Morgunblaðið - 08.07.2021, Síða 20

Morgunblaðið - 08.07.2021, Síða 20
20 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2021 „Þótt þröngt sé á Seyðisfirði þar sem Austfjarðaþokan kemur lævíslega inn er hvergi jafn fallegt. Þetta er heimsins besti staður og þangað ætlum við konan mín að skreppa í næstu viku,“ segir Einar Hermannsson, formaður SÁÁ. „Á leiðinni austur er ætlunin að stoppa 2-3 daga á Akureyri; þó ekki sé nema til að kanna hvort frásagnir heimamanna þar um meinta veðursæld eigi við rök að styðjast. Patreksfjörður er líka á planinu í sumar og 10 daga ferð til Tenerife í ágúst. Stóra málið nú er annars að undirbúa edrúhátíð samtakanna okkar sem verður á Skógum undir Eyjafjöllum um verslunarmannahelg- ina, hvar verða góðir listamenn og glatt á hjalla.“ Einar Hermannsson Morgunblaðið/Sigurður Bogi Edrúhátíð undirbúin „Kófið var erfiður tími. Markmið mitt í sumar hefur því ein- faldlega verið að hvíla mig og safna kröfum,“ segir Hulda Geirsdóttir, útvarpsmaður á Rás 2. „Núna er ég búin með tvær vikur af sumarfríinu og aðrar tvær eru eftir. Þetta er sérstaklega góður tími og einmitt þessa stundina er ég í heim- sóknum hjá skyldmennum mínum á Suðurnesjum.“ Hulda og hennar fólk eiga sumarbústað í Holtunum í Rang- árvallasýslu og dveljast þar oft. Landspilda fylgir og þar eru hestar fjölskyldunnar „Stöku sinnum förum við í útreiðartúra eystra, þar sem eru fínar reiðleiðir til dæmis nærri Rang- árbökkum og við Þjórsá. Sumarið er algjörlega tíminn.“ Hulda Geirsdóttir Morgunblaðið/Sigurður Bogi Safna kröftum í fríi „Ætlunin er að vera sem allra mest í kjördæminu í sumar. Fram undan er meðal annars að aðstoða vini mína, bændur í Landsveit og Skaftártungu, að koma fé á fjall. Ef ég fæ að taka í traktor með sauðfé á aftanívagni þá er ég vel settur,“ segir Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. „Svo er líka ætlunin að skreppa til Svíþjóðar síðast í júlí; en þar er ætlunin að heilsa upp á frænku mína sem býr ekki langt fyrir norðan Gautaborg og er þar með hænur og ís- lenska hesta. Allt þetta sem ég lýsi er uppskrift að virkilega góðu sumarfríi. Að vera með fjölskyldu og vinum, lífið verður bara ekki betra.“ Ásmundur Friðriksson Morgunblaðið/Sigurður Bogi Fái að taka í traktor „Skátastarfið er fjölbreytt,“ segir Ragnheiður Silja Kristjáns- dóttir. Hún er ein þeirra sem stýra Skátasumrinu, en svo nefnast þrjú skátamót af minni gerðinni sem verða á Úlfljóts- vatni í sumar. Fyrsta mótið hófst í gær, miðvikudag, og stend- ur til sunnudags. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. „Við blöndum saman leik og fræðslu, meðal annars um sjálfbærni. Reiknað er með að yfir 1.000–1.500 manns verði á mótssvæðinu í hverri viku, þátttakendur og gestir í fjöl- skyldubúðum. Allir geta mætt, til dæmis gamlir skátar og þau sem vilja kynnast því hve skátastarfið er skemmtilegt, en inn- tak þess er virðing fyrir samfélagi og náttúru.“ Ragnheiður Silja Kristjánsdóttir Leikur og fræðsla Morgunblaðið/Sigurður Bogi Allt í blóma og fólk í fríi Veröld brosir! Nú, viku af júlí, er allt í blóma á Íslandi. Holtasóley, þjóðarblómið sjálft, hefur aldrei verið jafn falleg og nú. Landinn er á faraldsfæti, að minnsta kosti er hugur flestra kominn þangað. Sumarleyfin standa sem hæst - og á vinsæla ferðamannastaði kemur fólk til þess að njóta og slappa af. Skátamót, fjárrag með bændum, hestaferðir og leiðangur norður á Akureyri til þess að ganga úr skugga um hvort frásagnir af róm- aðri veðursæld eigi við einhver rök að styðj- ast. Morgunblaðið tók fólk tali. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þjóðarblómið Fallegt í flóru landsins sem er afar fjölbreytt. hjolhysi.com Powrtouch Mover Hágæða hjólhýsadrif til á lager Allar nánari upplýsingar og pantanir í síma 863 4449 hjolhysi.com, kriben@simnet.is, www.facebook.com/hjolhysi Powrtouch Evolution - Fyrir einn öxul - Handvirkur - 2000 kg í 25% halla Powrtouch Evolution - 2000 kg í 25% halla 195.000 220.000 Jóhann Óli Hilmarsson Stokkseyri Ungmennafélag Stokkseyrar og Stokkseyrarhreppur létu byggja Gimli árið 1921. Ungmennafélagið hafði átt þann draum frá upphafi að eignast eigið samkomuhús. Árið 1920 sömdu ungmennafélagið og Stokks- eyrarhreppur um að standa saman að byggingu samkomuhúss og var það vígt 12. nóvember 2021, aðeins hálfu ári eftir að grunnur var tekinn að húsinu. Það er 118 fermetrar að grunnfleti, undir því er kjallari. Nafn- ið var sótt í Völuspá. Verkalýðsfélagið Bjarmi kom að rekstri hússins á ár- unum 1941-51 og 1957-67. Síðan þá hefur sveitarfélagið átt húsið eitt. Gimli var þinghús, þar voru haldnir dansleikir, leiksýningar og opinber fundahöld. Samkomur á vegum verkalýðsfélagsins, kvenfélagsins, kirkjukórsins og annarra félaga á Stokkseyri voru haldnar í húsinu. Um tíma var þar leikfimikennsla barna- skólans. Bókasafn Stokkseyrar var þar um tíma áður en það flutti í nýtt skólahús árið 2010. Eftir það var rek- ið þar kaffihús um skeið, en nú er þar samkomustaður, vinnustofa og gall- erý skapandi fólks á Stokkseyri og Eyrarbakka undir nafninu Brimrót. Í kjallaranum er markaður með hand- verk sem unnið er á Stokkseyri. Ljósmyndir úr sögu Gimli voru settar upp í húsinu á Bryggjuhátíð, bæjarhátíð Stokkseyrar um síðustu helgi. Hátíðin fór vel fram í blíðskap- arveðri og tók fjölmenni þátt í henni. Félagsheimili Gimli á Stokkseyri hefur gegnt mörgum hlutverkum í 100 ár. Gimli orðið 100 ára - Afmælisins minnst á Bryggjuhátíð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.