Morgunblaðið - 28.05.2021, Síða 26

Morgunblaðið - 28.05.2021, Síða 26
26 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 2021 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Í apríl síðastliðnum var opnuð ný mathöll í Borgartúni og ber hún yfirskriftina Borg29. Bættist hún í hóp þriggja mathalla sem starfrækt- ar eru í Reykjavík. Þannig opnaði Hlemmur mathöll dyr sínar fyrir viðskiptavinum sínum í ágúst 2017, Grandi mathöll í júní 2018 og Mathöll Höfða í mars 2019. Miðað við yfir- lýsingar sem gefnar hafa verið opinberlega má gera ráð fyrir að mathöllum í Reykjavík muni fjölga talsvert á komandi misserum. Þannig er stefnt að opnun mathallar í Pósthússtræti í desember næstkomandi og þá hafa forsvarsmenn Kringlunnar sagt að þeir ætli sér að opna eins konar mathöll á þriðju hæð verslunarmið- stöðvarinnar á árinu 2023. Sam- kvæmt kynningargögnum Austur- hafnar í miðbænum er einnig stefnt að opnun mathallar í nýbyggingunni næst Hörpu en ekki hafa verið gefn- ar upp nákvæmar tímasetningar um það hvenær af því verður. Jákvæð viðbrögð Björn Bragi Arnarsson er einn þeirra sem standa að nýjustu mat- höllinni í Borgartúni. Hann segir viðtökurnar draumi líkastar. „Það hefur verið fullt hjá okkur öll hádegi og kvöld frá því að við opnuðum. Við höfum fengið mjög já- kvæð viðbrögð frá fólki við stöðun- um, matnum og stemningunni. Markmiðið var að BORG29 yrði ekki eingöngu samansafn góðra veitingastaða heldur líka samkomu- staður, þar sem fólki þætti gott að setjast niður og eiga góða stund, og ég tel að það hafi tekist mjög vel til.“ Hann segir mathallarformið snið- ugt og það geri hópum kleift að fara saman út að borða án þes að fólk þurfi endilega að koma sér saman um hvað skuli borðað. „Í vel heppnaðri mathöll geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi.“ Hann segir einnig að fyrirkomu- lagið sé hentugt fyrir veitingamenn. „Það er heilmikil samnýting milli staða og ekki eins þungur baggi fyr- ir veitingaaðila og þegar ráðist er í að stofna nýjan stakan veitinga- stað.“ Spurður hvort ekki sé áhyggju- efni að mathallir skuli nú spretta upp hver á fætur annarri segist Björn Bragi ekki hafa áhyggjur af þróuninni, þvert á móti. „Ég er alls ekki á því að það séu að verða of margar mathallir í borg- inni, þvert á móti. Ekki frekar en að fólk myndi tala um að það væru að verða of margir veitingastaðir.“ Hann ítrekar þó að með aukinni samkeppni þurfi fólk að vera á tán- um og leita leiða til að bæta sig. „Það á líka við um mathallirnar.“ Sjö mathallir í Reykjavík Morgunblaðið/Eggert Menning Hlemmur mathöll var fyrsta höllin af þessum toga sem var opnuð en senn fjölgaði þeim og enn mun bætast í hópinn á komandi árum. - Mikil eftirspurn eftir götubita - Tvær mathallir í miðbænum á teikniborðinu - Kringlan blandar sér í samkeppnina - BORG29 fer afar vel af stað í Borgartúni Mathallir í Reykjavík Hlemmur Mathöll ÁGÚST 2017 Mathöll Höfða MARS 2019 Mathöll Pósthússtræti ÁÆTLAÐ DESEMBER 2021 Mathöll Austurhöfn ÓVÍST Borg29 mathöll APRÍL 2021 Mathöll Kringlunni ÁÆTLAÐ 2023 Kortagrunnur: OpenStreetMap Grandi Mathöll JÚNÍ 2018 Björn Bragi Arnarsson hafa miðað við útboðsgengið gert ágæt kaup. Í tilboðsbók A var útboðsgengið 58 krónur á hlut eða 11% lægra en skráð gengi bréfanna í dag. Útboðsgengi í tilboðsbók B, sem ætluð var fagfjárfestum, var 60 krónur og er það 8,7% lægra en skráð gengi bréfanna í lok fyrsta við- skiptadagsins. Í útboðinu seldu þá- verandi hluthafar félagsins 29,3% og nam söluandvirðið 29,7 milljörðum króna. Í kjölfar útboðsins voru hlut- hafar félagsins 7.000 talsins. Miðað við núverandi gengi félags- ins