Morgunblaðið - 28.05.2021, Síða 52
52 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 2021
Pepsi Max-deild kvenna
Keflavík – ÍBV.......................................... 1:2
Valur – Breiðablik .................................... 3:7
Selfoss – Fylkir......................................... 0:0
Tindastóll – Þór/KA............................... (1:0)
_ Ekki lokið þegar blaðið fór í prentun.
Efstu lið fyrir leik Tindastóls og Þórs/KA:
Selfoss 5 4 1 0 12:4 13
Breiðablik 5 4 0 1 22:8 12
Valur 5 3 1 1 10:10 10
Þróttur R. 5 1 3 1 11:8 6
ÍBV 5 2 0 3 10:11 6
Tindastóll 3 1 1 1 3:3 4
Lengjudeild kvenna
HK – ÍA..................................................... 0:1
Bandaríkin
Orlando Pride – Portland Thorns......... 2:1
- Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan
leikinn með Orlando Pride.
Noregur
Bodö/Glimt – Haugesund....................... 2:0
- Alfons Sampsted lék allan leikinn með
Bodö/Glimt.
Molde – Vålerenga .................................. 2:3
- Björn Bergmann Sigurðarson lék ekki
með Molde en Viðar Örn Kjartansson spil-
aði í 79 mínútur með Vålerenga.
Sandefjord – Rosenborg......................... 1:2
- Viðar Ari Jónsson lék allan leikinn með
Sandeford en Hólmar Örn Eyjólfsson var
ekki með Rosenborg.
Sarpsborg – Kristiansund ...................... 0:1
- Emil Pálsson var á bekknum hjá Sarps-
borg en Brynjólfur Willumsson kom inn á
hjá Kristiansund á 65. mínútu.
Strömsgodset – Tromsö.......................... 1:1
- Valdimar Þór Ingimundarson lék fyrstu
65 mínúturnar með Strömsgodset. Ari
Leifsson var allan leikinn á bekknum, sem
og Adam Örn Arnarson hjá Tromsö.
Viking – Mjöndalen ................................. 2:1
- Samúel Kári Friðjónsson lék allan leik-
inn með Viking.
Ítalía
B-deild, umspil, seinni úrslitaleikur:
Venezia – Cittadella ................................ 1:1
- Bjarki Steinn Bjarkason var á bekknum
hjá Venezia en Óttar Magnús Karlsson er
meiddur.
_ Venezia sigraði 2:1 samanlagt og leikur í
A-deildinni á næsta tímabili.
0-'**5746-'
Olísdeild karla
Stjarnan – Fram................................... 27:29
Afturelding – Valur .............................. 25:34
KA – Þór................................................ 19:19
FH – ÍBV .............................................. 28:26
Haukar – ÍR.......................................... 41:22
Grótta – Selfoss .................................... 23:27
Lokastaðan:
Haukar 22 19 1 2 672:528 39
FH 22 13 4 5 648:607 30
Valur 22 13 1 8 645:592 27
Selfoss 22 12 2 8 577:562 26
Stjarnan 22 11 3 8 630:604 25
KA 22 9 7 6 587:571 25
ÍBV 22 11 2 9 639:615 24
Afturelding 22 10 3 9 589:602 23
Fram 22 10 2 10 589:572 22
Grótta 22 5 4 13 556:595 14
Þór Ak. 22 4 1 17 488:601 9
ÍR 22 0 0 22 517:688 0
Þýskaland
Flensburg – RN Löwen....................... 26:26
- Alexander Petersson skoraði ekki fyrir
Flensburg en Ýmir Örn Gíslason skoraði
eitt mark fyrir Löwen.
Essen – Magdeburg............................. 26:31
- Ómar Ingi Magnússon skoraði 13 mörk
fyrir Magdeburg.
Füchse Berlín – Lemgo....................... 30:24
- Bjarki Már Elísson skoraði fjögur mörk
fyrir Lemgo.
