Morgunblaðið - 08.07.2021, Side 44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2021
Þóra Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Hreinleiki afurðanna og gæði rímar
fullkomlega við þróun á neyt-
endamarkaði um heim allan þar
sem neytendur gera æ meiri kröfur
til framleiðenda. Íslenskir sauð-
fjárbændur standa undir þeim kröf-
um og gott betur, enda hafa þeir
verið meðvitaðir um þessa þróun.
Markaðurinn er þar að auki tilbú-
inn í næsta skref, sem er fullur
rekjanleiki afurðanna.
Framleiðnin hæst hér á landi
Hafliði Halldórsson hefur verið
ötull í kynningarstarfi fyrir Bænda-
samtökin og sjálfsagt fáir sem vita
meira um íslenskt lambakjöt en
hann. Að setjast niður með honum
er ákaflega fróðlegt og nauðsynlegt,
enda varðar íslenskur landbúnaður,
og þá ekki síst sauðfjárræktin, okk-
ur öll. Hafliði segir að gríðarlega
margt jákvætt sé í kortunum og að
íslenskir sauðfjárbændur standi
mjög framarlega. „Sauðfjárbændur
hafa á þessari öld aukið framleiðni
eftir hverja kind um 20-30% með
kynbótastarfi og brugðist við kröf-
um neytenda um hækkað hlutfall
vöðva og minni fitu í lambaskrokk-
um. Um leið hefur kolefnisspor fyr-
ir hvert kíló lambakjöts minnkað
um svipað hlutfall. Framleiðni
lambakjöts á hverja kind er nú
hæst hjá íslenskum sauðfjár-
bændum í samanburði við allar
Evrópuþjóðir,“ segir Hafliði og
bendir á að það sé eftirtektarverður
árangur, því íslenska sauðkindin sé
minni og léttari en þau kyn sem al-
gengust eru í sauðfjárrækt í Evr-
ópu. „Sem sýnir að bændurnir okk-
ar standa sig vel og eru í
fararbroddi þegar kemur að bú-
skapnum með nútímavinnu við kyn-
bætur.“
Sauðfjárbændur hafa frá árinu
2017 lagt til fé úr sínum hluta af
stuðningi hins opinbera við greinina
í miðlæga markaðssetningu fyrir ís-
lenskt lambakjöt. Hafliði segir að
markmiðið sé að neytendur heyri
og skilji hvaða sérstöðu og kosti
varan hefur og átti sig á hvernig
hún er framleidd. „Markaðsstofan
íslenskt lambakjöt „Icelandic
Lamb“ var stofnuð til þess að vinna
að framgangi þess, með aðaláherslu
á ferðamannamarkaðinn. En ís-
lenskir neytendur hafa líka fengið
að sjá til okkar og heyra frá síðasta
ári sem er mjög mikilvægt því ís-
lenskir neytendur eru mikilvægustu
viðskiptavinir íslenskra bænda.
Spurður hvort neyslumynstur
landsmanna sé að breytast segir
Hafliði að það sé ótvírætt. „Nútíma-
fólk neytir tvímælalaust fjölbreytt-
ari fæðu en tíðkaðist hér fyrir örfá-
um áratugum og úrvalið er meira.
Neysla á lambakjöti er gríðarlega
mikilvæg á Íslandi, enda afar mik-
ilvægur hluti af okkar matarmenn-
ingu og um leið sú íslenska matvara
sem flestir Íslendingar telja þjóð-
arréttinn,“ segir Hafliði en sam-
kvæmt Gallup-könnun, sem gerð
var fyrir Kokkalandsliðið árið 2015,
sögðust 74% aðspurðra líta á
lambakjöt sem þjóðarrétt Íslend-
inga.
„Skyndiréttir og hálftilbúnir rétt-
ir verða sífellt mikilvægari í hraða
nútímans og við viljum minna á
lambið í því samhengi. Svo sjáum
við að ungt fólk heldur oft að mat-
reiðsla á lambakjöti sé flókin og
tímafrek og veigrar sér við að elda
lambakjöt fyrir sig og sína á virk-
um dögum. Það er hins vegar fjöldi
bita og rétta sem hægt er að nota
lamb í á fljótlegan hátt og tekur
einungis 10-20 mínútur að útbúa á
grilli, pönnu og í pottrétti, tilvalið á
virkum dögum. Svo stendur gamla
góða sunnudagssteikin alltaf fyrir
sínu og allir hægelduðu lambakjöts-
réttirnir sem tengjast hefðum og
hátíðisdögum,“ segir Hafliði.
Skiptir máli að segja söguna
Hafliði segir að neytendur nú til
dags geri vaxandi kröfur um ná-
kvæmar merkingar og séu umtals-
vert meðvitaðri, sem sé ákaflega
mikilvægt. Neytendur skilgreini sig
líka eftir ýmsum skoðunum á inni-
haldi matvæla og uppruna þeirra;
sumir borða eingöngu dýrafurðir,
aðrir engar dýraafurðir og svo allt
þess á milli. Hafliði segir að þessu
fylgi bæði ógnir og tækifæri. „Ég
tel að tækifæri íslensks lambakjöts
felist í því að segja söguna og halda
á lofti að þessi afurð er búin til á
náttúrulegan hátt á smáum fjöl-
skyldubúum, án inngrips í nátt-
úrulega hringrás og að dýravelferð
sé íslenskum bændum gríðarlega
mikilvæg. Hér búa dýrin við mikið
Íslenska lambakjötið er einstakt
Íslenskt lambakjöt hefur
verið í mikilli sókn und-
anfarin ár enda neyt-
endur smám saman að
átta sig á hversu mikil
úrvalsvara er þar á ferð.
Það er oft talað um að
glöggt sé gests augað,
en ef marka má við-
brögð erlendis við
lambakjötinu er bjart
fram undan.
Morgunblaðið/Unnur Karen
Gæðin skipta máli Hafliði Hall-
dórsson, verkefnastjóri á markaðssviði
Bændasamtaka Íslands, segir spenn-
andi tækifæri fram undan fyrir ís-
lenska sauðfjárrækt.
Íslenski sauðfjárstofninn hef-
ur haldist án blöndunar við
önnur kyn frá landnámsöld,
dýrin búa við mikið frelsi og
rými, geta valið sér beit í
grasi, villtum jurtum og berj-
um og hafa nægt aðgengi að
hreinu vatni.
Íslensk lömb eru 4-6 mán-
aða við slátrun á Íslandi en
samkvæmt alþjóðlegri skil-
greiningu eru lömb allt að 12
mánaða við slátrun sem þekk-
ist ekki hér.
Bragðgæði og mýkt skorar
hátt hjá matgæðingum og í al-
þjóðlegum samanburðarrann-
sóknum.
Sauðfjárbændur bönnuðu
notkun á erfðabreyttu fóðri í
íslenskri sauðfjárrækt 2016,
en lítið magn innflutts fóðurs
er notað fyrir kindur á vet-
urna. Nú er tryggt að ekki
finnast erfðabreyttar afurðir í
því, en neytendur hafa enn
ekki verið upplýstir um þenn-
an þátt á umbúðum.
Íslenskt lambakjöt er fyrsta
íslenska afurðin sem fékk ís-
lenska upprunatilvísun og er
enn sem komið er eina mat-
varan á landinu sem hefur
upprunatilvísunina. Umsókn
um vel þekkta evrópska upp-
runavottun er í ferli.
Vissir þú að ...