Morgunblaðið - 08.07.2021, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2021 57
Læknafélagið leitar að kraftmiklum og metnaðarfullum
einstaklingi í fullt starf sérfræðings á skrifstofu félagsins.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem annars
vegar felur í sér gagnaöflun/gagnagreiningu á heil-
brigðismálum og hins vegar rekstrar- og bókhaldsvinnu.
Sérfræðingur heyrir undir framkvæmdastjóra og starfar
náið með honum sem og formanni og starfsfólki félags-
ins.
Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á heilbrigðis-
málum og getu til að meta rekstur og umhverfi heil-
brigðisþjónustu. Einnig þarf viðkomandi að eiga auðvelt
með að koma þeim upplýsingum á framfæri á hnit-
miðaðan hátt, bæði í rituðu og mæltu máli.
Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá ásamt kynn-
ingarbréfi þar sem umsækjandi gerir betur grein fyrir
menntun sinni, hæfni, þekkingu og reynslu. Einnig skal
tilgreina að minnsta kosti tvo umsagnaraðila.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Umsýsla og umsjón launatölfræði.
• Gerð sjálfstæðra úttekta um hagfræðileg málefni.
• Aðkoma að gerð kjarasamninga.
• Ráðgjöf og fræðsla tengd kjarasamningum.
• Yfirumsjón með bókhaldi félagsins.
• Gerð fjárhagsáætlana.
• Ráðgjöf til fyrirtækja lækna og hópa lækna á sama
starfsvettvangi.
• Aðkoma að stefnumótun LÍ varðandi mótun hins
íslenska heilbrigðiskerfis.
• Seta í nefndum og starfshópum.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf í hagfræði, viðskiptafræði eða skyldum
greinum.
• Góð greiningarhæfni og gott vald á úrvinnslu og
framsetningu tölulegra upplýsinga.
• Þekking og reynsla af málefnum stéttarfélaga og
vinnumarkaðsmálum er kostur.
• Góð þekking á töflureikni og reynsla af vinnslu gagna-
grunna.
• Bókhaldsþekking, reynsla af DK viðskiptahugbúnaði
er kostur.
• Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
Umsóknarfrestur er til og með 3. ágúst nk.
Ráðið verður í starfið frá 1. september nk. eða
skv. samkomulagi.
Umsóknir ásamt kynningarbréfi og starfsferilsskrá skal
senda á netfangið solveig@lis.is.
Nánari upplýsingar veita Sólveig Jóhannsdóttir, fram-
kvæmdastjóri (solveig@lis.is) og Reynir Arngrímsson,
formaður LÍ (reynir@lis.is ).
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og
þeim svarað.
SÉRFRÆÐINGUR
Læknafélag Íslands óskar eftir að ráða sérfræðing í hagdeild félagsins
Helstu verkefni:
• Vélgæsla og viðhald
• Umsjón með viðhaldi og viðgerðum
• Önnur tilfallandi störf
Hæfniskröfur:
• Reynsla og þekking á vélbúnaði
• Geta til að skipuleggja og vinna verkefni
• Sjálfstæði í starfi
• Góð samskiptahæfni
Loðnuvinnslan er rótgróið sjávarútvegsfyrirtæki í fremstu röð og fer öll starfsemi
fyrirtækisins fram á Fáskrúðsfirði.
Áhugavert tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling.
Við hvetjum alla til að sækja um starfið óháð kyni.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorri Magnússon, framleiðslustjóri - thorri@lvf.is
Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á netfangið ragna@lvf.is
Umsóknarfrestur til og með 25. júlí.
Vélgæslu- og viðhaldsstarf
Loðnuvinnslan óskar eftir að ráða starfsmann til að sinna vélgæslu við
bolfisk- og uppsjávarvinnslu hjá fyrirtækinu.
H
é
ra
ð
sp
re
n
t
LVF
Múlaþing
Sími 4 700 700
mulathing@mulathing.is
mulathing.is
Aðalskipulag Seyðisfjarðar 2010-2030
Aðalskipulagsbreyting
vegna Vesturvegar 4
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkti á fundi sínum þann
9. júní 2021 að auglýsa breytingu á aðalskipulagi
Seyðisfjarðar 2010-2030. Breytingin er auglýst í sam-
ræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur
í sér breytingu á landnotkun á lóð Vesturvegar 4, úr
íbúðarsvæði með hverfisvernd yfir í blandaða land-
notkun íbúðarbyggðar og verslunar og þjónustu með
hverfisvernd. Með breytingu á landnotkun verður minni-
háttar atvinnustarfsemi sem samrýmist búsetu heimil á
svæðinu. Stærð svæðisins er innan við 0,1 ha.
