Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.02.1978, Page 20

Skólablaðið - 01.02.1978, Page 20
Pálmi Gunnarsson. Pálm þarf vart að kynna. Hann hefur spilað mjög lengi á bassa með hinum ýmsu hljomsveitum. Hann er nu meðlimur hljómsveitarinnar Póker. Páimi er reyndar ein af undantekn- ingum bítlakynslóðarinnar, sem ég minntist á í greir.inni, þ.e. hann hefur jafnframt bítlatónlistinni lagt mikla rækt við jazzinn. Fleiri góðir bassaleikarar hafa lagt Jazz- vakningu lið, þar á meðal Helgi Kristjánsson, Ama Scheving og Gunnar Hrafnsson - en Gunnar er einn yngsti jazzleikar- inn hérlendis um þessar mundir. Viðar leikur þarna á trompet (sjá fyrirsagnarmynd) á jazzkvöldi. Auk' trompetsins grípur Viðar oft í básúnu og comet. Ennfremur spilar hann á horn með Sinfóníuhljóm- sveit íslands. Viðar hefur verið með aktívustu jazzleik- urum, sem leikið hafa á tónlistarkvöldum Jazzvakningar. Því miður eru of fáir aktívir blásarar, en þó hafa t.d. menn eins og Gunnar Ormslev saxófónleikari lagt okkur ómetanlegt lið. Sp: Hvert er upphaf Jazzvakningar? Klúbburinn Jazzvakning var stofnaður í septem- ber 1975 í Skiphól í Hafnarfirði, og fór starfsem- in i fyrstu aðallega fram þar. Fyrsti formaður klúbbsins var Hermann Þórðarson. Starfsemin flutt- ist siðan inn á Reykjavíkursvseðið, en við miðum auðvitað að því að starfa hvar sem viðleitni okkar hlýtur hljómgrunn. Sp: Finnst þér áhugi á jazzi vera mikill hér á landl eða í skólunum? Það á sér tvímselalaust stað mikill vakning í jazzmálum á Islandi. Hér á landi hefur jazzinn staðið í stað, en alls ekki hrakað. Það vantar því miður heila kynslóð inn í jazzlífið, en það er bítlakynslóðin, fólk á aldrinum 25-35 ára með und- antekningum þó. En þrátt fyrir þetta hafa ,rgömlu kerapurnar" flestar haldið við jazzkunnáttu sinni, sem betur fer. En sannleikurinn er sá að það vant- ar nýtt blóð í jazzinn því að ekki spila „þeir gömlu" endalaust. Því miður höfum við ekki heyrt i mikið í ungum jazzleikurum, en það hefur þó komið fyrir og viðtökurnar. sem þeir hafa fengið, ættu tvímælalaust að efla þá til dáða. I þessu sambandi má benda á, að flestir, ef ekki allir af eldri kyr . slóð jazzleikara, sem enn eru alkunnir. kenna á sín hljóðfæri, svo að menn vantar tilsögn. þá eru , slíkir menn ekki langt undan og Jazzvakning væri að sjálfsögðu fús til að aðstoða við að koma mönn- um í samband við þá. Bara að gefa sig fram. Um áhugann er það skemmst að segja, að hann er nægur, á því leikur enginn efi. Við gerum okkur að sjálfsögðu grein fyrir því, að mun fleiri en þeir, sem sækja jazzkvold okkar, hafa áhuga á jazzi. Aðsóknin á tónleika þeirra erlendra jazz- leikara, sem til landsins hafa komið, sannar það. minnumst Benny Goodmans, Cleo Laines, Nordjazz, Moniou Zetterlands og nú síðast tríos Niels Henn- ing Örsted Pedersens. Heimsóknir frábærra lista- manna sem þessara hljóta að verka mjög hvetjandi á fólk. Það hafa þær að minnsta kosti gert á okkur í Jazzvakningu. Um áhugann í skólanum má segja það, að þar er hann sjálfsagt hvað mestur. ötvírætt dæmi um það eru jazzkvöld, sem haldinn hafa verið næstum því reglulega i skólunum. Jazzvakning hefur með till- iti til þessa skipulagt kynningardagskrá á sögu jazzins, og fer hún þannig fram, að kynnir les út- drátt úr sögu jazzins og hljómsveitin Jazzmenn leikur viðeigandi tónlist. Jónatan Garðarsson, sem var formaður á undan mér, á veg og vanda af samn- ingu pistilsins. Þess má geta hér, að ég hef rætt þessa dagskrá við Pálma Guðmundsson, formann List- afélagsins, og hefur hann sýnt henni mikinn áhuga. ■Sp: Hvenær byrjaðir þú sjálfur fyrst að fá áhuga ,á jazzi? Ég hef lengi verið miltill aðdáandi manna sem leika rokk-eða funktónlist undir