Morgunblaðið - 08.07.2021, Qupperneq 68

Morgunblaðið - 08.07.2021, Qupperneq 68
68 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2021 Kjalar/Kría Thermore® vesti Kr. 13.990.- Þ að er skemmtilegt að velta fyrir sér hvernig tónlist höfðar til manns eftir því hvernig veðrinu er háttað. Vetrar- kuldi og myrkur kallar á ákveðna hlustun og vor og sumar kallar á eitthvað allt annað. Stundum er léttari og hljómfegurri tónlist eitthvað sem kemur með hækkandi sól, en við- kvæmnisleg og angurvær tónlist gengur líka afskaplega vel, að því gefnu að hljómurinn sé hreinn og tær. Svo virðist sem sólarglætan sem ýtir öllu myrkri í burtu vilji líka sópa skuggalegri tónum undir teppið, um stundarsakir að minnsta kosti. Það er gleðiefni í sjálfu sér að sumarið sé loks komið, en hin raunverulega gleði felst í því að nú eru tónlistarmenn að vakna úr vetrardvala og móki og sleppa fram af sér beislinu eins og kýr að vori. Tónlistinni, sem búið er að nostra við og vinna í meðfram myrkri, vetrarhörkum og heimsfaraldri, er hleypt út í ljósið og nú er hægt að hlýða á hana og skoða betur í birtunni. Diljá Sævarsdóttir er ein þeirra tónlistar- manna sem höfðu hugsað sér að gefa út sína fyrstu sólóplötu mun fyrr, en svo frestaðist út- gáfa. Ég veit ekki hvort platan breyttist þegar haldið var áfram með hana á meðan pestir geis- uðu og myrkrið lá yfir öllu, en ég get vel ímynd- að mér að það hafi einmitt haft mikil áhrif á loka- útgáfuna. Shadows fjallar um skugga og ljós og þörfina fyrir að halda áfram, sama hvað. Skuggarnir eru tæklaðir og beðið eftir að ljósið birtist að nýju og ýti myrkrinu í burtu. Textarnir eru persónulegir, en samt ekki um of, svo allir ættu að geta rímað sig við þá. Þroskasaga einstaklings sem þarf að halda áfram, sama hvað tautar og raular. Við höfum öll verið að berjast við skuggana í vetur. Persónulegu skuggarnir okkar urðu áþreifanlegri og virtust engan enda ætla að taka, en svo kom vor og svo sumar og ljósið birtist. Shadows markar margs konar upphaf: Upphaf á endinum, upphaf á listaferli hæfileikaríkrar tónlistarkonu, upphaf á nýjum kafla í tónlistar- sögu. Þarna er búið að nostra við hljóm og raddanir og alveg mátulega miklu af smáatriðum er lætt inn í út- setningar til að heildarhljómur plöt- unnar rísi og falli. Stöku mikilvægir rafmagnsgítarar, ásláttur sem lyftir upp, píanólínur og bassamottur og raddanir sem birta og breyta ná- kvæmlega nógu miklu til að tónlistin andi. Textarnir eru sem fyrr segir mjög flottir og skapa heildarmynd en lögin eru líka afbragð. Það er von og birta í þeim. Rödd Diljár er björt en tilfinningarík en þegar hún gefur í og reynir á í kraftmeiri lögum plötunnar, eins og til dæmis „Feel your passion“ og „Waiting for you“, heyrir maður að hún á mikið inni. Það væri gaman að heyra meira efni frá Diljá í framtíðinni þar sem útsetningar laganna leyfa henni að gefa svolítið meira í. Á þessari plötu er kassagítar í forgrunni ásamt röddum, en hljómurinn er dularfullur og ekki allur þar sem hann er séður. Þetta er ekk- ert léttpopp, en þetta er heldur alls ekki myrk plata, þótt hún vísi í skuggana. Í titillagi plöt- unnar segir Diljá: „Your eyes will see the face of me. I will shine, eternally. Never broken, never nowhere. Near the shadow, in the light.