Morgunblaðið - 28.05.2021, Side 43

Morgunblaðið - 28.05.2021, Side 43
MINNINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 2021 ✝ Anna Jensína Olsen fæddist á Klöpp í Reyðarfirði 7. október 1926. Hún lést á Vífilsstöðum 20. maí 2021. Foreldrar hennar voru Guðlaug Þór- unn Björnsdóttir, f. 4.9. 1896, d. 3.10. 1982, og Stefán J. Olsen, f. 25.7. 1894, d. 26.2. 1968. Bræð- ur hennar voru Björn, f. 1928, d. 1982, Borgþór, f. 1929, og Ásgeir, Þórisdóttir. Börn þeirra eru Hera Mist og Alexander Freyr. b) Thelma Rán. Maki Brynjar Örn Sigurdórsson. Barn hennar er Gunnar. c) Aron Mímir. 2) Snorri, f. 17.11. 1958, maki Birna Ingv- arsdóttir. Börn þeirra: a) Halldór. Maki Gréta Þórsdóttir Björnsson og eiga þau Snorra Þór og Sindra Þey. b) Eyþór, maki Kristín Þrast- ardóttir og eiga þau Berg Loga og Kára Jökul. c) Snædís, maki Jan Rode Harpot Hansen. Eiga þau Freyju. 3) Stefán, f. 27.1. 1961, maki Signhild Birna Borgþórs- dóttir. Börn þeirra: a) Borgþór. Sambýliskona: Dagmar Una Ólafs- dóttir. b) Anna Ósk. Maki Garðar Sigurjónsson. Útför Önnu verður gerð frá Langholtskirkju í dag, 28. maí 2021, og hefst athöfnin klukkan 13. f. 1933, d. 2009. Anna giftist hinn 26.5. 1950 Halldóri Snorrasyni. For- eldrar hans voru Sigrún Halldórs- dóttir og Snorri Þór- ólfsson frá Húsey í Hróarstungu. Börn Önnu og Halldórs eru: 1) Sigrún, f. 13.9. 1957, maki Gylfi Bjarnason (slitu samvistir). Börn þeirra eru: a) Halldór Daði. Maki Birna Ósk Okkur langar í örfáum orðum að minnast elsku Önnu ömmu. Dyrnar hjá ömmu og afa stóðu alltaf opnar. Við vorum svo hepp- in að hafa alist upp nálægt þeim í Vogahverfinu og heimsóttum við þau í tíma og ótíma. Það var alltaf tekið vel á móti okkur í Eikjuvog- inum og alltaf eitthvert góðgæti á boðstólum, sama hvort við vorum ein á ferð eða í hjólatúr með vin- um okkar. Við gleymum aldrei hveitiskúffunni hennar ömmu sem mátti einnig nota sem hálf- gerðan sandkassa þar sem við fengum að leika okkur með hveit- ið. Okkur þykir vænt um allar ferðirnar í Hvalfjörðinn þar sem amma og afi áttu sumarbústað niðri við sjó og við brösuðum margt. Amma var alltaf til staðar fyrir okkur en leyfði okkur líka að styðja hana þegar hún þarfnaðist þess. Hún var sterk og ákveðin kona en ófeimin við að segja hvernig henni leið og sýna tilfinn- ingar. Hún hafði að okkur fannst oft og tíðum takmarkalausa þol- inmæði fyrir því þegar við krakk- arnir lékum með skartgripina hennar eða nýttum allt færanlegt á heimili þeirra afa til að byggja kastala og skip. Hún gat líka set- ið með okkur löngum stundum að leggja kapal, spila ólsen-ólsen, manna eða lönguvitleysu. Þegar við vorum yngri fann amma oft upp á einhverju til að hafa ofan af fyrir okkur, eins og þegar hún kenndi Snædísi að dansa Óla skans sem endaði þó með því að amma hrasaði um þröskuld og lærbrotnaði. Amma var mikill húmoristi og tók þátt í flestu gríni. Þrátt fyrir að hún léti oft eins og sér þætti grínið ekki fyndið þá átti hún erfitt með að fela brosið sem oftar en ekki end- aði með hlátri og gleði. Ömmu leiddist ekki að segja frá liðnum tímum og sagði okkur gjarnan frá því hvernig lífið var í „gamla daga“ og það kom okkur oft á óvart hve vel hún mundi hvert einasta smáatriði. En oft kom hún okkur einnig á óvart með þekkingu sinni á málefnum líðandi stundar sem og vilja hennar og getu til að læra á hin ýmsu tæki, eins og þegar hún lærði á spjaldtölvu 93 ára gömul. Við kveðjum elsku bestu ömmu með söknuði og þakklæti fyrir allar ljúfu stundirnar sem við áttum með