Morgunblaðið - 08.07.2021, Qupperneq 66

Morgunblaðið - 08.07.2021, Qupperneq 66
66 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2021 www.danco.is Heildsöludreifing Vefverslun fyrir fyrirtæki og verslanir á www.danco.is Glervasi Matt Brown 25 cm Stóll Teakwood 80x60x70 cm Viðarborð Suar 30x120x80 cm Blómapottur Fílar 2 teg. 27 cm Hengiplöntur 10x43 cm - 2 teg. Spegill Willow gylltur 112 cm Plume Strá í búnti 2 teg. 80 cm Körfusett 3 stk. 40/34/29 cm Planta Agave 25x32 cm Blómapottur Munkur 3 teg. Brown Pottasett Wave Dökkt 30/24 cm Járnhilla 30x120x86 cm Glerbox Antique 10x6x17 cm B ókin How Iceland Changed the World: The Big Hi- story of a Small Island – Hvernig Ísland breytti heiminum: Stórsaga lítillar eyju – eftir Egil Bjarnason, blaðamann frá Selfossi, búsettan á Húsavík, er vel til þess fallin að efla skilning allra erlendra manna á ýmsum þáttum samtímans á Íslandi þótt hún snúist að mestu um fortíðina og segi sögu þjóðarinnar allt frá því að land byggðist. Textinn er skýr og auðles- inn og þar er fortíð og samtíð tvinnuð saman á skemmtilegan hátt. Íslendingar skrifa stundum um land og þjóð fyrir útlendinga til að koma að einhverjum ákveðnum boð- skap eða jafnvel til að lauma að les- endum mynd af þjóðinni sem heima- mönnum finnst næsta andkannaleg. Jafnvel mætti ætla að upphafning þátta í fari þjóðarinnar í slíkum text- um mótaðist af minnimáttarkennd – að það sé nauðsynlegt til að gera sig merkilegri en efni standa til í augum annarra. Bók Egils er ekki skrifuð í þessum dúr. Titillinn minnir á montbók. Hvern- ig er unnt að láta eins og Ísland hafi breytt gangi mála í veröldinni? Frá- sögn Egils er þó á þann veg að það liggur einhvern veginn í augum uppi að það sem hann nefnir úr þjóðarsög- unni skipti máli fyrir fleiri en okkur sem hér búum, hvort sem það breytti heiminum eða ekki. Í bókinni takast á alvarlegur og gamansamur tónn. Sumar athuga- semdir höfundar eru á þann veg að ekki einungis fáfróðir um Íslandssög- una sjá nýtt samhengi hlutanna. Hvergi er rembst við að sannfæra neinn með alvarlegri ítroðslu heldur slegið á létta strengi en allt innan hóf- legra marka. Egill hóf blaðamennsku ungur að árum hjá Sunnlenska á Selfossi. Vor nokkurt greiddi útgefandinn honum með tuttugu og sjö gíra Mongoose- reiðhjóli. Til að nýta gripinn lagði Eg- ill upp í hringferð eftir þjóðvegi 1 sem liggur um Selfoss. Þegar hann hafði hjólað til Húsavíkur ákvað hann að hvíla sig um stund. Þar hitti hann fyrir tilviljun á bryggjunni Hörð Sig- urbjarnarson, skipstjóra og framkvæmdastjóra Norðursiglingar. Egill sló til og tók tilboði Harðar um starf það sem eftir lifði sumars. Reynsla hans af störfum fyrir Norðursiglingu hér við land og við Grænland auk siglingar til Noregs kemur Agli að góðum notum við ritun bókarinnar og auðveldar honum að dýpka skilning lesenda á ferðum í austur og vestur frá Íslandi við allt aðrar aðstæður en nú. Rætt var við Egil um bókina hér í blaðinu 27. maí. Þar segist hann upp- haflega hafa ætlað að gefa bókina út hjá forlagi föður síns, Sæmundi á Sel- fossi. Hann hóf vinnu við handritið fyrir nokkrum árum og í leit að ritlaunum sendi hann sýnishorn á um- boðsmenn í Bandaríkjun- um og fékk síðan einn þeirra til að taka kynn- ingu á verkinu að sér og átti Penguin hæsta boðið í útgáfuréttinn. Fyrirfram- greiðsla þaðan dugði til að Egill gat unnið við handritið í eitt og hálft ár í viðbót. Bókin kom út 11. maí 2021. Þegar í apríl 2021 birti Andrew Maitland Moravcsik, pró- fessor í stjórnmálum og alþjóða- stjórnmálum við Princeton-háskóla í Bandaríkjunum og forstjóri Liecht- enstein Institute on Self-Determin- ation sem Hans Adam, prins af Liechtenstein, stofnaði við Princeton árið 2000, stutta umsögn um bókina í tímaritinu Foreign Affairs, heims- kunnu tímariti um alþjóðamál. Moravcsik segir að sérhver þjóð geymi í minni sínu goðsagnir um heimssögulegan mikilleika – jafnvel