á markaði er það fjórða stærsta skráða félagið á markaði hér á landi. Langstærsta félagið er Marel sem einnig er skráð á markað í Hollandi. Er markaðsvirði þess ríflega 690 milljarðar króna. Næststærsta fé- lagið er Arion banki sem metinn er á ríflega 220 milljarða. Þá er Brim metið á 116 milljarða. Við lokun markaða í gær stóð markaðsvirði Síldarvinnslunnar í 111 milljörðum króna. Í júnímánði er gert ráð fyrir að Íslandsbanki verði skráður á markað og má þá slá því föstu að Síldarvinnslan verði fimmta verðmætasta félagið í Kauphöllinni nema eitthvert núverandi félaga á markaðnum hafi sætaskipti við Síld- arvinnsluna. Síldarvinnslan í Neskaupstað var tekin til viðskipta á aðalmarkaði Kauphallar Íslands í gær. Gunnþór Ingvason, forstjóri fyrirtækisins, hringdi viðskiptin inn og ólíkt því sem almennt gengur og gerist glumdi kauphallarbjallan ekki í skrifstofum Nasdaq við Laugaveg 182 heldur um borð í uppsjávarskip- inu Berki NK sem lá bundið við bryggju í Norðfjarðarhöfn. Utan höfuðborgarsvæðisins Þegar bjöllunni hafði verið hringt bauð Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland, Síldarvinnsluna velkomna á markað. Fyrirtækið er það eina utan höfuðborgarinnar sem skráð er á markað. Kauphöllin var að mestu rauðlituð í gær utan þess að Marel, Skeljung- ur og Sýn hækkuðu í verði. Bréf Síldarvinnslunnar héldu hins vegar skráningargildi sínu og stóðu í 65,2 við lokun markaða. Velta með bréf félagsins var talsverð eða 1.083 millj- ónir króna. Þeir sem tóku þátt í hlutafjár- útboði félagsins fyrr í mánuðinum Fjórða stærsta félagið í Kauphöll - Viðskipti hafin með bréf Síldarvinnsl- unnar á markaði - Milljarðs velta í gær Ljósmynd/Guðlaugur B. Birgisson Hringing Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar, var léttur í bragði þegar hann hringdi fyrirtækið inn á markað um borð í skipinu Berki NK. Fimmverðmætustu félögin íKauphöllinni Markaðsvirði í milljörðum króna Marel 691 Arion banki 222 Brim 116 Síldarvinnslan 1 1 1 Kvika 107 28. maí 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 121.27 Sterlingspund 171.77 Kanadadalur 100.31 Dönsk króna 19.944 Norsk króna 14.57 Sænsk króna 14.61 Svissn. franki 135.33 Japanskt jen 1.1137 SDR 175.32 Evra 148.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 182.4328 Hrávöruverð Gull 1904.3 ($/únsa) Ál 2341.0 ($/tonn) LME Hráolía 68.55 ($/fatið) Brent « Um 60% íslenskra fyrirtækja með fjóra starfsmenn eða fleiri eru ánægð með efnahagsaðgerðir stjórnvalda vegna kórónuveirunnar og rúmur helmingur þeirra telur sig vel í stakk búinn til þess að takast á við næstu mánuði í kjölfar faraldursins. Þetta sýnir ný könnun sem Gallup hefur gert og er þetta í fimmta sinn frá því að faraldurinn skall á sem fyrirtækið vinnur slíka könnun. Nýjasta könunin nær yfir apríl og maí. Um 16,4% svarenda sögðust mjög ánægð með efnahagsaðgerðir stjórn- valda og er það hæsta hlutfall sem mælst hefur í könnununum fimm. Fjórðungur þeirra fyrirtækja sem svöruðu spurningum Gallup þurfti að fækka starfsfólki sökum faraldursins. Helmingur fyrirtækja sem fækkað hafa starfsfólki sér fram á að fjölga því að nýju á næstu mánuðum en fjórðungur þeirra fyrirtækja sem ekki þurftu að skera niður í starfsmanna- haldi hyggst fjölga fólki á komandi mánuðum. Allir forsvarsmenn ferða- þjónustufyrirtækja sem svöruðu þurftu að fækka starfsfólki. 70% þeirra munu fjölga starfsfólki á næstu þremur mánuðum. 12,6% fyrirtækja segjast standa frekar eða mjög illa fjárhagslega til þess að glíma við komandi mánuði. 60% fyrirtækja ánægð með aðgerðirnar STUTT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.