Melsungen – Ludwigshafen............... 25:23
- Arnar Freyr Arnarsson skoraði ekki fyr-
ir Melsungen. Guðmundur Þ. Guðmunds-
son er þjálfari liðsins.
Danmörk
Undanúrslit, annar leikur:
Bjerringbro/Silk. – Tvis Holstebro .. 30:25
- Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði fjögur
mörk fyrir Tvis Holstebro sem er úr leik.
Aalborg – GOG .................................... 33:30
- Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal-
borg. Viktor Gísli Hallgrímsson varði 17/2
skot í marki GOG.
$'-39,/*"
Úrslitakeppni kvenna
Fyrsti úrslitaleikur:
Valur – Haukar .................................. (30:16)
_ Ekki lokið þegar blaðið fór í prentun.
Umspil karla
Undanúrslit, fjórði leikur:
Selfoss – Hamar ................................... 88:96
_ Hamar vann 3:1 og mætir Vestra í einvígi
um úrvalsdeildarsæti.
Úrslitakeppni NBA
Philadelphia – Washington ....... 120:95 (2:0)
New York – Atlanta................... 101:92 (1:1)
Utah – Memphis....................... 141:129 (1:1)
086&(9,/*"
Landsliðsmaðurinn Ómar Ingi
Magnússon gerði sér lítið fyrir og
skoraði 13 mörk fyrir Magdeburg
er liðið vann 31:26-útisigur á Essen
í þýsku 1. deildinni í handbolta í
kvöld. Níu markanna komu af víta-
línunni. Ómar er þar með orðinn
næstmarkahæsti leikmaður deild-
arinnar með 210 mörk í 30 leikjum
Magdeburg, eða sjö mörk að með-
altali í leik. Hann er ellefu mörkum
á eftir Marcel Schiller hjá Göpp-
ingen, sem hefur hinsvegar leikið
einum leik meira. Magdeburg á enn
eftir átta leiki á tímabilinu.
Ómar orðinn
næsthæstur
Morgunblaðið/Eggert
Þrettán Ómar Ingi Magnússon rað-
aði inn mörkum gegn Essen.
Alfons Sampsted og samherjar
hans í Bodö/Glimt halda áfram þar
sem frá var horfið í norsku úrvals-
deildinni í knattspyrnu á síðasta
timabili. Þeir urðu þá norskir
meistarar með gríðarlegum yfir-
burðum og eru þegar búnir að
koma sér fyrir á toppnum. Alfons
átti mjög góðan leik í gærkvöld
þegar meistararnir unnu Hauge-
sund 2:0 og hafa nú fengið 13 stig af
15 mögulegum. Rosenborg, lið
Hólmars Arnar Eyjólfssonar, er
með 11 stig í öðru sæti og Molde er
með 10 stig í þriðja sætinu.
Sama sigling á
Alfons og Bodö
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Noregur Alfons Sampsted á góðu
gengi að fagna með Bodö/Glimt.
BESTUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
„Brynjar Ingi er fyrst og fremst
gríðarlega efnilegur leikmaður,“
sagði Arnar Grétarsson, þjálfari
knattspyrnuliðs KA, í samtali við
Morgunblaðið. Brynjar Ingi Bjarna-
son, varnarmaður KA, hefur spilað
frábærlega með KA í fyrstu leikjum
Íslandsmótsins og stimplað sig inn
sem einn af betri miðvörðum deild-
arinnar.
Hann er leikmaður maímánaðar í
einkunnagjöf Morgunblaðsins eins
og sjá má hér til hliðar.
„Brynjar býr yfir öllu því líkam-
lega atgervi sem góður miðvörður
þarf að búa yfir. Hann er með mikla
hæð, hann er mjög fljótur og svo er
hann líka mjög góður í fótbolta. Hann
hefur allt til brunns að bera til þess
að ná mjög langt í fótboltanum.
