Morgunblaðið - 08.07.2021, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 08.07.2021, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Í gær var kynnt ný skýrsla Efnahags- og framfarastofn- unarinnar (OECD) um Ísland og efna- hag þess. Þar er verðskuldað lof borið á við- brögð íslenskra stjórnvalda við efnahagslegum áhrifum heims- faraldursins og engum dylst að þar á Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags- ráðherra, mestan heiður. Íslenskt efnahagslíf varð fyrir miklum skelli í heimsfar- aldri kórónuveirunnar; hlut- fallslega mun meiri skelli en flest önnur ríki heims vegna þess hve ferðaþjónustan átti orðið drjúgan hlut verðmæta- sköpunar í landinu. Það var alls ekki sjálfgefið að unnt væri að sporna við þeim aðsteðjandi vanda, hvað þá með þeim hætti að í fyllingu tímans mætti spyrna við að nýju þannig að efnahagslífið kæmist skjótt á skrið aftur. Sú er hins vegar raunin og það er mikil gæfa. Vegna skynsamlegrar fjár- málastefnu undanfarinna ára var ríkisvaldið í stakk búið til þess að takast á við vandann og eins hefur Seðlabankinn haldið skynsamlega utan um peninga- málin á þessum fordæmalausu tímum. Líkt og staðfest er í skýrslunni hafa efnahags- úrræði stjórnvalda fyrir bæði fyrirtæki og heimili komið að góðum notum og að því búa Ís- lendingar nú, þegar þeir hafa loks getað fellt grímurnar og tímabært er að bretta upp erm- arnar. Þegar fjármálaráðherra kynnti nýja og uppfærða rík- isfjármálastefnu á liðnu ári urðu ýmsir til þess að láta í ljós varnaðarorð og jafnvel gagn- rýni á að lagt væri í svo mikinn hallarekstur hins opinbera, en hann svaraði því til að það mætti og ætti að beita rík- isfjármálunum af öllu afli þeg- ar hagkerfið skryppi svo sam- an. Bjarni Benediktsson tók undir að það væri ekki vanda- laust og mætti ekki gera stund- inni lengur en áfallið varði, enda væri ekki hægt að halda uppi eftirspurn í hagkerfinu til lengdar með því að reka ríkið með halla. Bjarni orðaði það svo í viðtali við Morgunblaðið í fyrra, að ríkisstjórnin veðjaði á að þetta væri tímabundið ástand og hún veðjaði á að ferðaþjónustan tæki skjótt við sér að því loknu, svo endurheimta mætti umsvif og störf í einkageiranum og vinna upp allt það sem tapast hefði í faraldrinum. Þetta mat, þessar ákvarð- anir og þessi veðmál reyndust rétt, eins og OECD staðfestir í skýrslu sinni. Mat OECD er að í höfuð- atriðum hafi ís- lenskum stjórn- völdum gengið vel í baráttunni við far- aldurinn og efna- hagslegar afleið- ingar hans, en jafnframt að fram undan sé viðsnúningur í efnahagslífinu. Hagkerfið hafi sýnt viðnáms- þrótt með öflugri einkaneyslu og vexti í öðrum útflutningi en ferðaþjónustu meðan kór- ónuveiran gekk yfir. Peninga- og fjármálastefna hins op- inbera hafi stutt vel við hag- kerfið, en þó að rétt sé að við- halda þeim stuðningi enn um sinn, þurfi að auka aðhaldið um leið og aðstæður leyfa til þess að stöðva skuldasöfnun ríkisins eins og raunar er mælt fyrir um í gildandi fjármálaáætlun. Á síðastliðnum vikum hefur náðst að bólusetja þorra full- orðinna Íslendinga gegn kór- ónuveirunni og Ísland varð fyrst landa til þess að aflétta öllum sóttvarnatakmörkunum innanlands. Samhliða hefur ferðaþjónustan tekið við sér af miklu afli og full ástæða til mikillar bjartsýni um horfur í henni. Líkt og rakið var í kynn- ingu á skýrslu OECD í gær er því ekki ósennilegt að hag- vöxtur fari fram úr fyrri spám. Það á alls ekki við í öllum löndum OECD, sérstaklega ekki á meginlandi Evrópu, þar sem fátt virðist geta komið í veg fyrir að fjórða bylgja far- aldursins rísi áður en þessi mánuður er á enda. Þar hefur ekki tekist að fullbólusetja nema um þriðjung helstu þjóða og viðbúið að flest Evrópuríki að Bretlandi undanskildu verði lömuð af sóttvarnaráðstöf- unum fram á haust. Afleiðingar þess kunna að verða lang- vinnar; pólitískar ekki síður en efnahagslegar. Þeirra áhrifa kann vel að