Morgunblaðið - 08.07.2021, Side 46

Morgunblaðið - 08.07.2021, Side 46
Þáttastjórnendur K100 halda áfram í ferðagírnum um komandi helgi og er næsta stopp þeirra sveitarfélagið Árborg. Í þáttaliðnum Við elskum Ísland hafa morgunþátturinn Ísland vaknar, Síðdegisþátturinn og Helgarútgáfan flakkað vítt og breitt um landið þar sem þau fá að kynnast allri þeirri upplifun sem Ísland hefur upp á að bjóða. Nú er komið að sveitarfélaginu Árborg sem tekur vel á móti Síðdegisþættinum og Helgarútgáf- unni um helgina á Kótelettunni. Þar verður snark í glóandi kol- um á grill- og fjölskylduhátíðinni á Selfossi og hjóla þau svo stemn- inguna í gang með KIA-gull- hringnum þar sem allir hjóla, allir vinna og það eru allir velkomnir í Árborg. K100 verður í beinni útsendingu úr nýja miðbænum á Selfossi föstudaginn 9. júlí í Síðdegisþætt- inum með Sigga Gunnars og Loga Bergmann á milli kl. 16 og 18. Helgarútgáfan með Einari Bárðar, Önnu Margréti og Yngva Eysteins tekur svo laugardaginn með trompi á milli kl. 9 og 12. Hlustaðu í beinni á K100 og ekki missa af Við elskum Ísland. Árborg tekur vel á móti K100 um helgina Síðdegisþátturinn Logi Berg- mann og Siggi Gunnars verða í beinni á föstudaginn milli 16 og18. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2021 Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Tímapantanir í síma 533 1320 Búumyfir 20 ára reynslu í húðmeðferðum -Þitt útlit.Okkar þekking. HÚÐÞÉTTING • Lyftir og þéttir slappa húð • Vinnur á appelsínuhúð • Öflug lausn við húðslitum • Örvar sogæðaflæði • Gefur unglegra og ferskara útlit FITUEYÐING • Eyðir fitu á erfiðum svæðum • Er sársaukalausmeðferð • Er byggð á nýjustu tækni til að eyða fitu • Er áhrifaríkmeðferð • Er öruggmeðferð Frábær TILBOÐ hjá TILBO Ð 30% afsláttur Dj Dóra Júlía djdorajulia@k100.is Ég hef áður talað um dálæti mitt á uppbyggilegu og fallegu hrósi. Landssamtökin Geðhjálp hafa verið með frábært hrós- framtak í gangi í sumar sem hefur verið mikill gleðigjafi. Ég fékk að spjalla við þau aðeins um hvernig þetta hrós-framtak fór af stað. Geðhjálp gaf öllum lands- mönnum 30 daga geðræktar- dagatal í byrjun árs. Dagatalið innihélt 30 einföld ráð, svokölluð G-vítamín, sem ætlað er að stuðla að bættri geðheilsu. Á hverjum degi hvöttu þau lands- menn til að taka inn G- vítamínskammt dagsins og hlúa þannig að geðheilsu sinni. „Eitt af þessum G-vítamínum var að hrósa fólki, en það er bæði yndislegt að fá hrós og það veitir einnig vellíðan að hrósa öðrum. Eftir að 30 daga G- vítamínátakinu lauk í febrúar höfum við verið að fylgja því eftir á samfélagsmiðlum með því að taka eitt G-vítamín fyrir og fjalla ítarlega um það í nokkrar vikur og er hrós-átakið partur af því,“ segja þau og bæta við: „Við höfum fengið frábærar viðtökur og erum ótrúlega þakklát öllum sem hafa tekið þátt í því að dreifa jákvæðni og fallegum boðskap með okkur.“ Það er ótrúlega skemmtilegt að fylgjast með þessum fallegu hrós- myndböndum á Instagram- og Facebook-síðunni hjá Geðhjálp og er þetta góð áminning um að hrósa einhverjum í dag og dreifa gleðinni. Hvetja Íslendinga til þess að hrósa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.