Morgunblaðið - 08.07.2021, Side 32
32 FRÉTTIR
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2021
OSTEO ADVANCE er
fullkomin blanda fyrir beinin
• Kalk og magnesíum
í réttum hlutföllum
• D vítamín
tryggir upptöku kalksins
• K2 vítamín
sér um að kalkið
skili sér í beinin
Fæst í Lyf og Heilsu, Apótekaranum og flestum stórmörkuðum.
40 ára 60 ára 70 ára
ERTU MEÐ
STERK BEIN?
BEINVERND ER MIKILVÆG ALLA ÆVI
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
Það var ekki fyrr en skæðadrífa af
tréflísum fyllti litla sumarhúsið í Søl-
en í Rendalen, litlu landbún-
aðarbyggðarlagi í þáverandi Hed-
mark í Noregi, 15. maí 1945, sem
dyrnar opnuðust og liðsmenn and-
spyrnuhreyfingarinnar hættu vél-
byssuskothríðinni. Fyrir utan að vera
kunn gönguskíðakona var konan sem
steig út úr húsinu, og var handtekin
umsvifalaust, fyrrverandi áróð-
ursstjóri Nasjonal Samling, þjóðern-
isflokks Vidkuns Quislings, og helsti
hugmyndasmiður gyðingahatursins,
sem flokkurinn ól á og gerði allt til að
innræta norskri þjóð á styrjaldarár-
unum.
Þetta var Halldis Neegård Østbye
frá Stor-Elvdal í Hedmark, einn nán-
asti samstarfsmaður Quislings innan
þjóðernisflokks hans, sem þjónaði
nasistum meðan á hersetu þeirra í
Noregi stóð, árin 1940 – 1945.
Østbye var fædd árið 1896 og hét
Halldis Neegård uns hún gekk í
hjónaband. Hún ólst upp við þröngan
kost ásamt níu systkinum á bóndabæ
í Stor-Elvdal. Foreldrar hennar
skildu árið 1910 og móðirin tók
yngstu börnin með sér til Óslóar.
Faðir hennar lét sig þá hverfa til
Kanada og var henni þá komið fyrir
hjá frændfólki í Ålesund uns hún
flutti til móður sinnar og ömmu í
Ósló.
Stofnun NS opinberun
Hún varð snemma efnileg skíða-
göngukona og keppti fyrir Noregs
hönd á alþjóðavettvangi. Þá lét hún
sig jafnréttismál miklu varða og barð-
ist ötullega fyrir jöfnum tækifærum
og möguleikum kvenna innan skíða-
íþróttarinnar. Árið 1927 giftist hún
skíðagarpinum og -framleiðandanum
Peter Østbye, sem meðal annars varð
þekktur af skíðamerkinu Splitkein.
Auk skíðaáhugans deildu þau hjón-
in stjórnmálasýn og voru bæði svarn-
ir andstæðingar kommúnisma auk
þess að leggja mikla fæð á gyðinga.
Það varð þeim því nánast opinberun
þegar Quisling stofnaði Nasjonal
Samling árið 1933, innblásinn af hug-
myndafræði Adolfs Hitlers og nas-
ismans. Í augum Østbye var Quisling
bjargvættur Noregs, maðurinn sem
var kominn til að bjarga fósturjörð
hennar frá gyðingum og komm-
únistum, sem legðu á ráðin um að
flækja Noreg í alþjóðlegan vef sinn.
„Hún var arkitektinn“
Østbye-hjónin vinguðust fljótt við
Maríu og Vidkun Quisling og urðu
trúnaðarvinir þeirra. Halldis Østbye
varð fljótt einkaritari leiðtogans og
kleif metorðastiga flokksins hratt.
Árið 1934 gerði Quisling hana að
áróðursstjóra kvennadeildar Nasjon-
al Samling og árið eftir skipaði hann
hana skrifstofustjóra fjölmiðla- og
áróðursskrifstofu flokksins.
Boðskapur Østbye byggðist á
stækri andúð í garð gyðinga. „Hún
lagði línurnar að andgyðinglegri
stefnu NS, hún var arkitektinn,“ seg-
ir sagnfræðingurinn Vegard Sæther
og leggur áherslu á að Østbye hafi
brotist til æðstu metorða innan flokks
sem gaf konum mjög takmarkað
rými. „Þær áttu að ala börn og vera
heima.“
Það var sjónarmið Hitlers sjálfs
enda gjörbreyttist staða Østbye eftir
að nasistar lögðu Noreg undir sig í
apríl 1940. Þjóðverjar sáu hana ekki
fyrir sér sem stjórnanda af neinu tagi
innan síns norska systurflokks. Í
bréfi, sem Østbye ritaði Quisling 8.
júní 1940, dregur hún ekki fjöður yfir
biturð sína í skugga nýs veruleika:
„Ég geri mér grein fyrir því að kyn
mitt er hindrun,“ skrifaði hún og lýsti
því enn fremur, að hún gæfist ekki
upp baráttulaust: „Það væri móðgun
ef karlmaður, síður hæfur en ég,
fengi stöðu mína,“ var blákalt mat
áróðursstjórans, sem engu að síður
varð að sætta sig við að töglin og
hagldirnar voru að ganga henni úr
greipum.
