Morgunblaðið - 08.07.2021, Page 11
Atvinna
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2021
Skipholti 29b • S. 551 4422
Enn meiri afsláttur
30%-50%
Skoðið
laxdal.is
Bæjarlind 6 | Sími 554 7030 | Við erum á facebook
buxur
Kr. 6.900
Str. 36-52
Kr. 8.900
Str. 36-52
Kr. 17.900
Str. 36-52
arfsmannafatnaður
rir hótel og veitingahús
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | www.eddaehf.is
Hótelrúmföt kristin@run.is | Starfsmannafatnaður thorhildur@run.is
Eigum allt fyrir:
• Þjóninn
• Kokkinn
• Gestamóttökuna
• Þernuna
• Hótelstjórnandann
Hótelrúmföt
Sérhæfum okkur í sölu á rúmfatnaði
og öðru líni fyrir hótel
Ferðumst
innanlands
í sumar
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Fæst í
netverslun
belladonna.is
Flott sumarföt, fyrir flottar konur
Karítas Ríkharðsdóttir
karitas@mbl.is
Ný Oddeyri EA-210, bolfiskskip
Samherja, er komin til heimahafnar
á Akureyri eftir gagngerar breyt-
ingar. Oddeyrin var keypt lítið not-
uð frá útgerð á Írlandi og bar áður
heitið Western Chieftain. Skipið
var 45 metra uppsjávarveiðiskip en
var keypt með það fyrir augum að
breyta því töluvert.
Skipið hefur nú verið lengt um 10
metra í Karstensen Skibsværft í
Danmörku og hefðbundnu vinnslu-
dekki og fiskilest komið fyrir. Gert
er ráð fyrir að skipið verði nýtt í
bolfiskveiðar.
Skipið verður eins konar til-
raunaskip Samherja á vegferð sem
nú verður haldið í sem snýst um að
geyma fisk lifandi um borð og
landa í kvíar. Með þessu er hægt að
auka afhendingaröryggi og lengja
líftíma ferskra afurða.
Á stjórnborðssíðu skipsins stend-
ur stórum stöfum Live & Fresh,
eða lifandi og ferskt á íslensku.
Aðferðin byggist á því að fiski er
dælt um borð og tankar eru útbún-
ir sjódælukerfi til að tryggja súr-
efni svo fiskurinn haldist á lífi.
Engin útgerð á Íslandi landar lif-
andi fiski í dag og mun Samherji
því að öllum líkindum verða fyrstur
til þess. Aðferðin er þó þekkt í
Noregi og hefur verið notuð þar í
nokkur ár.
Oddeyrin EA fyrsta skip
sinnar tegundar hér á landi
- Nýtt skip Sam-
herja kom til hafn-
ar á Akureyri
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Heimkoma Nýtt skip Samherja getur geymt lifandi fisk í tönkum.
Maður sem var handtekinn á Ís-
landi um páskana og framseldur til
Bergen í Noregi hefur verið ákærð-
ur fyrir tvær stórfelldar líkams-
árásir og rán sem áttu sér stað þar í
landi árið 2015. Hann hefur játað
sök. Hann var eftirlýstur um allan
heim vegna málsins þegar hann var
handtekinn hér á landi. Réttarhöld
yfir honum hefjast fjórða október.
Um er að ræða 37 ára einstakling
frá Póllandi og er hann ákærður
fyrir að ráðast á auðjöfurinn og
listaverkasalann Reidar Olsen og
mann að nafni Petter Slengesol í
Bergen með níu mánaða millibili
árið 2015.
Reidar Olsen var á leiðinni í bíl
sinn í desember 2015 í miðborg
Bergen þegar ráðist var á hann.
Mennirnir lömdu hann og stungu
byssu upp í munn hans þannig að
hann kjálkabrotnaði. Þá keyrðu
þeir hann inn í skóg þar sem þeir
höfðu grafið gröf ætlaða honum.
Petter Slengesol var sömuleiðis í
bíl sínum þegar mennirnir birtust
við bílinn og réðust á hann. Þeir
brutu bæði hendur hans og fætur,
afklæddu hann og hótuðu að skera
af honum kynfærin.
Lögreglan náði að tengja málin
saman árið 2019 en fram að því
höfðu þau verið óleyst.
Ákærður eftir framsal frá Íslandi til Noregs