Morgunblaðið - 09.07.2021, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 09.07.2021, Qupperneq 1
Símamótið hófst í dag þar sem 5., 6. og 7. flokkur stúlkna í knattspyrnu keppast við. Um þrjú þúsund keppendur, á aldrinum 8 til 12 ára, taka þátt . Mótið hófst í dag með skrúðgöngu allra keppnisliða sem lagði af stað frá Smára- hvammsvelli að Kópavogsvelli. Þar var mótið sett með ávarpi frá tónlistarkonunni Bríeti. Þetta er í 37. skipti sem mótið er haldið, en samkomutakmark- anir settu svip sinn á mótið í fyrra. Búast má við mikilli gleði á mótinu í ár, en það stendur yfir til sunnudags. Gleði og kátína á knattspyrnumóti Morgunblaði/Arnþór Birkisson Símamótið haldið hátíðlegt í 37. sinn í Kópavogi F Ö S T U D A G U R 9. J Ú L Í 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 159. tölublað . 109. árgangur . SEGIST ORÐIN NOKKUÐ FÆR Í SKIPULAGNINGU AGLA MARÍA BESTI LEIK- MAÐURINN ALHEIMURINN ER LJÓÐ Í BRÆÐSLUNNI 13 M Í NÍU UMFERÐUM 27 SÝNING SIGURÐAR 28ÓLAFÍA ÁSA 50 ÁRA 24 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Forstjórar Coca Cola á Íslandi og Ölgerðarinnar segja fyrirtækin koma betur út úr kórónuveirufar- aldrinum en útlit var fyrir á tímabili. Þá er staðan hjá Coca Cola í Evrópu óvíða betri en á Íslandi. Gengi fyrirtækjanna vitnar um að neyslustigið hefur haldist hátt, þrátt fyrir faraldurinn, nú þegar kaflaskil eru að verða í veitingageiranum. Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, segir kórónuveiru- faraldurinn munu hafa óveruleg áhrif á rekstur fyrirtækisins. „Þetta er að jafna sig. Júlí hefur verið frábær mánuður og júní var metmánuður hjá Ölgerðinni. Þá ekki í sölu áfengis heldur var hann stærsti mánuðurinn í heildarsölu hjá Ölgerðinni frá upphafi,“ segir Andri. Spáir allt að 15% vexti í ár Hann væntir 10-15% vaxtar í veltu fyrirtækisins frá fyrra ári. Að óbreyttu verði árið 2021 metár. Einar Snorri Magnússon, forstjóri Coca Cola á Íslandi, segir sölu á bjór til veitingahúsa á leið í fyrra horf eftir að slakað var á sóttvörnum. „Nú erum við á annarri viku eftir afléttingu [samkomutakmarkana] og erum komin á nánast sama ról og fyrir faraldurinn. Salan hjá okkur til ÁTVR er enn að aukast miðað við ár- ið í fyrra, en ekki eins mikið og þegar veitingahúsin voru lokuð. Magnið er að einhverju leyti að færast frá ÁTVR til veitingahúsa,“ segir Einar Snorri. Gert hafi verið ráð fyrir að salan færi hægar af stað en raunin er. Meðal annars þess vegna verði langtímaáhrif faraldursins á fyrir- tækið minni en útlit var fyrir. Staðan einna best á Íslandi Coca Cola á Íslandi hefur áformað fjárfestingu í verksmiðjunni á Stuðlahálsi. Spurður um áformin segir Einar Snorri að Coca Cola á Ís- landi sé hluti af Coca Cola European Partners. Fjárfestingar ráðist því að einhverju leyti af því hvernig gangi hjá móðurskipinu. Ísland sé komið einna lengst út úr faraldrinum en á öðrum mörkuðum sé lengra í land. Lítil áhrif faraldursins - Salan á gos- og bjórmarkaði meiri en spáð var - Stefnir í met hjá Ölgerðinni - Coca Cola gengur óvíða betur í Evrópu MVeitingahúsin vega þungt 12 _ Sameining sveitarfélag- anna Skaga- strandar og Skagabyggðar er nú til skoð- unar og fara fram viðræður þess efnis milli fulltrúa sveitar- félaganna. Sam- tals búa um 570 í sveitarfélögunum tveimur. „Áhuginn á sameiningu hér á Skaga er til staðar og ávinning- urinn ætti að blasa við,“ segir Halldór Gunnar Ólafsson, oddviti sveitarstjórnar Skagastrandar. Hann telur mikilvægt, verði af sameiningunni, að farið verði í markaðsstarf til að kynna kosti búsetu í dreifbýlinu. Í síðasta mánuði höfnuðu íbúar þessara sveitarfélaga sameiningu þeirra, auk Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps. »4 Rætt um samein- ingu á Skaga Halldór Gunnar Ólafsson _ Vegagerðin hefur hætt við að flýta lagningu nýs vegar um Dynjandisheiði. Hafist var handa í október í fyrra. Sigríður Ó. Kristjánsdóttir, framkvæmda- stjóri Vestfjarð- arstofu, segir ljóst að framkvæmdirnar séu á áætlun, en að þær séu einfaldlega ekki að ganga nægilega hratt. Hún segir að staðið hafi til að flýta framkvæmdum en að Vega- gerðin hafi fallið frá þeim áformum sökum þess að samgönguáætlun hafi ekki verið fjármögnuð þegar Alþingi samþykkti hana og að ósamræmi sé milli fjármálaáætl- unar og samgönguáætlunar. „Milli þessara áætlana er, fyrir næstu þrjú ár, 4,5 milljarða gat,“ segir Sigríður. »11 Rofin fyrirheit um framkvæmdir Sigríður Ó. Kristjánsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.