Morgunblaðið - 08.07.2021, Side 66
66 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2021
www.danco.is
Heildsöludreifing
Vefverslun fyrir fyrirtæki og verslanir á www.danco.is
Glervasi
Matt Brown
25 cm
Stóll Teakwood
80x60x70 cm
Viðarborð Suar
30x120x80 cm
Blómapottur Fílar
2 teg. 27 cm
Hengiplöntur
10x43 cm - 2 teg.
Spegill Willow
gylltur 112 cm
Plume
Strá í
búnti
2 teg.
80 cm
Körfusett 3 stk.
40/34/29 cm
Planta Agave
25x32 cm
Blómapottur Munkur 3 teg. Brown
Pottasett
Wave Dökkt 30/24 cm
Járnhilla
30x120x86 cm
Glerbox Antique
10x6x17 cm
B
ókin How Iceland Changed
the World: The Big Hi-
story of a Small Island –
Hvernig Ísland breytti
heiminum: Stórsaga lítillar eyju –
eftir Egil Bjarnason, blaðamann frá
Selfossi, búsettan á Húsavík, er vel til
þess fallin að efla skilning allra
erlendra manna á ýmsum þáttum
samtímans á Íslandi þótt hún snúist
að mestu um fortíðina og segi sögu
þjóðarinnar allt frá því að land
byggðist. Textinn er skýr og auðles-
inn og þar er fortíð og samtíð tvinnuð
saman á skemmtilegan hátt.
Íslendingar skrifa stundum um
land og þjóð fyrir útlendinga til að
koma að einhverjum ákveðnum boð-
skap eða jafnvel til að lauma að les-
endum mynd af þjóðinni sem heima-
mönnum finnst næsta andkannaleg.
Jafnvel mætti ætla að upphafning
þátta í fari þjóðarinnar í slíkum text-
um mótaðist af minnimáttarkennd –
að það sé nauðsynlegt til að gera sig
merkilegri en efni standa til í augum
annarra. Bók Egils er ekki skrifuð í
þessum dúr.
Titillinn minnir á montbók. Hvern-
ig er unnt að láta eins og Ísland hafi
breytt gangi mála í veröldinni? Frá-
sögn Egils er þó á þann veg að það
liggur einhvern veginn í augum uppi
að það sem hann nefnir úr þjóðarsög-
unni skipti máli fyrir fleiri en okkur
sem hér búum, hvort sem það breytti
heiminum eða ekki.
Í bókinni takast á alvarlegur og
gamansamur tónn. Sumar athuga-
semdir höfundar eru á þann veg að
ekki einungis fáfróðir um Íslandssög-
una sjá nýtt samhengi hlutanna.
Hvergi er rembst við að sannfæra
neinn með alvarlegri ítroðslu heldur
slegið á létta strengi en allt innan hóf-
legra marka.
Egill hóf blaðamennsku ungur að
árum hjá Sunnlenska á Selfossi. Vor
nokkurt greiddi útgefandinn honum
með tuttugu og sjö gíra Mongoose-
reiðhjóli. Til að nýta gripinn lagði Eg-
ill upp í hringferð eftir þjóðvegi 1 sem
liggur um Selfoss. Þegar
hann hafði hjólað til
Húsavíkur ákvað hann að
hvíla sig um stund. Þar
hitti hann fyrir tilviljun á
bryggjunni Hörð Sig-
urbjarnarson, skipstjóra
og framkvæmdastjóra
Norðursiglingar. Egill sló
til og tók tilboði Harðar
um starf það sem eftir
lifði sumars. Reynsla
hans af störfum fyrir
Norðursiglingu hér við
land og við Grænland auk
siglingar til Noregs kemur Agli að
góðum notum við ritun bókarinnar og
auðveldar honum að dýpka skilning
lesenda á ferðum í austur og vestur
frá Íslandi við allt aðrar aðstæður en
nú.
Rætt var við Egil um bókina hér í
blaðinu 27. maí. Þar segist hann upp-
haflega hafa ætlað að gefa bókina út
hjá forlagi föður síns, Sæmundi á Sel-
fossi. Hann hóf vinnu við handritið
fyrir nokkrum árum og í
leit að ritlaunum sendi
hann sýnishorn á um-
boðsmenn í Bandaríkjun-
um og fékk síðan einn
þeirra til að taka kynn-
ingu á verkinu að sér og
átti Penguin hæsta boðið í
útgáfuréttinn. Fyrirfram-
greiðsla þaðan dugði til
að Egill gat unnið við
handritið í eitt og hálft ár
í viðbót. Bókin kom út 11.
maí 2021.
Þegar í apríl 2021 birti
Andrew Maitland Moravcsik, pró-
fessor í stjórnmálum og alþjóða-
stjórnmálum við Princeton-háskóla í
Bandaríkjunum og forstjóri Liecht-
enstein Institute on Self-Determin-
ation sem Hans Adam, prins af
Liechtenstein, stofnaði við Princeton
árið 2000, stutta umsögn um bókina í
tímaritinu Foreign Affairs, heims-
kunnu tímariti um alþjóðamál.
