Morgunblaðið - 28.05.2021, Síða 36

Morgunblaðið - 28.05.2021, Síða 36
36 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 2021 Nýlega synjaði sveit- arfélagið Vogar Lands- neti um fram- kvæmdaleyfi vegna Suðurnesjalínu 2 og setti með þeim hætti raforkuöryggi Suðu- nesjamanna í uppnám. Tafir á byggingu lín- unnar eru að nálgast 10 ár. Áætla má að kostn- aður þjóðfélagsins vegna tafa í uppbygg- ingu raforkuinnviða geti numið um sex milljörðum á ári að mati forstjóra Landsnets (Vísir 3.12. 2014). Kostn- aður samfélagsins af töfum á upp- byggingu Suðurnesjalínu 2 er því um- talsverður. Raforkuinnviðir eru mikilvægir hverju samfélagi. Raforka er ein grunnstoða samfélagsins og fátt ger- ist í nútímasamfélagi án raforku. Án raforku skapast ástand sam- skiptaleysis ásamt skorti á hita og ljósi og mik- ilvæg og jafnvel lífs- nauðsynleg tæki stoppa. Slíkt ástand getur ógnað þjóðaröryggi. Án raf- orku verða samfélög óvirk eins og dæmin sanna, t.d. þegar raf- magn fór af norður í landi veturinn 2019 og skip Landhelgisgæsl- unnar þurfti til að koma lágmarksraforkuöryggi til Dalvíkur. Sem betur fer urðu engin dauðsföll í það skipti en nýlegt dæmi frá Texas bendir til að raforkuskortur geti verið dauðans alvara en í febrúar á þessu ári varð þar raforkuskortur og 111 manns létu lífið. Raforkuinnviði, eins og flutnings- kerfi Landsnets, er því auðveldlega hægt að skilgreina sem hluta af þjóð- aröryggi Íslands. Slík skilgreining ætti að færa málsmeðferð opinberra aðila á uppbyggingu raforkuinnviða á annað plan og veita slíkum verk- efnum flýtimeðferð í gegnum sam- þykktarferli og verja slík verkefni fyrir árásum frá mótmælendum sem hafa fagurfræðileg gildi að leiðarljósi eða önnur álíka rök fyrir kærum sín- um til dómstóla sem geta tafið verk- efni um fjölda ára. Ísland þarf að skapa um 50.000 ný störf á næstu 10 árum. Ný störf krefj- ast raforku og erfitt að sjá hvernig skapa á ný störf án þess að framleiða meira rafmagn og tryggja flutning þess um landið án styrkra innviða. Uppbygging raforkuinnviða varðar þjóðaröryggi þessa lands og flýti- meðferð á samþykktarferli og hröð uppbygging tryggir öryggi og er þjóðhagslega hagkvæm. Raforkuinnviðir varða þjóðaröryggi Eftir Magnús Björgvin Jóhannesson Magnús Björgvin Jóhannesson » Flýtimeðferð á sam- þykktarferli og hröð uppbygging tryggir ör- yggi og er þjóðhagslega hagkvæm. Höfundur er framkvæmdastjóri Storm Orku. magnusj@stormorka.is Formaður Veiði- félags Árnesinga dreifði fundarboði á haustdögum, pestin frestaði fundi. Frestur skyldi vera stuttur. Tillaga stjórnar gerir ráð fyrir nýrri nýting- aráætlun á veiðisvæði sem aldrei hefur haft nýtingaráætlun, fækka sem mest stöngum á viður- kenndum svæðum í jökulvatninu og raða þeim sem eftir eru á óreynd svæði þar sem áhuginn er sem minnstur. Á meðfylgjandi mynd ræða miklir sómamenn við ráðherra, svipurinn segir allt sem segja þarf. Þarna sáu allir í hvað stefndi og mátti enn bregðast við. Í nefndu fundarboði reyna núver- andi stjórnarliðar að boða friðun en forðast umræðu um netaveiðar sem nú sem fyrr er heilög rányrkja eins og fram kom í viðbrögðum ráðherra á sínum tíma, endalausum útúrsnún- ingum og heiftarlegri árás á Land- samtök stangveiði- félaga og þá fyrst og fremst formann þeirra. Fyrrverandi formaður Veiðifélags Árnesinga gerði fulla grein fyrir sjálfum sér í mikilli æs- ingaræðu á aðalfundi árið eftir. Þar taldi hann upp nefnda prýð- ismenn og hótaði þeim hefndum. Þar talaði ný- ráðinn mannréttinda- dómari sem Ísland hafði ráðið til starfa. Undirritaður fékk sinn skammt af svívirðingum og hótunum og hefur ekkert lát orðið þar á. Undirritaður hefur krafist nýrrar arðskrár fyrir Veiðifélag Árnesinga og málinu verður haldið áfram. Endurupptaka á baráttumáli á friðun á laxi Eftir Hreggvið Hermannsson Hreggviður Hermannsson » Þar taldi