Íslendingar. Enginn haldi málstað þessarar litlu eyjar fram af meiri ákafa en Egill Bjarnason, sem hafi náð góðum árangri sem blaðamaður í heimi enskumælandi þjóða. Af frásögn hans megi ráða að Íslendingar séu einskonar Forrest Gump meðal þjóða heims; þeir verði fyrir tilviljun mið- depill sérhvers stórviðburðar nútíma- sögu. Fyrir okkur Íslendinga sætir það ekki tíðindum sem bandaríski prófess- orinn tíundar um efni bókar Egils. Á hinn bóginn er ástæða til að fagna því að þetta hefur allt verið tekið saman á einn stað og sett fram á þann veg að kunnur fræðimaður í sögu og stjórn- málum Evrópu sér ástæðu til að geta þess í virtu bandarísku alþjóðariti. Einn af kostum þess að fá Penguin sem útgefanda er að þar er, ef marka má þakkir höfundar í lokin, her ráð- gjafa til aðstoðar. Það fór þó fram hjá þeim að það var Kristján X. Danakonungur sem kom hingað á al- þingishátíðina 1930 en ekki Kristján IV. Markaðssetning Penguin er mark- viss og árangursrík eins og umsögn- in í Foreign Affairs ber með sér. Þá hafa umsagnir a.m.k. einnig birst í The New York Times og hjá AP- fréttastofunni en fyrir þessa öflugu miðla og fleiri hefur Egill skrifað fréttir og frásagnir frá Íslandi. Nú þegar ferðamennska á milli landa hefst að nýju er mikils virði að til sé bók um Ísland þar sem í lokin er lýst hvernig brugðist var við CO- VID-19 hér á landi. Ágæt bók Egils Bjarnasonar á örugglega eftir að kveikja áhuga margra á að kynna sér land og þjóð og ekki er verra að þeir komi hingað með þeim léttleika sem einkennir textann. Ísland: nafli heimsins Morgunblaðið/Hafþór Hreiðar Nútímasaga How Iceland Changed the World bbbbn Eftir Egil Bjarnason. Kilja, 266 bls., nafnaskrá. Penguin Books, 2021. BJÖRN BJARNASON BÆKUR Eflir Bók Egils Bjarnasonar er vel til þess fallin að efla skilning allra erlendra manna á ýmsum þáttum samtímans á Íslandi, skrifar rýnir. Fyrsta kvikmynd Valdimars Jóhannssonar í fullri lengd, Dýrið eða Lamb á ensku, tekur þátt í Un Certain Regard-keppni kvikmynda- hátíðarinnar í Cannes sem hófst í vikunni. Þrjár aðrar kvikmyndir með Íslendingum í lykilstöðum eru einnig á aðaldagskrá hátíðarinnar, að því er fram kemur í tilkynningu frá Kvikmyndamiðstöð Íslands. Það eru brasilísk-íslenska stuttmyndin Ágústhiminn (Céu de Agosto) sem keppir til verðlauna í stuttmynda- hluta hátíðarinnar, danska stutt- myndin Frjálsir menn (Frie mænd) sem er í Cinéfondation-keppnis- flokknum og Fánadagur (Flag Day) eftir Sean Penn sem er í aðalkeppni hátíðarinnar og Valdís Óskarsdóttir klippti. Dýrið segir af sauðfjárbændunum Maríu (Noomi Rapace) og Ingvari (Hilmir Snær Guðnason) sem búa í fögrum en afskekktum dal. Þegar dularfull vera fæðist á bóndabænum ákveða þau að halda henni og ala upp sem sitt eigið afkvæmi. Vonin um nýja fjölskyldu færir þeim mikla hamingju um stund, hamingju sem verður þeim síðar að tortímingu, eins og því er lýst. Stuttmyndin Ágústhiminn er framleidd af Kára Úlfssyni og klippt af Brúsa Ólasyni og fjallar um 19. ágúst 2019 þegar dagur breyttist í nótt í Sao Paulo út af skógareldum í Amazon. Frie mænd er útskriftarmynd Óskars Kristins Vignissonar frá Danska kvikmyndaskólanum en Cinéfondation sýnir á ári hverju 20 útskriftarmyndir frá kvikmynda- skólum um allan heim. Mynd Óskars er gamanmynd um tvo góða vini sem lenda í vandræðum í starfi sínu, sem neyðir þá til að hugsa upp á nýtt hvað frelsi merkir. Íslenskar stuttmyndir verða einn- ig sýndar í þeim hluta Cannes sem nefnist Short Film Corner og eru hluti af flokknum Cool Shorts from the North sem Scandinavian Films, samtök kvikmyndastofnana á Norð- urlöndunum, standa að. Myndirnar eru Frenjan eftir Þóreyju Mjallhvíti H. Ómarsdóttur, Drink My Life eftir Marzibil Sæmundardóttur og Af hreinu hjarta eftir Hauk Björg- vinsson. Dýrið Noomi Rapace í kvikmynd Valdimars Jóhannssonar. Íslendingar í nokkrum myndum í Cannes
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.