Hægt er að nálgast skipulagstillöguna á heimasíðu
Múlaþings, www.mulathing.is og á skrifstofum sveitar-
félagsins að Lyngási 12, Egilsstöðum og Hafnargötu
44, Seyðisfirði. Tillagan mun jafnframt liggja frammi hjá
Skipulagsstofnun á auglýsingatíma.
Almenningi er gefinn kostur á að senda inn skriflegar
ábendingar og/eða athugasemdir til skipulagsfulltrúa
Múlaþings, Lyngási 12, 700 Egilstöðum eða á
netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með
20. ágúst 2021.
Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna fyrir
tilskilinn frest telst samþykkur henni.
Skipulagsfulltrúi Múlaþings
Múlaþing
Árskógar 4 Gönguhópur með göngustjóra kl. 10. Opin vinnustofa
kl. 9 - 12. Handavinna kl. 12-16. Bingó kl. 13. Hádegismatur kl. 11.40-
12.50. Heitt á könnunni. Kaffisala kl. 14:30-15.30. Allir velkomnir.
Sími: 411-2600.
Bólstaðarhlíð 43 Morgunkaffi í kaffihorninu kl. 10:00. Dekurstund
með sumarhópnum kl. 10:00. Leikfimi með Silju kl. 13:00.
Opið kaffihús kl. 14:30.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi, spjall og blöðin kl.
8:10-15:40. Föndurhornið kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11:30-12:30.
Dansleikfimi með Auði Hörpu kl. 12:50-13:20. Myndlistarhópur Selmu
kl. 13-16. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30.
Garðabæ Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti
með síðdegiskaffinu er selt frá 13:45 -15:15. Poolhópur í Jónshúsi
kl. 9:00. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10:00. Stólajóga kl. 11:00
í Jónshúsi. Handv.horn í Jónshúsi kl. 13:00. Hjólað með Vigni Snæ
kl. 10:30. .
Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8:30, heitt á
könnunni. Súmbadansleikfimi með Auði Hörpu kl. 10:00-10:30.
Bútasaumur frá kl. 13:00. Samsöngur með Hannesi frá kl. 13:30
(fer um húsið).
Gjábakki Hannes Guðrúnarson spilar lög sem allir geta sungið með
kl.11
Gjábakki Opin vinnustofa í allt sumar í Gjábakka á þriðjudögum og
fimmtudögum milli kl.13 og 15. Á staðnum verður boðið upp á
málningu, pensla og blöð.
Gullsmári Systurnar Ingibjörg og Herdís Linnet munu flytja íslensk
þjóðlög og dægurlög föstudaginn 9 júli kl 13.30.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Útvarps-
leikfimi kl. 9:45. Opin vinnustofa 9:00-16:00.Tríó Velferðarsviðs heldur
tónleika í salnum, tríóið skipa Kristín Ýr Jónsdóttir, Ragnheiður
Ingunn Jóhannsdóttir og Guðrún Brjánsdóttir,
Korpúlfar Styrktar og jafnvægsleikfimi með sjúkraþjálfara kl. 10:00
í Borgum.Tölvunámskeið kl.10:00 í Borgum. Sundleikfimi í Grafar-
vogssundlaug kl. 14:00.
Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag byrjum við daginn á nystamlegri
tölvu- og snjallsímaaðstoð klukkan 10:00. Klukkan 13:30 býður
Stefán Halldórsson svo uppá fróðlegan og skemmtilegan fyrirlestur
um ættfræðigrúsk á tölvuöld. Við endum svo daginn á hressandi
gönguferð klukkan 14:45. Verið öll velkomin til okkar á Vitatorg,
hlökkum til að sjá ykkur.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í súndlaug Seltj. kl. 7:15 og 18:30, Kaffi
spjall í króknum frá kl. 9, Leikfimi í salnum Skólabraut kl. 11 og
félagsvist í salnum kl 13:30. Á þriðjudaginn í næstu viku verður farið
í þriðju gönguferðina okkar í almenningsgarð. Farið verður í
Öskjuhlíðina, fólki er ferðin að kostnaðar lausu. Mikilvægt er að skrá
sig, skráning er í kaffikróknum á Skólabraut og í síma 8663027.
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Tilkynningar
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR