Morgunblaðið - 08.07.2021, Síða 45

Morgunblaðið - 08.07.2021, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2021 Mörkin 6 - 108 Rvk. s:781-5100 Opið: 11-18 virka daga Lokað á laugardögum í sumar. www.spennandi-fashion.is ÚTSALA - ÚTSALA - ÚTSALA 40% AFSLÁTTUR AF FATNAÐI OG SKÓM! frelsi og bíta villtan gróður sem veldur því til að mynda að há gildi heilsusamlegra Omega 3-fitusýra mælast í kjötinu.“ Lambakjöt markaðssett sem hágæðavara erlendis Hér á landi eru það afurðastöðv- arnar sem sjá um allan útflutning á lambakjöti en markaðsstofan Ís- lenskt lambakjöt kemur að útflutn- ingi til þriggja erlendra markaða; Danmerkur, Þýskalands og Japans. „Það gerum við með því að leggja innflytjendum lambakjötsins til vörumerki okkar sem stendur fyrir uppruna og gæði, ásamt markaðs- efni og vinnu við auglýsingar og kynningar. Þessi verkefni eiga öll sameiginlegt að horfa á háenda staðsetningu á markaði með áform um að byggja af þolinmæði upp stöðuga sölu á efnahagslega sjálf- bæran hátt. Í Danmörku má sjá í netverslun útsöluverð á íslensku lambakjöti, sem getur verið nokkr- um hundruðum prósenta hærra en útsöluverð fyrir sömu bita hér heima. Við teljum þetta mjög áhugavert og sýna hvað lambakjöt- ið á inni þegar hakað er í réttu box- in í að segja söguna, rýna mark- aðinn og verðleggja vöruna samkvæmt þeim tækifærum sem þar bjóðast,“ segir Hafliði. Auðvelt að elda lamb Mikilvægasti markaðurinn er þó hér á landi og aðspurður hvort munur sé á aldri neytenda, segir Hafliði að vissulega sé munur en hann helgist líka af breyttum neysluvenjum. „Fjölskyldufólk á bilinu 30-55 ára er duglegt að elda lamb en kann- anir sýna þess merki að þessi hópur eldi það frekar um helgar, en minna virka daga. Hér skipta pakkningastærðir miklu og þeir framleiðendur sem bjóða neyt- endum smærri einingar, vandaða og fallega framsetningu, njóta þess í sölu.“ Hér skipti vöruþróun og fram- setning gríðarlega miklu máli. „Við merkjum að hluti fólks í yngsta hópnum heldur að lambakjöt sé flókið í eldun. Sem við bregðumst við með því að miðla einföldum og fljótlegum uppskriftum á nýja vefn- um okkar islensktlambakjot.is. Sem sýna einmitt að lamb er fljótlegt og einfalt í eldun í fjölbreyttum út- færslum sem höfða til nútíma neyt- enda, til dæmis í taco, núðlurétti ogpastarétti, fyrir utan allt hitt sem fólk tengir lambið við.“ Gríðarleg tækifæri fram undan Hafliði segir að í kröfum neyt- enda felist mikil tækifæri. „Ég tel gríðarleg tækifæri í því fyrir ís- lenskt lambakjöt og íslenskan land- búnað í heild að komin sé fram skýr krafa neytenda um upprunamerk- ingar sem sýni nákvæmlega hvar og hvernig afurðin var framleidd. Kannanir sýna líka að yfirgnæfandi hluti neytenda kýs íslenskar land- búnaðarvörur, sé þess kostur, og skýrar og auðskildar merkingar sýni það svart á hvítu. Neytendur velja líka í auknum mæli vörur sem hafa jákvæða kosti, slíkar fullyrð- ingar þurfa að vera sannreyndar og því þarf að miðla til neytenda á um- búðum og í