“ Það þarf nefnilega skugga til að sjá ljósið, og þetta hefur Diljá náð að fanga á sinni fyrstu breiðskífu. Hreinir skuggar Þjóðlagapopp Diljá – Shadows bbbbn Fyrsta breiðskífa Diljár. Lög, textar, raddir og kassagít- arar: Diljá Sævarsdóttir. Bassi og synthabassi: Matt- hías Hlífar Mogensen. Upptaka, klipping, bassi og bak- raddir: Gunnar Már Jakobson. Rafgítarar: Aðalsteinn Magnússon. Píanó: Arnaldur Ingi Jónsson og Hörður Alexander Eggertsson. Trommur og ásláttur: Bassi Ólafsson. Strengir: Sigrún Harðardóttir. Hljóðblöndun og hljómjöfnun: Christopher Omartian. Útgáfudagur 18. júní 2021. RAGNHEIÐUR EIRÍKSDÓTTIR TÓNLIST Skuggar Það þarf skugga til að sjá ljósið, skrifar rýnir um plötu Diljár. Tónskáldið og rafgítarleikarinn Hafdís Bjarna- dóttir mun ásamt Passepartout Duo flytja tónlist fyrir sauðfé í dag og næstu daga. Hugmyndina að því að semja tón- verk fyrir kindur fengu slagverksleikarinn Christ- opher Salvito og píanóleikarinn Nicoletta Favari ásamt Hafdísi þeg- ar þríeykið var á tónleikaferðalagi í Færeyjum fyrir nokkrum árum, en þar verður varla þverfótað fyrir fé, segir um tilurð tónlistarinnar og munu Hafdís og dúettinn bjóða hlustendum upp á skemmtilega og öðruvísi tónleika þar sem kindur koma við sögu á margvíslegan hátt. Tónleikar verða haldnir í dag kl. 13 í Hallormsstaðaskóla nærri Egilsstöðum, 9. júlí kl. 19 í Sauð- fjársetri á Ströndum í Hólmavík, 10. júlí kl. 14 á Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði og 12. júlí einnig en tón- leikastaður verður kynntur síðar. Hafdís og dúett flytja Sauðatóna Hafdís Bjarnadóttir Jaðarlistahátíðin Reykjavík Fringe er nú á fullu stími og nóg um að vera. Í kvöld kl. 18 verður Ársæll Rafn með uppistandið Awkwardly Confident, eða Vandræðalega sjálfsöruggur, í The Secret Cellar við Lækjargötu og á sama tíma í Mengi við Óðinsgötu er gjörningur St. John McKay, Time Inside, en í honum veltir hann fyrir sér lífi fanga og veitir gestum innsýn í það. Í Secret Cellar kl. 18.40 hefst uppistand Koschka Bahr, Pure Evil - A One Man Show About My Cat, eða Hrein illska - einleikur um kött- inn minn. Á vef hátíðarinnar, á slóðinni rvkfringe.is þar sem finna má dagskrána í heild, segir um þennan einleik að hann sé ferðalag ofan í kanínuholuna og að í honum hitti Lísa í Undralandi fyrir sov- éska spæjarasögu. Af öðrum forvitnilegum uppá- komum má nefna Grýla - not for children, þ.e. Grýla - ekki ætluð börnum, í Fringe Hub, Aðalstræti 2, kl. 19. Þar mun Christian Hege velta fyrir sér hvernig lífið væri ef Grýla væri til í raun og veru. Sirkuslistamennirnir í The Nordic Council flytja Three Men from the North í Tjarnarbíói kl. 20.30 og leika þar listir sínar í sýningu sem sögð er fjalla um vandræðagang. Listamennirnir eru Merri Heikkilä frá Finnlandi, Íslendingurinn Bjarni Árnason og Svíinn Jakob Jacobsson. Margt fleira verður í boði í kvöld eins og hægt er að kynna sér á fyrrnefndri vefsíðu. Norrænir Félagarnir í sirkuslistatríóinu Three Men from the North. Vandræði og hrein illska Seinni tónleika- vika Sumar- tónleika í Skál- holti hefst með tónleikum í kvöld kl. 20. Dúó Freyja mun þá flytja sex nýleg verk samin fyrir dúóið. Á laugar- dag kl. 14 flytur Ásta Soffía harmónikkuleikari barokktónlist og kl. 16.15 flytur Hljómeyki verk eftir Bach, Cecilia McDowall og nýtt verk eftir Báru Grímsdóttur. Í messu á sunnudag kl. 11 mun Hljómeyki koma aftur fram og kl. 16.15 verður spjall með staðar- tónskáldunum Hauki Tómassyni og Eygló Höskuldsdóttur Viborg. Lokatónleikar hátíðarinnar fara fram kl. 17 og ný verk eftir staðar- tónskáldin verða þá flutt af Dúói Freyju, Ástu Soffíu og Guðnýju Einarsdóttur. Seinni tónleika- vika í Skálholti Eygló Höskulds- dóttir Viborg
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.