Morgunblaðið - 08.07.2021, Síða 65

Morgunblaðið - 08.07.2021, Síða 65
MENNING 65 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2021 Á rið 1969 var tími mikilla straumhvarfa í mannkyns- sögunni, einkum vest- anhafs, og ber tungllend- ingu jafnan hæst á góma þegar þess er minnst. Í heimildamyndinni Sálar- sumar eru gestir menningarhátíðar Harlem-hverfis New York-borgar inntir eftir viðbrögðum við afreki Armstrongs og félaga en allflestir lýsa vanþóknun á yfirvöldum sem sólunda fjármunum í geimkapphlaup á meðan áþján milljóna svartra og annarra minnihlutahópa er virt að vettugi. Þegar myndin á sér stað var rúmt ár liðið frá morðinu á Martin Luther King, foringja í baráttunni um borgaraleg réttindi svartra, og mikil gerjun og vitundarvakning að eiga sér stað. Herská stefna og marxísk hugmyndafræði Svörtu par- dusanna hlaut hljómgrunn meðal ungs fólks á meðan Víetnam-stríðið stóð sem hæst og heróínfaraldur geisaði í Harlem. Hverfið einkennd- ist af mikilli fátækt en var ríkt af menningu og tónlist og gjarnan líkt við suðupott þar sem ólíkir menning- arheimar blandast saman. Sálarsumar er tónlistarheim- ildamynd að upplagi en leitast ekki síður við að gera grein fyrir tilteknu andartaki í sögu svartra, og sögu Bandaríkjanna, sem hefur verið gleymt allt of lengi. Myndin gerist sumarið 1969 og sýnir frá metn- aðarfullri tónleikadagskrá „menn- ingarhátíðar Harlem“ (e. Harlem Cultural Festival), sem fór fram í al- menningsgörðum hverfisins, með stuðningi borgaryfirvalda og Max- well House-kaffikeðjunnar. Haldnir voru sex tónleikar yfir sumarið, á sunnudagseftirmiðdögum frá júní- lokum þar til um miðjan ágúst, en að- gangseyrir var enginn og talið er að þrjú hundruð þúsund manns hafi sótt viðburðina. Reynt var að gera ólíkum tónlistarstraumum svartrar menningar og annarra íbúa Harlem skil með þátttöku ólíkra listamanna en söngvarinn og tónleikahaldarinn Tony Lawrence var í forsvari og ann- aðist skipulagningu tónleikarað- arinnar. Margbreytilegt músíkalskt litróf innihélt djass, blús, sálarmúsík, fönk, gospel og popptónlist líðandi stundar og gaf þverskurð tónlistar svartra og brúnna þess tíma. Allt var þetta tekið upp af myndavélaliði heimildagerðarmannsins og sjón- varpskempunnar Hals Turchin. Turchin reyndi að selja myndefnið á sínum tíma en uppskar lítinn áhuga – verkefnið kallaði hann „svarta Woodstock“ en Woodstock-hátíðin átti sér stað sama sumar og hefur æ síðan verið minnst sem vatnaskilum í poppsögunni og hápunkti hippa- menningar. Af hverju hlýtur sumt sess í hefðarveldi menningarinnar en annað ekki? Þessi spurning mallar í bakgrunni. Leikstjóri myndarinnar, Ahmir Khalib Thompson, betur þekktur sem „Questlove“ (upp- tökustjóri, trommari hipphoppsveit- arinnar The Roots og hljómsveit- arstjóri í Tonight Show með Jimmy Fallon), og hans teymi nota áður óséð heimildarefni Turchins og skeyta inn fréttaefni og nýjum við- tölum við listamenn og áhorfendur til að mynda heildarmynd Sálarsumars. Mikilfengleiki atburðanna, og stoltið og spennan sem þeim fylgdi, skín gegn í vitnisburði allra þátttakenda. „Ég hafði aldrei séð jafn marga svarta samankomna,“ segir áhorf- andi sem þá var barnungur og tón- listarmennirnir tala um þann heiður að spila fyrir jafn yfirþyrmandi mannfjölda í Harlem. Myndin hefst með hvelli er töfra- maðurinn Stevie Wonder situr við hljómborðið í léttu grúvi. Á þessum tímapunkti er hann við það að hrista af sér „undrabarns“-merkimiðann að öllu leyti (búinn að gefa út „Up- tight“ og „Once in My Life“), springa út og senda frá sér ótal meistaraverk og stórsmelli á kom- andi árum. Óvænt bregður kappinn