geysilegum jazz- áhrifum, t.d. Billy Cobham, Herbie Hanoock, John McLaughlin og Mahavisnu Orchestra og fleiri. Það má kannski segja, að forvitni hafi dregið mig til að byrja að hlusta á þessa tónlist sem eftirlætis- listamenn minir eru undir áhrifum frá. Og eins og svo margir fékk ég algera „dellu". Ég fór til dæm- is á fyrsta jazzkvöld mitt hjá Jazzvakningu fyrir aðeins rúmu ári. Síðan hef ég komið svo til stans- laust. Jazzinn getur verið ótæmandi viskubrunnur þeim, sem hafa áhuga á að kynna sér sögu hans, sem er mjög athyglisverð. Virðist mér þó, að ég sé alger grænjaxl um jazzsögulegar staðreyndir, en vonandi stendur það til bóta. Sp: I hverju er starfsemi Jazzvakningu fólgin, og hvernig starfið þið? Samkvæmt lögum klúbbsins er markmið hans að stuðla að eflingui tónlistariífs í hvívetna. Til þess að gera þetta stöndum við fyrir vikulegum jazzkvöldum að Fríkirkjuvegi 11, húsi æskulýðsráðs sem Reykjavíkurborg hefur verið svo elskuleg að veita okkur afnot af. Er þessi starfsemi nefnd Jazzkjallarinn, og erum við, þegar þetta viðtal er tekið, einmitt að vinna að skipulagningu starfsemi hans. Kjallarinn hefur síðan í sumar ("77.) verið opinn vikulega á mánudögum, en var síðan lokaður um jól og áramót. Verður auglýst nánar, þegar hann tekur til starfa áð nýju, og má benda á, að auglýs- ingaspjöldin eru yfirleitt græn að lit, mjög smekk- leg (21,4-|- x 3o,6cm að stærð) og hanga á ólíkleg- ustu stöðum. Auk Kjallarans stöndum við öðru hverju fyrir miklum jazzkvöldum og þá á einhverjum stærri veit- ingahúsum borgarinnar. Komið hefur til tals að hafa enn meiri umsvif, en umræður um það eru á al- geru frumstigi. Nú, ekki má gleyma því, að fyrir stuttu fengum við að gjöf frá Menningarstofnun Bandaríkjanna nokkur hundruð kílómetra af segul- böndum, og er ráðgert að spila af þeim yfir á kas- ettur, eftir því sem fjárhagur klúbbsins leyfir. Og hver veit, nema við getum einhvern daginn hafið útlán á kasettum undir kjörorðinu: Jazz inn á hvert heimili.- Þetta er ekki fyrsti greiðinn, sem Menningarstofnunin gerir Jazzvakningu. Hún hefur gefið klúbbnum bækur og plötur, og hefur samstarf- ið verið eins og best verður á kosið. Margir kann- ast við jazzkvikmyndasýningar í Menningarstofnun- inni- atriði, sem Jazzvakning vinnur ötullega að að innleiða hjá sér( og einnig hafa verið jazz- kynningar þar, og eru fleiri fyrirhugaðar. Þá eru jazzkynningarnar í skólunum, sem ég kom að áðan, og er í ráði að bjóða þeim, sem áhuga hafa, upp á þær. Þess má líka geta, að Jazzvakning er reiðubúin að aðstoða, ef menn hafa hug á að fá jazzhljómsveit til að leika við einhver tækifæri. Um það, hvernig við störfum, er það að segja, að stjórn skipa 5 manns, og síðan eru tveir vara- menn. Aðalstjórnina skipar þetta fólk: Pétur Grét- arsson, formaður, Agatha Agnarsdóttir, varaformað- ur, Linda Chr. Walker, ritari, Helga Asmundsdóttir gjaldkeri, Guðmundur Steingtimsson, meðstjórnandi. Þess ber að geta, að stjórnin starfar á algerum jafnréttisgrundvelli, formaður hefur ekkert einræð isvald, enda gefur það augaleið, að starf sem þetta næði aldrei neinum árangri nema; með samsti- lltu átaki. Sp: Er eitthvað, sem þú vildir segja að lokum? Já, takk heilmikið. Mig langar fyrst til að hvetja alla til að koma og hlusta á það, sem við höfum að bjóða. Hjá okkur er spilað alls konar tón list, þó að við leggjum mesta áherslu á jazzinn. Við stöndum fyrir tónlistarkvöldum, sem eru haldin í því skyni að koma á framfæri ungum tónlistarmönn um og þeim, sem vilja leika sína eigin framleiðslu á tónlistarsviðlnu. Má segja, að þessi kvöld séu eini vettvanvangurinn fyrir utan skólana til að HLUSTA á tónlist.

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.