er sennilegt að Jón hafi haft tengsl við Karl V. Þýskalandskeisara sem var voldugasti verndari kaþólskrar trú- ar í Evrópu,“ skrifar Ødegård. Síðasti kaþólski biskupinn á Ís- landi hafi síður en svo verið svarinn andstæðingur kenningar Marteins Lúters. Þvert á móti hafi þeir Jón báðir verið þeirrar skoðunar að al- menningur skyldi geta nálgast guðs orð á sínu tungumáli. Jón hafi verið íslenskumaður góður og flutt til landsins fyrstu prentsmiðjuna þar sem hann hafi líklega látið prenta þýddar bækur þótt ekki sé hægt að fullyrða um það, þar sem af því prentverki varðveittist hvorki tang- ur né tetur. Ljósið slokknaði ekki Klykkir Ødegård út með því að spyrja hvort Jón Arason biskup hafi verið píslarvottur eða valdsmaður. Líkast til hafi hann verið hvort tveggja, þótt ekki teljist hann píslarvottur í kirkjulegum skilningi þrátt fyrir tilraunir í þá veru að leiða fram jarteikn þar um. Með því vísar Ødegård í söguna af Jóni bisk- upi Vigfússyni á Hólum sem gekk umhverfis kirkjuna með logandi kerti í aftakaveðri árið 1674 og sagði það sönnun þess, að Jón Ara- son og synir hans hefðu verið teknir af lífi saklausir, kæmist hann hring- inn um kirkjuna með kertið logandi. „Ljósið slokknaði ekki, það lifði í storminum og regninu,“ lýkur Øde- gård máli sínu um Jón biskup Ara- son og skrif seðlabankastjóra um uppreisn hans og örlög. Kærkomin aðstoð hagfræðings - Knut Ødegård skrifar um bók Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra - Tengist norskri kirkjusögu órofa böndum - Dregur upp vef fjárhagslegra hagsmuna og blekkinga á umbrotatímum í Evrópu Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Aldarspegill Knut Ødegård, rithöfundur og Íslandsvinur mikill, segir seðlabankastjóra beina sjónum að þáttum í siðaskiptunum á Íslandi sem ekki blasi við af því sem sagan almennt segir okkur af Jóni Arasyni og hildi hans. Nýjar reglur um samkomutakmark- anir gera nú mögulegt að opna þing- palla Alþingis að nýju. Þetta upp- lýsti Steingrímur J. Sigfússon þingforseti við uppahaf þingfundar á miðvikudaginn. Þingpallarnir hafa verið lokaðir í rúmlega ár, eða frá 12. mars á síð- asta ári. Á þeim tíma hafa gestir ekki mátt koma í Alþingishúsið vegna kórónuveirufaraldursins. Fyrst um sinn verður þó einungis hægt að taka á móti tíu manns í einu og verða allir að nota grímur. Alla- jafna eru þingpallar öllum opnir á meðan þingfundur stendur og á meðan húsrúm leyfir. Þingfundir samkvæmt starfsáætlun eru mánu- daga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga og hefjast þeir kl. 13. Þingpallarnir eru á þriðju hæð Al- þingishússins og er gengið inn frá Templarasundi. Vegna nýrra reglna hefur verið aflétt ýmsum hömlum sem gilt hafa í þingsalnum sjálfum. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Alþingi Nú getur almenningur á ný fylgst með þingstörfum af pöllum Al- þingis. Aðeins geta 10 manns verið þar í einu og skylda er að bera grímu. Almenningi hleypt á þingpalla að nýju ÚTSKRIFTARGJÖF Með Óskaskríni gefurðu upplifanir í stað hluta og það sem meira er, þú gefur viðtakandanum færi á að velja sína uppáhalds upplifun úr fjölda freistandi möguleika sem leynast í hverju boxi. Óskaskrínin eru á mismunandi verði og höfða til fjölbreytilegs smekks og ólíkra áhugasviða viðtakenda. UPPLIFUN ÍGEFÐU 577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.