sér á trommusettið og hefur dynj- andi slátt, grúv sem gefur góð fyr- irheit um það sem koma skal. Há- punktar myndarinnar eru svo fjölmargir að erfitt er að gera góða grein fyrir þeim og áskorun kvik- myndagerðarmanna að þjappa efn- inu niður í tveggja tíma pakka. B.B. King gefur vel rafmagnaðan blúsinn og „spænski Harlem“ á sína fulltrúa í afró-rómönskum djassi Rays Barr- etto og Mongo Santamaría. Goð- sagnakenndi djasstrommarinn Max Roach flytur „It‘s Time“ (tími þeirra, tími til að rísa upp) og „Africa“ eftir John Coltrane sem eiginkona hans, Abbey Lincoln, syngur. Á hinni hlið teningsins er poppið - Motown-fyrirtækið hafði allan sjöunda áratuginn sent frá sér gyllta dægurtóna sem brutu niður brýr og uppskáru feikilegar vin- sældir í allri Ameríku. Poppstjörnur þess voru stórstjörnur; Gladys Knight & the Pips, hér tiltölulega snemma á ferlinum, flytja meðal annars stórslagarann „I Heard It Through the Grapevine“. Hjarta- knúsarinn David Ruffin syngur ódauðlegu ballöðuna „My Girl“ og uppsker þvílík fagnaðarlæti – snilld- arlegt er augnablik er hann kastar kveðju milli erinda til karls sem mænir á efst úr trjákrónu. Gospel-tónlistin, sem skipar svo stóran sess í sögu svartra í Banda- ríkjunum, er hlutskörp. The Edwin Hawkins Singers flytja óð til frels- arans „Oh Happy Day“, sem trónað hafði á toppi vinsældarlistanna og er nú þekkt um víða veröld. The Staple Singers (sem margir þekkja úr tón- leikamynd Martin Scorsese Síðasti valsinn frá 1978 um lokatónleika The Band) framkalla kynngimagnaðan blús og gospel-bræðing. Ógleyman- legur er dúett Mavis Staples með gospel-drottningunni sjálfri Mahaliu Jackson á „Take My Hand, Precious Lord“ sem var eftirlætissöngur Martins Luthers King, og er sunginn honum til heiðurs. Stundin er magn- þrungin – sorg og samstaða fólksins áþreifanleg. Samstarfsmaður Kings, presturinn Jesse Jackson, segir frá látna leiðtoganum og dálæti hans á Mahaliu og laginu í eldræðu sinni. Pólítískt vægi tónleikaraðarinnar verður manni kristaltært. Sly & The Family Stone fljúga inn með stjörnukrafta og spila illskil- greinanlegt og hápólitískt sýru- fönkspopp, nýbúin að gefa út meist- araverkið „Stand!“. „Sing A Simple Song“, „Everyday People“ og „Hig- her“ eru hér enn rafmagnaðri en í hljóðversútgáfunum – þvílíkt band, þvílíkir töffarar. Sálardrottningin Nina Simone er einnig mætt - á há- punkti ferilsins og sýnir gífurlega breidd – neglublús er fylgt með gull- fallegum óð, „Young, Gifted and Black“ og hún endar settið með póli- tísku ljóðaslammi eftir David Nelson „eruði tilbúnir blökkumenn, til að gera það sem þarf?“ Upptalning þessi er ekki tæmandi en sýnir fram á snilldina sem er á boðstólum. Á köflum þráir hreinstefnusinninn að tónlistin fái að lifa óslitin (jafnan er skeytt inn viðtölum, alltaf smekk- lega þó). Um leið sýnir það fram á styrk efnisins, sem færir áhorfend- um tónlistina í þjappaðri mynd, inn- an um pólitískt og sögulegt sam- hengi atburðanna. Sálarsumar vegsamar og varðveitir sögulegt augnablik - og er veisla fyrir áhuga- menn um bandaríska sögu og tónlist tuttugustu aldar. Óskandi er að tón- leikarnir komi einnig út í lengri og samfelldri mynd. Tónlistarveisla í Harlem 1969 Töfrar Sálarsumar hefst með hvelli er töframaðurinn Stevie Wonder situr við hljómborðið í léttu grúvi. Bíó Paradís Sálarsumar/Summer of Soul (…or, When the Revolution Could Not Be Televised) bbbbn Leikstjórn: Ahmir Khalib „Questlove“ Thompson. Kvikmyndataka: Shawn Peters. Klipping: Joshua L. Pearson. Bandaríkin, 2021. 117 mín. GUNNAR RAGNARSSON KVIKMYNDIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.