Morgunblaðið - 08.07.2021, Qupperneq 42
Helga Margrét segist alltaf vera
fín og það er hennar versta mar-
tröð að vera ekki nógu fín. Að
hennar mati er miklu skemmti-
legra að vera í of fínum fötum en
ekki. Hún vitnar í skáldið Oscar
Wilde þegar kemur að þessari lífs-
speki en hann sagði að fólk gæti
ekki klæðst of fínum fötum né
menntað sig of mikið.
Innblásturinn sækir Helga Mar-
grét til sjöunda og tíunda áratugs
síðustu aldar. Stutt pils, skokkar,
pelsar og skótíska frá þessum tíma
heilla hana gríðarlega. Hreinu lín-
urnar heilla hana mikið, litirnir og
mynstrin. Hún hefur þetta hugfast
þegar hún kaupir föt og segir
klassísk snið og fallega liti ekki
fara úr tísku.
Áttu þér uppáhaldsverslun á Ís-
landi?
„Vero Moda, Spútnik og Zara
eru búðirnar sem ég kíki oftast í.
Ég er mjög dugleg að kíkja í alls
konar verslanir samt. Það er fátt
skemmtilegra en að rölta í bænum
með tebolla í ferðamáli og skoða
allar búðir sem ég geng fram hjá.“
Helga Margrét verslar líka á
netinu og viðurkennir að hafa verið
allt of dugleg í því í kórónuveiru-
faraldrinum. „Sérstaklega í fyrra
þegar maður hafði ekkert að gera í
Covid. Þá eyddi ég allt of
stórum hluta dagsins í að
skoða Asos, svona versl-
unarmeðferð.
En er búin
að vera mjög
dugleg að
gera ekki of
mikið á þessu
ári.“
Skærbleikur
varalitur og falleg
spöng setja punkt-
inn yfir i-ið þegar
Helga Margrét ger-
ir sig til. „Mér
finnst ég vera hálf-
nakin án þess að
vera með varalit,
finnst það vera
meira eins og mik-
ilvægur fylgihlutur
frekar en snyrtivara. Síð-
an er falleg yfirhöfn það
mikilvægasta. Maður getur
verið í svo venjulegum föt-
um en síðan ferðu í síða
gula kápu yfir og þá verður
þú strax fínust. Síðast en
ekki síst má ekki gleyma að
sjálfstraust er besti fylgihlut-
urinn. Það fer allt eftir því
hvernig þú berð þig í flík-
unum.“
Guðrún Selma Sigurjónsdóttir
gudrunselma@mbl.is
Helga Margrét er með skvísulegan
stíl en segir að hún myndi aldrei
lýsa honum sem kúl eða töff. Hún
elskar litríkan klæðnað og er
óhrædd við að blanda saman
gömlu og nýju. „Þið finnið mig oft-
ast í stuttu pilsi og skyrtu, blússu
eða rúllukragabol. Og síðast en
ekki síst í fallegri kápu og hæla-
skóm. Það er svona mín uppskrift
að hinu fullkomna dressi. Síðan vil
ég helst alltaf vera í kjól þegar ég
fer eitthvað út á lífið. Ég reyni að
vera alltaf í ljósum og fallegum lit-
um, alls ekki í dökkum eða gráum
fötum. Hvítur, bleikur og fjólublár
eru algengustu litirnir í fataskáp-
unum mínum,“ segir Helga Mar-
grét um fatastílinn sinn.
Hvað eru bestu kaup sem þú
hefur gert?
„Bleika og svarta Ted Baker-
taskan mín sem ég keypti 2014.
Hún var mjög dýr fyrir 16 ára mig
en hef notað hana stanslaust síð-
ustu ár og ég get ekki ímyndað
mér að hún hætti nokkurn tímann
að vera uppáhaldsveskið mitt.
Gæti ekki verið meira klassísk,“
segir Helga Margrét. Þar á eftir
koma kápurnar sem hún á erfitt
að gera upp á milli, enda gerir fólk
ekki upp á milli barnanna sinna.
Hvað er nauðsynlegt að eiga í
fataskápnum þessa stundina?
„Fallega sumarkjóla og sokka-
buxur sem eru ekki með neinum
götum! Síðan vil ég meina að
heimurinn væri betri staður ef all-
ir væru meira í pallíettum og past-
el-litum, helst þá bleiku og fjólu-
bláu en það er bara kenning.“
Hvað er á óskalistanum fyrir
sumarið?
„Það helsta er bara að fá mikla
sól. Vil bara vera berleggja í fal-
legum sumarkjólum, en hingað til
hefur veðrið ekki alveg boðið upp
á það. Ég hef fulla trú á að júlí
verði betri og þá vantar mig helst
þann fullkomna lautarferðarkjól,
er búin að vera að leita víða að
honum,“ segir Helga Margrét sem
er reyndar spennt fyrir haustinu
og að fá vonandi að mæta í skól-
ann. Ný föt fyrir skólann eru
því á óskalistanum. Pils og
jakki í stíl eru á óska-
listanum. „Það væri
draumur að ég gæti
verslað endalaust hjá
Chanel, Sister Jane og
Ted Baker, en það er
ekki svo gott núna.“
Morgunblaðið/Eggert
Skór
Helga á
yfir 100
skópör.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2021
KRINGLAN – SMÁRALIND – DUKA.IS
KLIPPAN
Teppi – 100% ull
Verð frá 14.900,-
Morgunblaðið/Eggert
Baklaus Helga Margrét er
hrifin af baklausum kjólum.
Yfirhafnir Gula kápan
er úr Topshop og task-
an frá Ted Baker.
Helga Margrét Agnarsdóttir, lögfræðinemi og karókístjórnandi á Sæta
svíninu, er með flottan fatastíl. Hún er alltaf fín til fara og oftar en ekki
sker Helga Margrét sig úr fjöldanum á Íslandi.
Helga Margrét er
með skvísulegan stíl
Lagerfeld Taskan er
frá Karli Lagerfeld
en pilsið og jakkinn
úr TopShop.
Samlitt Í
fjólubláu frá
toppi til táar.