gæta á Íslandi, sem ekki er eyland í öllum skilningi. En í því kunna einnig að felast ýmis tækifæri, efnahagsleg sem pólitísk, fyrir þróttmikla og sóttlausa þjóð á miðju Atlants- hafi. Sagan, bæði að fornu og nýju, sýnir að Íslendingar eru fljótir að ná sér á strik eftir áföll. Að þessu sinni stóðust bæði stjórnvöld og helstu inn- viðir prófið, en mestu munaði um samstöðu þjóðarinnar í baráttu við veiruna og afleið- ingar hennar. Þess vegna eru okkur nú allir vegir færir. Viðbragðshraði íslensks hagkerfis getur ekki aðeins leitt af sér jafnvægi, fulla at- vinnu og velsæld á ný, heldur á hann að geta fært okkur kraft- meiri vöxt en Íslendingar hafa átt að venjast. Skýrsla OECD staðfestir að við erum á réttri leið. Reynslan sýnir að rétt var haldið á ríkisfjármálunum í gegnum faraldurinn} Ísland á réttri leið S ögurnar um dans forsætisráðherra og fjármálaráðherra eru sögur sem má ekki segja. Þær eru mjög vandræðalegar og það væri óvið- eigandi að vísa í þær sem tákn- mynd fyrir núverandi stjórnarsamstarf. Það kom því mörgum á óvart þegar vinstri og hægri gengu saman út á dansgólfið í upphafi þessa kjörtímabils undir rólegri framsóknar- tónlist. Á meðan dansfélagarnir keppast við að mæra hvor annan klóra allir aðrir sér í hausnum yfir þessum undarlega dansi. Það er djæfað yfir heilbrigðiskerfið, lindyhoppað yfir Landsrétt, valsað yfir sjávarauðlindina, steppað yfir stjórnarskrána og svo slammað yfir hálendið svo fátt eitt sé nefnt. Síðastliðinn þriðjudagur, þegar haldinn var aukaþingfundur, var líklega síðasti danstím- inn á þessu kjörtímabili. Þar mæltum við Píratar fyrir breytingu við þingfrestun forsætisráðherra. Þar lögðum við til að þingið byði þjóðinni í dans um stjórnarskrána. Dansinn sem þjóðin bað um í atkvæðagreiðslu árið 2012, fyrir níu árum, og hefur ekki enn fengið. Þar gafst þing- mönnum tækifæri til að greiða atkvæði um aukaþing- fundi í ágúst til þess að bæta að minnsta kosti við breyt- ingarákvæði í stjórnarskrána sem krefst ekki alþingiskosninga. Atkvæðagreiðslan var áhugaverð, en tillöguna studdu þeir flokkar sem lögðu hana fram ásamt Pírötum; Sam- fylkingin og Flokkur fólksins. Nei sögðu Sjálfstæð- isflokkur, Miðflokkur, Vinstri græn og Framsókn. Við- reisn sat hjá með orðum formannsins: „Ég get ekki tekið undir að það eigi að innleiða hina svokölluðu nýju stjórnarskrá.“ Vandinn sem við glímum við í dag, þegar kemur að stjórnarskrárbreytingum, er að þegar Alþingi samþykkir slíkar breytingar þá þarf að rjúfa þing og boða til almennra kosn- inga. Í þeim kosningum er ekki kosið um stjórnarskrárbreytingarnar sjálfar heldur er bara gert ráð fyrir hefðbundnum þingkosn- ingum þar sem fólk kýs flokka eins og venju- lega. Þessu viljum við breyta, þannig að fólk geti sagt álit sitt á þeim stjórnarskrárbreyt- ingum beint – án þess að þurfa að kjósa stjórnmálaflokka á sama tíma. Það er jú þjóð- in sem er stjórnarskrárgjafinn. Ef stjórnar- skráin væri tónlist, þá er þjóðin tónskáld og þingið dansar eftir því hvort þjóðin spilar rokk, diskó eða polka. Nýja stjórnarskráin inniheldur margar betrumbætur fyrir lýðræðið. Málskotsrétt fyrir þjóðina, frumkvæð- isrétt, upplýsingarétt, frelsi fjölmiðla, auðlindaákvæði, jafnt vægi atkvæða og margt fleira. Nauðsynlegar upp- færslur fyrir nútímasamfélag. En þær verða að bíða á meðan forsætisráðherra og fjármálaráðherra klára dansinn sinn í friði. Ekkert þing og enginn stjórnar- skrárstubbur síðustu fjóra mánuðina fyrir kosningar til þess að trufla ekki síðasta vangadansinn. bjornlevi@althingi.is Björn Leví Gunnarsson Pistill Síðasti dansinn? Höfundur er þingmaður Pírata. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Guðni Einarsson gudni@mbl.is K irkjuþing unga fólksins, haldið 14.