Moravcsik segir að sérhver þjóð
geymi í minni sínu goðsagnir um
heimssögulegan mikilleika – jafnvel
Íslendingar. Enginn haldi málstað
þessarar litlu eyjar fram af meiri
ákafa en Egill Bjarnason, sem hafi náð
góðum árangri sem blaðamaður í
heimi enskumælandi þjóða. Af frásögn
hans megi ráða að Íslendingar séu
einskonar Forrest Gump meðal þjóða
heims; þeir verði fyrir tilviljun mið-
depill sérhvers stórviðburðar nútíma-
sögu.
Fyrir okkur Íslendinga sætir það
ekki tíðindum sem bandaríski prófess-
orinn tíundar um efni bókar Egils. Á
hinn bóginn er ástæða til að fagna því
að þetta hefur allt verið tekið saman á
einn stað og sett fram á þann veg að
kunnur fræðimaður í sögu og stjórn-
málum Evrópu sér ástæðu til að geta
þess í virtu bandarísku alþjóðariti.
Einn af kostum þess að fá Penguin
sem útgefanda er að þar er, ef marka
má þakkir höfundar í lokin, her ráð-
gjafa til aðstoðar. Það fór þó fram
hjá þeim að það var Kristján X.
Danakonungur sem kom hingað á al-
þingishátíðina 1930 en ekki Kristján
IV.
Markaðssetning Penguin er mark-
viss og árangursrík eins og umsögn-
in í Foreign Affairs ber með sér. Þá
hafa umsagnir a.m.k. einnig birst í
The New York Times og hjá AP-
fréttastofunni en fyrir þessa öflugu
miðla og fleiri hefur Egill skrifað
fréttir og frásagnir frá Íslandi.
Nú þegar ferðamennska á milli
landa hefst að nýju er mikils virði að
til sé bók um Ísland þar sem í lokin
er lýst hvernig brugðist var við CO-
VID-19 hér á landi. Ágæt bók Egils
Bjarnasonar á örugglega eftir að
kveikja áhuga margra á að kynna sér
land og þjóð og ekki er verra að þeir
komi hingað með þeim léttleika sem
einkennir textann.
Ísland: nafli heimsins
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðar
Nútímasaga
How Iceland Changed the World
bbbbn
Eftir Egil Bjarnason.
Kilja, 266 bls., nafnaskrá.
Penguin Books, 2021.
BJÖRN BJARNASON
BÆKUR
Eflir Bók Egils Bjarnasonar er vel
til þess fallin að efla skilning allra
erlendra manna á ýmsum þáttum
samtímans á Íslandi, skrifar rýnir.
Fyrsta kvikmynd Valdimars
Jóhannssonar í fullri lengd, Dýrið
eða Lamb á ensku, tekur þátt í Un
Certain Regard-keppni kvikmynda-
hátíðarinnar í Cannes sem hófst í
vikunni. Þrjár aðrar kvikmyndir
með Íslendingum í lykilstöðum eru
einnig á aðaldagskrá hátíðarinnar,
að því er fram kemur í tilkynningu
frá Kvikmyndamiðstöð Íslands. Það
eru brasilísk-íslenska stuttmyndin
Ágústhiminn (Céu de Agosto) sem
keppir til verðlauna í stuttmynda-
hluta hátíðarinnar, danska stutt-
myndin Frjálsir menn (Frie mænd)
sem er í Cinéfondation-keppnis-
flokknum og Fánadagur (Flag Day)
eftir Sean Penn sem er í aðalkeppni
hátíðarinnar og Valdís Óskarsdóttir
klippti.
Dýrið segir af sauðfjárbændunum
Maríu (Noomi Rapace) og Ingvari
(Hilmir Snær Guðnason) sem búa í
fögrum en afskekktum dal. Þegar
dularfull vera fæðist á bóndabænum
ákveða þau að halda henni og ala
upp sem sitt eigið afkvæmi. Vonin
um nýja fjölskyldu færir þeim mikla
hamingju um stund, hamingju sem
verður þeim síðar að tortímingu,
eins og því er lýst. Stuttmyndin
Ágústhiminn er framleidd af Kára
Úlfssyni og klippt af Brúsa Ólasyni
og fjallar um 19. ágúst 2019 þegar
dagur breyttist í nótt í Sao Paulo út
af skógareldum í Amazon.
Frie mænd er útskriftarmynd
Óskars Kristins Vignissonar frá
Danska kvikmyndaskólanum en
Cinéfondation sýnir á ári hverju 20
útskriftarmyndir frá kvikmynda-
skólum um allan heim. Mynd Óskars
er gamanmynd um tvo góða vini sem
lenda í vandræðum í starfi sínu, sem
neyðir þá til að hugsa upp á nýtt
hvað frelsi merkir.
Íslenskar stuttmyndir verða einn-
ig sýndar í þeim hluta Cannes sem
nefnist Short Film Corner og eru
hluti af flokknum Cool Shorts from
the North sem Scandinavian Films,
samtök kvikmyndastofnana á Norð-
urlöndunum, standa að. Myndirnar
eru Frenjan eftir Þóreyju Mjallhvíti
H. Ómarsdóttur, Drink My Life eftir
Marzibil Sæmundardóttur og Af
hreinu hjarta eftir Hauk Björg-
vinsson.
Dýrið Noomi Rapace í kvikmynd
Valdimars Jóhannssonar.
Íslendingar í nokkrum
myndum í Cannes