verslunum. Eldri hópar eru dyggir neyt- endur lambakjöts og kenna þeim sem yngri eru að njóta þess, með því að bjóða upp á gömlu góðu rétt- ina eins og kjötsúpu og stórsteik- urnar. Ég vil svo minna ömmur og afa þessa lands að kenna afkomend- unum að elda þessa rétti svo þeir lifi áfram í öllum sínum útfærslum á heimilum okkar,“ bætir Hafliði brosandi við og ljóst er að þessi sendiherra íslenska lambakjötsins hefur óbilandi trú á verkefninu. Kóríandersalsa 2 hnefafylli kóríander, skorinn smátt 1 hnefafylli steinselja, skorin smátt 1 lítill hvítlauksgeiri, saxaður smátt 1 tsk. sjávarsalt 2-3 tsk. dijon-sinnep 30 g kapers, skolað og saxað smátt ½ til 1 tsk. sítrónubörkur, rifinn smátt 200 ml ólífuolía 1-2 tsk. rauðvínsedik Sýrður rauðlaukur með jalapeno-pipar 240 ml eplaedik 160 ml vatn 2 msk. sykur 1 msk. sinnepsfræ ½ tsk. kumminfræ 2 rauðlaukar, skornir í þunnar sneiðar 1 jalapeno, skorinn í þunnar sneiðar Chipotle-sósa 150 g majónes 2 tsk. chipotle-mauk 1 hvítlauksgeiri, saxaður smátt Lamba-tacos 450-500 g lambamínútusteik u.þ.b. ½ tsk. sjávarsalt u.þ.b. ¼ tsk. svartur pipar, nýmalaður olía, til steikingar 8-12 litlar tortillakökur 1 uppskrift kóríandersalsa 1 uppskrift sýrður rauðlaukur 1 uppskrift chipotle-sósa 1 límóna, skorin í báta Kóríandersalsa Setjið eplaedik, vatn, sykur, sinn- epsfræ og kumminfræ í lítinn pott á miðlungsháan hita. Komið upp að suðu og látið malla þar til allur sykurinn er uppleystur. Takið af hitanum og látið kólna ör- lítið. Setjið lauk og jalapeno saman í hitaþolna og sótthreinsaða krukku sem rúmar u.þ.b. 400 ml. Hellið edikleginum yfir, passið að hann fljóti vel yfir. Lokið krukkunni og kælið þar til fyrir notkun. Sýrður rauðlaukur með jalapeno-pipar Setjið eplaedik, vatn, sykur, sinn- epsfræ og kumminfræ í lítinn pott á miðlungsháan hita. Komið upp að suðu og látið malla þar til allur sykurinn er uppleystur. Takið af hitanum og látið kólna ör- lítið. Setjið lauk og jalapeno saman í hitaþolna og sótthreinsaða krukku sem rúmar u.þ.b. 400 ml. Hellið edikleginum yfir, passið að hann fljóti vel yfir. Lokið krukkunni og kælið þar til fyrir notkun. Chipotle-sósa Setjið allt hráefni saman í bland- ara og maukið í u.þ.b. 1 mín. eða þar til sósan er slétt. Setjið í litla skál og kælið þar til fyrir notkun. Lamba-tacos Þerrið kjötið og sáldrið salti og pipar yfir. Hitið pönnu eða grillpönnu og haf- ið á háum hita. Steikið kjötið í u.þ.b. 1 mín. á hvorri hlið. Takið af hitanum og setjið á bretti. Látið kjötið hvíla í 5 mín. og skerið það því næst niður í þunnar sneiðar. Steikið tortillakökurnar á þurri pönnu í u.þ.b. 30 sek. á hvorri hlið. Setjið kóríandersalsa, skorið lambakjöt, sýrðan rauðlauk og chi- potle-sósu á tortillakökurnar og kreistið límónusafa yfir. Ljósmynd/Íslenskt lambakjöt Lamba-tacos með kóríandersalsa Á alltaf vel við Hér er einföld mínútusteik skorin niður í strimla. Fljótleg og góð aðferð við að fram- reiða úrvalskvöldverð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.