henni. Halldór, Eyþór og Snædís. „Að leiðarlokum er okkur ljúft að minnast tengdamóður okkar og er óendanlegt þakklæti efst í huga okkar fyrir að hafa átt svo einstaklega góða tengdamóður. Hún varð samofin lífi okkar og síðar fjölskyldna okkar í tæp 40 ár. Hún var stoð okkar og stytta og gaf einatt góð ráð og var boðin og búin að aðstoða ef þörf var á. Hún hélt fjölskyldunni þétt sam- an, dugleg að bjóða okkur öllum í mat og sóttu barnabörnin mikið í að heimsækja og dvelja hjá ömmu og afa. Tengdamamma var afskaplega vin- og ættrækin og minnug á nöfn allra og þeirra niðja einnig. Hún var afar mynd- arleg húsmóðir og þau tengda- pabbi áttu fallegt og hlýlegt heimili, lengst af í Eikjuvogi 19 og síðar að Kleppsvegi 62 í Reykjavík. Það var gestkvæmt hjá þeim og þar var öllum tekið opnum örmum. Eftir andlát tengdapabba bjó hún áfram á Kleppsveginum og þá hófst nýr kafli í lífi hennar. Hún eignaðist margar afskaplega góðar vinkon- ur í húsinu. Þær héldu vel saman og voru duglegar að hittast og litu til hver með annarri. Það verður seint fullþakkað. Það var gott að fá að vera hjá tengda- mömmu þegar hún kvaddi þetta jarðlíf á sólríkum fallegum maí- morgni, tuttugasta þessa mánað- ar, södd lífdaga, 94 ára gömul. Andlát hennar var friðsamt og fallegt eins og hún sjálf var. Hún hélt andlegri reisn, góðri heyrn og sjón til dauðadags. Hún var sérlega vin- og ættrækin, minnug á menn og málefni. Dásamleg kona er gengin og falleg lífs- ganga að baki. Blessuð veri minn- ing hennar með einlægri þökk fyrir yndislega samfylgd sem aldrei bar skugga á. Hinsta kveðja frá tengdadætr- um. Birna Ingvarsdóttir, Signhild Birna Borg- þórsdóttir. Anna Jensína Olsen ✝ Garðar Smári Ómarsson fæddist í Reykjavík 3. febrúar 1989. Hann lést á heimili sínu 16. maí 2021. Foreldrar hans eru Ómar Bjarni Þorsteinsson, f. 26. apríl 1959, og Þóra Björk Harðardóttir, f. 1. júlí 1961. Garðar eignaðist son sinn Ómar Alex 4. ágúst 2012. Barnsmóðir hans er Guðný Klara Guðmundsdóttir. Systkini Garðars eru: 1) Magn- ús Valur Ómarsson. Eiginkona diplómu í kerfisstjórn árið 2018 og stundaði síðar nám í netstjórn. Hann hafði áhuga á tölvum og tækninýjungum og var alltaf reiðubúinn að veita hjálp ef á þurfti að halda. Garðar var fróðleiksfús og hægt að ræða við hann um allt milli himins og jarðar. Um þau málefni sem hann hafði áhuga á var hann almennt mjög vel upp- lýstur og sköpuðust oft skemmti- legar umræður. Hann lagði mikið upp úr því að eiga gott samband við strákinn sinn og voru þeir mjög nánir. Hann átti einstakt samband við frændsystkin sín og uppáhalds- frændi var virðingartitill í hans augum. Garðar var með stórt hjarta, hann var trúr og tryggur þeim sem honum þótti vænt um. Útförin fer fram í Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 28. maí 2021, klukkan 15. hans er Ragnheiður Blöndal. Börn þeirra: Benedikt Þór og Þröstur Már. 2) Edda Ásgerður Skúladóttir. Maður hennar er Steindór Arnar Jónsson. Börn þeirra eru: Jón Valur og Matt- hildur Þóra. 3) Unn- ur Dögg Ómars- dóttir. Maður hennar er Frímann Haukdal. Börn þeirra eru: Einar Már og Jóhann Bjarni. Garðar útskrifaðist frá Nýja tölvu- og viðskiptaskólanum með Elsku drengurinn minn, með brostið hjarta af söknuði og sorg rita ég mín hinstu orð til þín. Ég er þakklát fyrir að hafa haft þig í lífi mínu. Ég minnist þegar ég fékk þig í fangið mitt nýfæddan og hjarta mitt fylltist af ást. Þú varst mömmudrengur alltaf og við vor- um mjög náin og næm hvort á annað. Þú hafðir rosa stórt hjarta