-16. maí, sam- þykkti þingsályktunar- tillögu um að allar myndbirtingar af börnum yrðu bannaðar á vef- og prentmiðlum Þjóðkirkjunnar. Jafnframt því eigi prestar og starfsfólk kirkjunnar ekki að setja myndir af börnum í safnaðarstarfi á persónulegar síður sínar. „Þetta er í takti við nýjar per- sónuverndarreglur sem eru að ryðja sér til rúms. Þetta er gert til að vernda börnin svo þau þurfi ekki að svara fyrir það síðar að hafa lát- ið taka af sér myndir á einhverjum vettvangi,“ sagði Jónína Sif Ey- þórsdóttir, framkvæmdastjóri Æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar (ÆSKÞ). Sambandið annaðist framkvæmd kirkjuþings unga fólksins í samstarfi við Biskups- stofu. Í greinargerð með tillögunni kemur fram að trúmál séu flokkuð sem viðkvæmar persónuupplýs- ingar. Ótækt sé að kirkjan taki sér það vald að birta slíkar upplýsingar á vef- og prentmiðlum sínum. „Erf- itt er að gera sér grein fyrir varan- leika myndbirtinga og hvaða áhrif það mun hafa á lífsleiðinni. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að gagnaöflun er notuð í viðskiptalegum tilgangi og verður aldrei afmáð. Þá nota miðlar eins og Facebook andlitsgreiningu til að greina persónur í viðskipta- og auglýsingaskyni, hvort sem börn eru merkt inn á myndina eða ekki,“ sagði í greinargerðinni. Jónína Sif segir að myndbirt- ingar af börnum séu orðnar meira álitamál en þær voru vegna tilkomu samfélagsmiðla og gagnagrunna sem geyma þessar myndir. Þá sé tekið tillit til nýju persónuverndar- laganna frá 2018 og evrópsku per- sónuverndarreglugerðarinnar. „Við erum með stóra viðburði þar sem er fjöldinn allur af börn- um. Þá er erfitt að fylgjast með því hvaða foreldrar óska eftir því að ekki séu teknar myndir af þeirra börnum. Almennt snýst þetta um að vernda börnin,“ sagði Jónína Sif. Þetta eigi einkum við opinbera birt- ingu eins og t.d. á netmiðlum. Hún nefndi að í ýmsu félagsstarfi og í leik- og grunnskólum væri þessi krafa orðin algeng. Börn njóta friðhelgi einkalífs Reykjavíkurborg hefur gefið út leiðbeiningar um myndatökur og myndbirtingar í skóla- og frí- stundastarfi. Þar er m.a. bent á að börn njóti lögum samkvæmt frið- helgi einkalífs og persónuverndar. Ljósmyndir og myndbönd geta fall- ið undir persónuupplýsingar. Ekki má mynda börn í leik eða starfi án leyfis stjórnanda starfs- stöðvar eða umsjónarmanna þeirra. Sama gildir um birtingu myndefnis. Foreldrar fara með hæfi til að veita samþykki fyrir vinnslu upplýsinga varðandi ólögráða börn. Stjórnendur í skóla- og frí- stundastarfi bera ábyrgð á mynda- tökum og myndbirtingum á sínum starfsstað, þ.m.t. því að uppfyllt séu skilyrði persónuverndarlaga. „Persónuvernd hefur beint þeim tilmælum til leikskóla, grunn- skóla, frístundaheimila, íþrótta- félaga og allra annarra opinberra aðila og einkaaðila, sem koma að starfi með börnum, að þeir noti ekki Facebook eða sambærilega samskiptamiðla fyrir miðlun per- sónuupplýsinga um ólögráða börn, hvort heldur sem um almennar eða viðkvæmar persónuupplýsingar þeirra er að ræða.“ Þrengt að birtingu mynda af börnum Morgunblaðið/Kristinn Barnastarf Myndir á borð við þessa gömlu mynd munu væntanlega heyra sögunni til verði myndbirtingar af börnum í kirkjustarfi bannaðar. Kirkjuþing unga fólksins sam- þykkti einnig þingsályktun um að Þjóðkirkjan – Biskupsstofa komi upp alhliða myndheimi sem verði aðgengilegur söfn- uðum til notkunar í kynning- arefni og auglýsingum. „Við störfum í umhverfi þar sem aukin áhersla er á per- sónuvernd. Kirkjan vill taka fullan þátt í að virða og vernda þau réttindi, sér- staklega barna. Með því að leggja af alla myndbirtingu barna skapast þörf fyrir efni sem geti komið þess í stað. Yfirgripsmikill myndheimur myndi fylla í þetta skarð og skapa um leið heildstæða ímynd fyrir kirkjuna og skapa hugrenningatengsl hjá al- menningi milli einstakra aug- lýsinga,“ segir í greinargerð með tillögunni. Tillögur kirkjuþings unga fólksins verða lagðar fyrir kirkjuþing í haust. Myndi alhliða myndheim ÞJÓÐKIRKJAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.