Morgunblaðið - 08.07.2021, Qupperneq 61
DÆGRADVÖL 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2021
Bílamerkingar
Vel merktur bíll er besta auglýsingin.
Tökum að okkur allt frá litlum merkingum
að heilpökkuðum bílum.
Xprentehf. | Sundaborg3 |104Reykjavík |7772700|xprent@xprent.is
www.xprent.is
„ÞEIR SÖGÐU AÐ VIÐ ÆTTUM AÐ
VERA ÖRUGGIR EF VIÐ HÉLDUM
HEYKVÍSLARBREIDD Á MILLI OKKAR.“
„ÞÚ ERT KLUKKUTÍMA OF SEINN. ÞAÐ ER
EKKI MÉR AÐ KENNA EF OSTASAMLOKAN
ÞÍN ER BRUNNIN.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... eins og kaffi – hún
veldur þér andvöku.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG KEYPTI
SVAKA FLOTTA
JÓLAGJÖF HANDA ÞÉR
EKKI ÞAÐ AÐ ÉG BÚIST VIÐ
EINHVERJU SÉRSTÖKU …
ÞÚÆTTIR AÐ SKILA
OSTAKÖRFUNNI
EKKI LÁTA ÞÉR
BREGÐA! ÞETTA
ÞÝÐIR BARA
AÐ KLUKKAN
ERORÐIN
FJÖGUR!
ÉG VEIT! ÉG VIL EKKI MISSA
AF „HAPPY HOUR“ SEM BYRJAR
KLUKKAN FJÖGUR!
að við reynum að segja svolitla Vest-
fjarðasögu með nöfnunum á bjór-
unum og alltaf gaman að spjalla við
gestina um sögu Vestfjarða.“
Fjölskyldan fer mikið á göngu-
skíði í frítíma sínum og í fjallgöngur
á sumrin. „Ég nota sjaldan bíl. Við
búum á Eyrinni hérna á Ísafirði og
ég labba allt eða fer á hjóli. Það er
t.d. mjög gaman að fara á hjólum
gömlu Óshlíðina út í Bolungarvík.“
Fjölskyldan mun halda upp á af-
mælisdaginn með gönguferð úti í
Vigur þar sem þau skoða fuglalífið
og fara í kaffi, en síðan verður slegið
upp partíi á Dokkunni.
Fjölskylda
Eiginmaður Gunnhildar er Albert
Marzelíus Högnason, f. 24.9. 1960,
vöruþróunarstjóri hjá 3X Techn-
ology ehf. í Ísafjarðarbæ. Foreldrar
hans eru hjónin Friðrikka Runný
Bjarnadóttir, f. 14.10. 1942, og
Högni Marsellíusson, f. 10.10. 1933,
búsett á Hlíf II á Ísafirði.
Börn Gunnhildar og Alberts eru
1) Sif Huld, f. 14.8. 1985, fram-
kvæmdastjóri byggðasamlags Vest-
fjarða, Ísafirði. Maki hennar er Há-
kon Hermannsson, framkvæmda-
stjóri Dokkunnar Brugghúss. Þau
eiga börnin Albert Marzelíus, f.
2006; Hermann Alexander, f. 2009;
Friðrik Unnar, f. 2011, og Hákon
Huldar, f. 2016. 2) Arnar Friðrik, f.
27.2. 1989, söluhönnuður í Kópavogi.
Maki hans er Thelma Ósk Bjarna-
dóttir nemi og þau eiga soninn
Hinrik Bjarna Arnarson, f. 2016.
Gunnhildur
Gestsdóttir
Sólveig Kristjánsdóttir
húsfreyja í Neðra-Skúfi,
Höskuldsstaðasókn, Hún.
Júlíus Valdimar
Guðmundsson
bóndi í Neðra-Skúfi, Höskulds-
staðasókn, Hún.Varð úti
Sveinbjörg Elín Júlíusdóttir
húsfreyja á Suðureyri við Súgandafjörð
Kristján Guðmundsson
skipstjóri á Suðureyri við Súgandafjörð
Sólveig Hulda Kristjánsdóttir
húsfreyja á Suðureyri við
Súgandafjörð og á Ísafirði
Guðrún Sigríður
Sigþrúður Oddsdóttir
húsfreyja á Suðureyri
Guðmundur Sturluson
trésmiður á Suðureyri
Guðmunda Guðmundsdóttir
húsfreyja á Dynjanda,
Álftamýrarsókn, V-Ís.
Jón Jónsson
bóndi á Dynjanda,
Álftamýrarsókn, V-Ís.
Jóna Jónsdóttir
vinnukona á Þingeyri
Kristinn Erlendsson
stýrimaður á Þingeyri.
Drukknaði af varðskipinu Þór
Gíslína Jónsdóttir
húsfreyja á Bala,
Þingeyrarsókn, V-Ís.
Erlendur Jóhannsson
húsmaður á Ketilseyri og víðar
Úr frændgarði Gunnhildar Gestsdóttur
Gestur Ingvi Kristinsson
skipstjóri og síðar starfsmaður
Orkubús Vestfjarða. Síðast
búsettur á Ísafirði
Á Boðnarmiði spurði Jónas Frið-
riksson spurningar og svaraði
sér sjálfur, – „jæja, fyrst ég er
skráður hér“:
Indæla sveitin mín iðgræn að sjá
með unglömb og blómstur í dragi.
Hvers vegna ertu nú orðin svo blá
af útlendu lúpínufræi?
Ég held að guð hafi gefið þeim reit
gróður sem vex upp til heiða.
Nú þekki ég ekkert í þessari sveit
þetta er lúpínubreiða.
Reir frá Drangsnesi svaraði:
Svörðurinn frjói fauk á haf burt
flóru ei auðnirnar skarta.
Blessuð sé því hin bláa jurt
er blómstrar á melinum svarta.
Hallmundur Guðmundsson bætti
við með athugasemdinni: „Þessu til
staðfestingar þá er kerfillinn kom-
inn vel á legg með að ryðja lúp-
ínunni á brott í mínu nágrenni“.
Lúpínan verður á brottu brátt
og brosa þá allir; sem hver vill.
Allt mun þá litast á annan hátt;
og auðirnar skreytir kerfill.
Ég get ekki stillt mig um að bæta
við þessu erindi eftir karlinn á
Laugaveginum:
Lúpínan á fótum frá
fer á milli landanna.
Gul og rauð og græn og blá
hún gengur yfir sandana.
Hjá gráum steini gægist strá
og gróður allra handana.
Hér eru tvær ferskeytlur eftir
Guðmund Arnfinnsson:
Einn ég veit um alfræðing,
er þann vert að muna.
Hann er mesta þarfaþing,
þekkir ferskeytluna.
Hress á vettvang hraðar sér
hreykinn mörgu sinni,
milli steins og s(t)leggju er
staddur í bragfræðinni.
Biblían er bók bóka, – Dag-
bjartur Dagbjartsson yrkir:
Syndlausir kunna á sakleysi skil
en síst er fundið að hinu
þó langi þá stundum að lesa sér til
í Lúkasarguðspjallinu.
Vel fer á að setja hér þessa limru
eftir Eyjólf Ó. Eyjólfsson:
Okkur þurrkaði klerkurinn Kálfur
sem í vínvörnum var ekki hálfur.
Því aldrei það brást
ef brennivín sást
að þá drakk hann það samstundis
sjálfur.
Gömul vísa að lokum:
Margri flipast falda-Gná,
fagran svip þótt kynni,
hefur gripið öfugt á
auðnu skipstjórn sinni.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af lúpínufræi
og svörtum sandi