Var hún of öfgasinnuð?
Ekki hjálpaði hversu stirt var á
milli Østbye og Alberts V. Hagelin,
innanríkisráðherra og eins valda-
mesta manns NS. Hann vildi ekkert
með þessa gallhörðu hugsjónamann-
eskju og fyrrverandi flokksgæðing
hafa. „Mér þykir leitt, að hreyfingunni
[NS] er ekki ljós sá kraftur, sem ég
stend fyrir og kýs eingöngu að nýta
sér hæfileika mína að takmörkuðu
leyti,“ skrifaði Østbye, sem hiklaust
taldi sig tryggasta samstarfsmann,
sem Quisling nokkru sinni stæði til
boða.
Sagnfræðingurinn Sæther telur, að
þar hafi einmitt verið rót vanda Øst-
bye. „Ég held að hún hafi verið of
öfgasinnuð. Hún gekk of langt í gyð-
ingahatrinu og varði það af of mikilli
hörku,“ segir hann. Annað og síðara
bréf hennar til flokksleiðtogans sýndi
þetta svo ekki varð um villst og var
eitt höfuðsönnunargagnanna gegn
henni þegar Norðmenn drógu nasista
sína fyrir dóm sem landráðamenn eft-
ir stríðið.
„Ljóst er, að gyðingavandamálið
þarf að leysa endanlega og án tilfinn-
ingasemi þegar kemur að því að verja
okkar fólk og Evrópu fyrir nýrri fram-
rás gyðinga,“ stóð þar skrifað. Østbye
vildi, að gyðingar yrðu teknir af lífi
„hratt og sársaukalaust“. Það verk
mættu menn af norrænu kyni ekki
vinna, heldur Asíumenn eða Rússar.
Árið 1948 var Østbye dæmd til sjö
ára fangavistar. Áður en afplánun
hennar hófst útvegaði hún sér falsað
vegabréf og flúði til Spánar. Vegna
veikinda fóstursonar hennar sneri hún
til baka til Noregs og fór í fangelsi.
Halldis Østbye var náðuð árið 1953, en
sneri aldrei baki við stefnumálum sín-
um, sem henni fannst hún hafa tapað
með öllu. Quisling og Hitler voru farn-
ir. Hún endaði að lokum á geðsjúkra-
húsi, þar sem hún lést 19. október
1983, gleymd þjóðinni sem hana
dreymdi um að bjarga úr klóm gyð-
inga og kommúnista.
Byggt á samantekt Trond Ivan
Hagen, NRK.
Hinn norski Joseph Göbbels
- Halldis Neegård Østbye var ein nánasta samstarfsmanneskja Quislings - Helsti hugmyndasmiður
gyðingastefnu NS - Hallaði undan fæti eftir hernámið - Dó gleymd þjóðinni sem hún vildi bjarga
Ljósmynd/Þjóðskjalasafn Noregs
Flokksfundur Halldis Neegård Østbye reis til æðstu metorða innan Nasjonal Samling, þjóðernisflokks Quislings,
þar sem konur voru ekki á hverju strái. Hér stendur hún við hlið flokksleiðtogans í fremstu röð á myndinni.
Ljósmynd/Þjóðskjalasafn Noregs
Áróðursstjórinn Østbye gekk til
liðs við NS árið 1933.
Vidkun Abraham Lauritz Jonssøn
Quisling, leiðtogi norska þjóðernis-
flokksins Nasjonal Samling, komst
fyrst til valda undir merkjum þess
flokks með fulltingi Þjóðverja árið
1942, eftir innrás þeirra og hernám 9.
apríl 1940, en flokkur hans hafði þá
goldið afhroð í tvennum kosningum,
1933 og 1936, þar sem 2,2 og 1,8 pró-
senta fylgi varð lendingin og flokk-
urinn óraveg frá að koma nokkrum
manni á þing.
Varð Quisling það, sem Þjóðverjar
kölluðu Ministerpresident í þeirri rík-
isstjórn, sem Þjóðverjar studdu. Áður
hafði hann lýst sig forsætisráðherra
Noregs, innrásardaginn 1940, en þá
skipan mála voru Þjóðverjar ekki til-
búnir að fallast á.
Við lok styrjaldarinnar var Quisling
handtekinn, 9. maí 1945, ásamt fjölda
Norðmanna sem leynt eða ljóst höfðu
starfað með Þjóðverjum. Réttarhöld
yfir honum hófust í ágúst og 10. sept-
ember kvað Lögmannsréttur Eið-
sifjaþings upp dauðadóm yfir Quisling
fyrir landráð.
Aðfaranótt 24. október 1945 klukk-
an 02:40 var honum stillt upp frammi
fyrir tíu manna aftökusveit við Akers-
hus-virkið í Ósló og hann skotinn til
bana. Lík hans var brennt aðeins ör-
fáum tímum síðar í bálstofu Vestre
gravlund.
Ljósmynd/NTB
Skoðanabræður Quisling hitti Adolf Hitler alls ellefu sinnum, fyrst í des-
ember 1939, en fékk þó ekki að taka sér ráðherraembætti vorið 1940.
Landráðamaður
kvaddur um nótt
- Komst til valda með fulltingi Hitlers