hann upp nefnda prýðis- menn og hótaði þeim hefndum. Höfundur er félagsmaður og veiði- réttareigandi í Veiðifélagi Árnesinga. Þegar glíman við Covid-19 stóð sem hæst skorti sjúkraliða í fram- línu. Ég tók þátt í því með heilbrigðis- ráðherra og öðru for- ystufólki í heilbrigð- isgeiranum að skora á þá sem mögulega gætu að skrá sig í sveit bakv- arða. Mér fannst líka rétt að ég sem formað- ur sjúkraliða byði mig sjálf fram til starfa sem ég bað aðra sjúkraliða að sinna. Ég skráði mig því sem bakvörð og var kölluð til starfa á Covid-deild Landspítalans. Dýrmæt lífsreynsla Starfið í framlínu varð mér dýr- mæt lífsreynsla. Það veitti einstaka innsýn í álagið sem fylgdi því að vinna með Covid-smituðum. Ég fylltist aðdáun á hvern- ig allt gekk eins og smurð vél. Allir unnu sem einn maður og fag- leg landamæri brustu. Fórnfýsin og æðruleys- ið var einstakt. Ég varð stolt af mínu fólki, sjúkraliðunum. Hjúkr- unarfræðingar, læknar og aðrir í framlínunni stóðu sig ekki síður vel. Álagið birtist í margvíslegum myndum. Við sem hjúkruðum smit- uðum urðum öll að vera í mjög óþægi- legum hlífðarfatnaði. Þeir voru ekki síður erfiðir fyrir sjúklingana. Milli sjúkraliða, sem sinna nærhjúkrun, og sjúklinganna okkar myndast oft sér- stök nánd, sem er gefandi og mikil- væg fyrir hvora tveggja. Þessi nánd hvarf þegar ekki var lengur hægt að veita tilfinningaríka hvatningu eða huggun við umönnun þegar ekki sést í andlit okkar. Félagsleg einangrun framlínunnar Sjálft bjó framlínufólkið við stöð- ugan ótta um mögulegt smit. Það ótt- aðist að bera smit inn á deildina, inn á heimili sín eða smita samstarfsfélaga. Margir fóru því í sjálfskipaða sóttkví milli vakta, beinlínis til að draga úr líkum á að bera smit inn í spítalann. Þegar upp kom smit meðal starfs- fólks á deildinni var gripið til viðeig- andi ráðstafana. Samstarfsfélagarnir gistu þá á hóteli á milli vakta ef fjöl- skylduaðstæður leyfðu ekki ein- angrun eða sóttkví á heimili. Í mörgum tilvikum skar fólk í framlínu á öll félagsleg tengsl fyrir utan nánustu fjölskyldu. Stundum líka við hana þegar starfsfólk flutti að heiman og aðlagaði fjölskyldulífið þörfum spítalans. Álag af þessu tagi er ekki hægt að skynja nema upplifa á eigin skinni. Áhrif þess voru miklu meiri en ég átti von á. Kulnun Þótt öll teikn séu nú um að Cov- id-19 sé á undanhaldi í heiminum, og sérstaklega hér á Íslandi, hefur veir- an gengið nógu lengi til að fyrir liggja margvíslegar rannsóknir á afleið- ingum hennar. Þar á meðal því sem kalla má félagslegar og andlegar af- leiðingar fyrir þau sem verið hafa lengi í framlínu. Niðurstöðurnar benda til að álagið sem fylgir störfum í framlínu geti brotist út löngu síðar með marg- víslegu móti. Fólk sem misserum saman hefur borið mikla ábyrgð og staðið í löngum stormi getur örmagn- ast andlega. Það birtist í síþreytu og sleni, depurð og að lokum kulnun í starfi. Þetta þurfum við að hafa í huga gagnvart okkar einstaka fram- línufólki; sjúkraliðum, hjúkrunar- fræðingum, læknum og öðrum. Eftirlit og úrræði Það er ekki nóg að stéttarfélögin eða BSRB bjóði upp á úrræði fyrir þau sem telja sig þurfa á aðstoð að halda. Mörg dæmi eru um að fólk geri sér ekki sjálft grein fyrir þegar það er að lenda í ógöngum og læsist í ferli sem getur leitt til kulnunar í starfi. Heilbrigðiskerfið sjálft þarf því að hafa virkt eftirlit með því starfsfólki sem mest mæddi á í framlínu. Kerfið á að leita uppi framlínufólk sem er í hættu og bjóða upp á viðeigandi úr- ræði áður en það er um seinan. Þjóðin á því skuld að gjalda. Skilaboð frá bakverði Eftir Söndru B. Franks »Kerfið á að leita uppi framlínufólk sem er í hættu og bjóða upp á viðeigandi úrræði áður en það er um seinan. Sandra B. Franks Höfundur er formaður Sjúkraliða- félags Íslands. sandra@slfi.is Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.