Ef maður ætlar sér að bera hann
saman við frábæra íslenska miðverði
þá á hann hins vegar eitthvað í land
með að ná leikmanni eins og Kára
Árnasyni [varnarmanni Víkings í
Reykjavík og íslenska landsliðsins]
sem dæmi,“ sagði Arnar.
Miðvörðurinn er einungis 21 árs
gamall og á því ýmislegt eftir ólært.
„Brynjar er góður strákur og
kannski of góður strákur inni á vell-
inum. Hann mætti láta finna meira
fyrir sér og eins vantar aðeins meira
upp á talandann og stjórnun enda er
hann rólegur strákur að eðlisfari.
Við höfum rætt þetta okkar á milli
og ég er auðvitað bara gríðarlega
ánægður með hann og fyrir hans
hönd með þennan árangur sem hann
hefur náð hingað til. Persónulega
fannst mér að hann hefði átt að vera í
U21-árs landsliðshópnum sem fór á
lokamótið í Ungverjalandi í mars en
það er þjálfarinn sem velur hópinn,“
sagði Arnar en Brynjar er nú í A-
landsliðshópnum fyrir vináttuleikinn
gegn Mexíkó í Texas annað kvöld.
Eitt skref í einu
Arnar var sjálfur atvinnumaður í
tíu ár og þekkir því fótboltann er-
lendis ansi vel.
„Ég hef reynt að brýna það fyrir
mönnum sem fara út í atvinnu-
mennsku að það sé bara byrjunin.
Það er ekkert í hendi þegar þú ert
kominn til útlanda og þú þarft að
leggja ennþá meira á þig til þess að
ná árangri þar.
Það eru of margir strákar sem fara
út í kringum tvítugt og koma strax
aftur heim því þeir ná ekki að festa
sig í sessi. Samkeppnin er gríðarleg í
atvinnumennsku og lykillinn að því
að ná árangri er bæði vinnusemi og
þrautseigja.“
Brynjar hefur alla burði til þess að
ná langt á ferlinum ef hann heldur
rétt á spilunum.
„Það er alfarið undir Brynjari
komið hvort hann geti náð langt í at-
vinnumennsku og með íslenska
landsliðinu á sínum ferli. Brynjar er
ennþá ungur og hann getur bætt sig
mikið eins og ég kom inn á áðan.
Það eru breytingar í vændum hjá
landsliðinu og ákveðin kynslóðaskipti
að fara í gang. Núverandi miðverðir
liðsins eru komnir á seinni hluta fer-
ilsins og það eru strákar tilbúnir að
taka við keflinu eins og Sverrir Ingi
Ingason, Hólmar Örn Eyjólfsson,
Hjörtur Hermannsson og Jón Guðni
Fjóluson svo einhver dæmi séu
nefnd.
Við eigum því miðverði sem eru til-
búnir að koma inn í þetta en Brynjar
á klárlega möguleika að vinna sér inn
sæti í landsliðinu einn daginn. Þetta
snýst um að taka lítil skref í einu og
hann átti mjög gott tímabil í fyrra.
Mér finnst hann hafa bætt sig enn
þá frekar í ár þó það sé stundum erf-
itt fyrir unga leikmenn að fylgja eftir
góðu gengi síðasta tímabils. Ef þetta
er eitthvað sem koma skal, það er að
segja að hann haldi áfram að bæta
sig ár frá ári, þá myndi ég segja að
hann ætti mjög góða möguleika á því
að fara í atvinnumennsku einn dag-
inn.“
Vera með báða fætur á jörðinni
Ef menn ætla sér að ná langt í
íþróttum þurfa þeir að halda rétt á
spilunum og taka réttar ákvarðanir.
„Þegar allt kemur til alls þá snýst
þetta um að vera með báða fætur á
jörðinni og leggja hart að sér. Þeir
sem vilja ná árangri þurfa að leggja
mikið á sig eins og dæmin sanna. Þú
þarft að fórna miklu til að verða topp-
íþróttamaður og mun meiru en fólk
gerir sér oft grein fyrir.