og vildir hjálpa öllum, þú elskaðir lífið og áttir stóra drauma. Það fer svo ótalmargt um hugann þegar ég hugsa um mannkosti þína, ég sé ekkert sem er neikvætt því þú fannst þér leið í hjarta fólks og það gat ekki annað en elskað þig. En þú tapaðir slagnum við fíkn- isjúkdóm sem tekur allt of mörg af okkar ungmennum. Ég veit að þú fylgist með okkur og þú lifir að eilífu í hjörtum okkar og sonar þíns, sem og systkina og frændsystkina sem syrgja frænd- ann sem gaf þeim allan sinn tíma. Þú elsku barnið mitt með fal- legu sálina, takk. Mamma og pabbi elska þig. Þóra Björk Harðardóttir og Ómar Bjarni Þorsteinsson. Elsku Garðar Smári bróðir, takk fyrir allar ógleymanlegu stundirnar í gegnum árin. Þín verður sárt saknað hér á Blöndu- ósi, þar sem þú bjóst hjá okkur tvisvar sinnum á þinni ævi til að ná áttum í lífinu. Eins og þér var einum lagið vafðir þú öllu heim- ilisfólkinu um fingur þér með góðri nærveru og væntumþykju í garð okkar sem hér búa. Við bræður vorum góðir vinir og gátum talað með virðingu hvor við annan um alla mögulega hluti. Ég tók hlutverk mitt sem stóri bróðir alvarlega og var að reyna að innræta þér að vakna á morgn- ana, mæta í vinnu og reyna að gleyma vandamálum heimsins í vinnunni, bara einbeita sér að einu í einu. Sumar lexíur gekk betur að læra af stóra bróður en aðrar. Ég væri að ljúga ef ég segði að þú hefðir ekki kennt mér eitthvað líka á lífið. Þú tókst tíma í að hugsa um fólk í kringum þig og skammaðir mig fyrir að vera of strangur við strákana mína og sagðir stundum: „Varst þú eitt- hvað skárri?“ Ég hlustaði á þig því eins og ég sagði við þig þá leit ég upp til þín að mörgu leyti. Þú átt sérstakan stað í hjarta Ragnheiðar mágkonu þinnar þar sem henni þótti mjög gott að hafa þig á heimilinu. Þú varst hjálpleg- ur við að halda heimilinu hreinu og fínu og henni þótti þú mjög góður félagsskapur. Við grínuð- umst með það að við værum örugglega betri uppalendur en Þóra mamma, því það gekk víst betur að fá þig til að hjálpa til við heimilishaldið hér en uppi í Graf- arvogi. Ragnheiður spurði mig oftar en einu sinni: „Getur hann bara ekki flutt á Blönduós? Hann getur bara búið hér þangað til hann fær íbúð á leigu, það munar engu að hafa einn auka í mat, við þurfum hvort sem er að elda.“ Strákarnir sakna þín mikið en eiga mikið af góðum minningum um þig. Benedikt á göngutúrana með þér og Layku og Þröstur FIFA-leikina þar sem Manchest- er United og Liverpool háðu hörkubaráttu. Hlátursins og gleð- innar sem fylgdi þeim rimmum verður sárt saknað, en með gleði minnst um ókomna tíð. Við elsk- um þig bróðir og vitum að þú fylg- ist með okkur. Kveðja, Magnús, Ragnheiður, Benedikt og Þröstur Már. Í dag kveðjum við ástkæran frænda okkar Garðar Smára Óm- arsson. Sviplegt fráfall hans er enn þá óraunverulegt og svo ósanngjarnt að það er erfitt að trúa því að hann sé farinn frá okk- ur. „Lítill drengur ljós og fagur“ eru ljóðlínur sem hafa sótt á hug- ann því Garðar var ljós og fagur að innan sem utan og það er sú minning sem við eigum um hann. Sterk réttlætiskennd, góð- mennska, hjálpsemi og hlýja ein- kenndu Garðar Smára. Alltaf þegar maður hitti hann fékk mað- ur faðmlag og það var einlægt. Hann elskaði son sinn Ómar Alex sem hann var svo innilega stoltur af og foreldra sína, systur, bróður og systkinabörn. Fjölskyldan skipti hann öllu máli. Hann vildi ekki deyja, hann hafði svo margt að lifa fyrir; þó svo að lífið hafi stundum verið honum erfitt þá tókst hann á við erfiðleikana. Hann átti sér þann