Morgunblaðið - 08.07.2021, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 08.07.2021, Qupperneq 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2021 NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR JÓNAS Í SÍMA 865 6346 EÐA Á NETFANGINU RAKANG@RAKANG.IS Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is K vennakórinn og nyrsti kór Íslands, Hornstranda- kórinn, lenti í ýmiss kon- ar ævintýrum í jóm- frúrferð sinni um Hornstrandir þar sem kórinn var formlega stofnaður 24. júní síðastliðinn. Bjarney Lúð- víksdóttir, kvikmyndagerðarkona og einn af stofnendum hópsins, stað- festir þetta í viðtali við Morgun- blaðið en hún segir að kórfélagar, sem samanstanda af 13 konum, hvaðanæva úr atvinnulífinu, séu afar stoltir af þessum fyrsta kór Horn- stranda. Hópurinn er afar fjöl- breyttur en hann er samsettur með- al annars af leikkonum, læknum, kvikmyndagerðarkonum, athafna- konum og rithöfundum. Að sögn Bjarneyjar var upprunalega hug- myndin sú að hver kona myndi taka eina konu með sér með því skilyrði að hún þekkti hana ekki vel og var þá markmiðið að víkka út netverkið og fara út fyrir þægindarammann. Konurnar héldu af stað í Hlöðu- vík 19. júní og var stefnan tekin á að stofna kórinn formlega á æskuslóð- um rithöfundarins Jakobínu Sigurð- ardóttur í Hælavík og flytja þar jafnframt fyrsta lag kórsins, Vöku- ró, en texti lagsins er einmitt eftir Jakobínu. Jakobína endurholdguð? Þegar þangað var komið var Skálakamburinn hins vegar ófær og hélt kórinn því tónleika í Ófærunni svokölluðu sem skilur Hælavík og Hlöðuvík að. „Þar var einn áhorfandi. Einn selur sem kúrði þarna við stein og var að hlusta allan tímann. Við höld- um að þetta hafi bara verið Jakobína sjálf komin,“ segir Bjarney kímin í bragði. Næstu tónleikar kórsins voru haldnir í Hlöðuvík þar sem kór- félagar gistu en þar fylgdust með áhorfendur úr hópi fugla og refa. Það var ekki fyrr en á þriðju tónleikunum sem nokkrir syfjaðir áhorfendur af ætt homo sapiens komu til að hlusta á kórinn sem mætti tíu tímum of seint á áfanga- stað sinn, á Hesteyri, vegna veðurs. „Þar voru nokkrir landverðir sem hlýddu á og voru til vitnis um að Hornstrandakórinn er raunveruleg- ur,“ segir Bjarney og bætir við að þetta hafi verið síðustu tónleikar kórsins í bili. „En síðan gerist það sem rataði í blöðin,“ segir Bjarney. „Á leið okk- ar inn í Kjaransvík, þegar við erum á göngu, löbbum við fram hjá þvílíkri hrúgu af rosalegum skít að við stoppum einhvern veginn allar og horfum. Við fórum allar að reyna að átta okkur á því af hvaða dýri þessi skítur gæti mögulega verið,“ segir Bjarney. „Þá fórum við að hugsa: Það kom borgarísjaki vikuna áður en við komum. Tæknilega er ekki útilokað að ísbjörn rati upp á Strandir. Það hefur gerst og sagan hefur sagt það,“ útskýrir hún og bætir við að ferðalangarnir hafi ákveðið að láta vita af hrúgunni eftir að læknarnir í hópnum voru farnir að efast um að hrúgan væri eftir grasbíta. „Út úr þessu símtali verður þetta fjaðrafok sem við réðum ekki við,“ segir Bjarney og vísar þar í fréttaflutning af meintum ísbirni á Vestfjörðum sem reyndist svo vera álft en Landhelgisgæslan mætti á svæðið í kjölfar símtalsins með rann- sóknarteymi til að rannsaka skítinn. „En við erum þakklátar og stoltar af því að Landhelgisgæslan og kerfið okkar bregst svona fljótt við,“ segir Bjarney og bætir við að þær hafi þó innst inni vonað að sökudólgurinn og eigandi saursins hefði verið raun- verulegur ísbjörn. Fengu móðurlega meðferð „Það myndaðist smá stemning í kringum þetta. Við björguðum tveimur ungum ísraelskum mönnum sem höfðu komið sér fyrir í björg- unarskýlinu í Hlöðuvík. Þeir fengu að gista hjá okkur, bara til vonar og vara, þannig að það myndi örugg- lega ekkert gerast. Þeir fengu lík- lega bestu móðurlegu meðferð sem þeir hafa nokkurn tímann fengið á ævi sinni. Einn þeirra var slasaður og læknarnir í hópnum hlúðu að honum. Við sungum fyrir þá og töl- uðum um stríðið á milli Ísrael og Palestínu. Það var mikil stemning í gangi,“ segir Bjarney. „Að minnsta kosti er Horn- strandakórinn stofnaður og við er- um stoltar af því.“ „Ísbjörn“ og selur á vegi nyrsta kórsins Ófæra Hornstrandakórinn lét ófærð á Skálakambi ekki stöðva sig og var kórinn formlega stofnaður 24. júní í viður- vist einmana sels í Ófærunni sem skilur Hælavík og Hlöðuvík að og hélt fyrir hann einkatónleika úti í náttúrunni. Fjölhæfar 13 konur mynda Hornstrandakórinn en þær eru: Auður Smith, Ágústa Sigrún Ágústsdóttir, Ásdís Guðmundsdóttir, Berglind Magnúsdóttir, Bjarney Lúðvíksdóttir, Ilmur Kristjánsdóttir, Ingibjörg Gréta Gísladóttir, Kristín Sigurðardóttir, María Heba, Rúna Magn- úsdóttir, Pálína Vagnsdóttir, Þóra Arnórsdóttir, Þóra Karítas og Þórunn Lárusdóttir. Hornstrandakórinn var formlega stofnaður á Horn- ströndum á dögunum, en hópurinn, 13 fræknar kon- ur, lentu í ýmiss konar æv- intýrum á göngu sinni um Strandir. Fundu þær m.a. ísbjarnarsaur sem reyndist vera eftir álft, héldu einka- tónleika fyrir sel og björguðu ungum Ísraelsmönnum. Næturtónleikar Fyrstu mennsku áhorfendurnir sem fengu að hlýða á raddir Hornstranda- kórsins voru landverðir á Hesteyri þar sem þriðju tónleikar kórsins voru haldnir. Var kórinn þó um tíu tímum of seinn á staðinn og því voru tónleikarnir haldnir kl. 3:15 um nótt. Áhorfendur voru því fremur syfjaðir en fylgdust þó af athygli með kórnum flytja Vökuró.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.