Að sama skapi er það vel þess virði
þegar þú nærð góðum árangri en
menn þurfa líka að taka réttar ákv-
arðnir á leiðinni eins og Gylfi Þór
Sigurðsson hefur til dæmis gert á
sínum ferli. Það falla margir í þá
gryfju að taka skemmtanalífið fram
yfir fótboltann en það er dæmi sem
gengur ekki upp.
Það er líka þannig að þegar menn
fá nasaþefinn af góðum árangri þá
annaðhvort slaka þeir á eða gefa í.
Ég vona innilega að Brynjar gefi í og
þá eru honum allir vegir færir,“ sagði
Arnar við Morgunblaðið.
Mikilvægt
að halda rétt
á spilunum
- Brynjar Ingi Bjarnason hefur alla
burði til að ná langt í atvinnumennsku
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bestur Brynjar Ingi Bjarnason, fyrir miðju, eftir að hafa skorað eitt marka
KA í útisigri á KR-ingum, 3:1, í annarri umferð deildarinnar í vor.
Brynjar Ingi Bjarnason, miðvörður KA, er leikmaður maímánaðar í Pepsi
Max-deild karla að mati Morgunblaðsins. Brynjar er efstur í M-einkunna-
gjöf blaðsins eftir sex fyrstu umferðir Íslandsmótsins, hefur fengið 6 M
samanlagt, og aðeins einn annar leikmaður í deildinni hefur náð því. Það er
nafni hans, Brynjar Hlöðversson, sem hefur fengið 6 M fyrir frammistöðu
sína með nýliðum Leiknis úr Reykjavík. Brynjar Ingi hefur hinsvegar verið
valinn þrisvar í lið umferðarinnar en Brynjar Hlöðversson einu sinni og
það gerði útslagið í valinu á milli þeirra tveggja.
Fleiri en Morgunblaðið hafa veitt frammistöðu Brynjars Inga athygli því
hann er í íslenska landsliðshópnum í fyrsta skipti og gæti spilað sinn fyrsta
A-landsleik annað kvöld þegar Ísland mætir Mexíkó í vináttulandsleik í
Texas. Hann er 21 árs gamall, uppalinn KA-maður en hefur einnig leikið
með Magna og hefur aldrei leikið með yngri landsliðum Íslands.
Ellefu manna úrvalslið maímánaðar má sjá hér fyrir ofan og þar eiga
Valur, KA og Leiknir tvo leikmenn hvert félag. Síðan eru sjö varamenn
fyrir neðan og alls eiga átta félög af tólf fulltrúa í hópnum en liðsvalið er
alfarið byggt á M-einkunnagjöfinni. vs@mbl.is
Lið maímánaðar hjá Morgunblaðinu
í Pepsi Max-deild karla 2021
VARAMENN:
Þórður Ingason 4 1 Víkingur R.
Þorri Mar Þórisson 4 2 KA
Orri Hrafn Kjartansson 4 1 Fylkir
Atli Sigurjónsson 4 KR
Matthías Vilhjálmsson 4 2 FH
Thomas Mikkelsen 4 1 Breiðablik
Patrick Pedersen 4 2 Valur
5-3-2
Brynjar
Hlöðversson
Leiknir R.
Brynjar Ingi
Bjarnason
KA
Höskuldur
Gunnlaugsson
Breiðablik
Steinþór Már Auðunsson
KA
Rasmus
Christiansen
Valur
Kristinn
Jónsson
KR
Nikolaj Hansen
Víkingur R.
Ágúst Eðvald Hlynsson
FH
Kristinn Steindórsson
Breiðablik
Kristinn Freyr
Sigurðsson
Valur
Sævar Atli Magnússon
Leiknir R.
Hversu oft leikmaður hefur
verið valinn í lið umferðarinnar
2
Fjöldi sem leik-
maður hefur fengið
2
1
2
2
2 1
1
3 2
1
2
5
5
6
6
5
5
4
5
5
4 5
Brynjar bestur í maí