draum að klára nám sitt og fá góða vinnu. Á svona stundum skilur maður ekki alveg tilgang lífsins. Sorg Þótt andlitið kunni að gleðjast um stund getur hjartað grátið. Ef þú vilt komast hjá því að syrgja og sakna skaltu hætta að elska, því þeir missa mest sem mikið elska. Sá sem ekki elskar missir ekki neitt en fer mikils á mis. Leyfðu sorginni að hafa sinn tíma og fara í sinn eðlilega farveg. Svo mun það gerast, smátt og smátt, að þú gefst upp fyrir henni og minningarnar björtu og góðu komast að, taka við og búa með þér. Ómetanlegar minningar sem eng- inn getur frá þér tekið. Að harðasta vetrinum loknum fer svo að vora og yljandi vindar taka aftur um þig að leika og litskrúðug ólýsanlega fögur blóm gera vart við sig, hvert af öðru. Þau taka að spretta umhverfis lind minninganna. Já blessaðir séu þeir sem gefa sér tíma til að strjúka vanga og þerra tár af kinn, bara með því að faðma og vera. (Sigurbjörn Þorkelsson) Elsku Ómar, Þóra, Ómar Alex, Maggi, Edda, Unnur Dögg og fjölskyldur, missir ykkar er mik- ill. Engin orð fá lýst þeim harmi sem fylgir því að missa ástvin, en lífið heldur áfram og þið hafið mikið að lifa fyrir. Megi guð gefa ykkur styrk til að komast í gegnum þennan erf- iða tíma. Blessuð sé minning Garðars Smára. Rósa, Kjell og fjölskylda, Anna, Karl (Kalli) og fjölskylda, Unna frænka. Garðar Smári Ómarsson Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÞÓRU STEFÁNSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks A6 í Fossvogi. Stefán Gíslason Anna Þóra Gísladóttir Örn Arnarson Hannes Orri Arnarson Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, ÁSGEIR HOLM, Austurgötu 32, Hafnarfirði, lést sunnudaginn 23. maí á Landspítalanum. Útför fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 3. júní klukkan 13. Ásgeir Helgi Ásgeirsson Eygló Brá Schram Vilhjálmur Sveinn Björnsson Jóna Bryndís Gísladóttir og barnabörn Ástkær faðir okkar, afi, langafi og langalangafi, PÉTUR GEIR HELGASON frá Ísafirði, lést á Droplaugarstöðum föstudaginn 21. maí. Útförin fer fram frá Neskirkju í Reykjavík mánudaginn 31. maí klukkan 16. Streymt verður frá útförinni á www.streymi.is Fjölskyldan Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, OLGA ÓLA BJARNADÓTTIR, verslunar-, veitinga- og hannyrðarkona, lengst af á Egilsstöðum og Blönduósi, lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum fimmtudaginn 20. maí. Útförin fer fram í Háteigskirkju miðvikudaginn 2. júní klukkan 15. Eymundur Sigurðsson Ragnheiður Bragadóttir Hanna Birna Sigurðardóttir Jesper Dalby Bjarni Gaukur Sigurðsson Elísabet Jónsdóttir og barnabörn Elskuleg frænka okkar, HJÁLMFRÍÐUR HALLGRÍMSDÓTTIR, (Fríða) Sóltúni 2, lést föstudaginn 21. maí. Útförin fer fram frá Garðakirkju á Álftanesi miðvikudaginn 2. júní klukkan 11. Streymt verður frá athöfninni á hlekknum https://youtu.be/GsPB2qgPlFk. Sigurður Geirsson Guðlaug Einarsdóttir Árni Geirsson Halldóra Hreggviðsdóttir Geir Óskar, Haukur Árni, Guðrún Hrönn, Fríða, Einar Óskar, Herborg, Hlynur og fjölskyldur Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÞÓR HJÖRLEIFSSON, Messuholti, lést á HSN Sauðárkróki fimmtudaginn 20. maí. Útför verður frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 4. júní klukkan 14. Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir Jón Ingvar Axelsson Arngunnur H. Sigurþórsd. Ægir Sturla Stefánsson Steinunn Sigurþórsdóttir Sigurður Guðjónsson Ingibjörg Sigurþórsdóttir Einar Sævarsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.