Morgunblaðið - 09.07.2021, Page 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2021
COSTA DEL SOL
16. - 27. JÚLÍ
FLUG OG GISTING
VERÐ FRÁ:
88.500 KR.
*Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
OG 2 BÖRN. INNIFALIÐ Í VERÐI
FLUG, GISTING, INNRITAÐUR
FARANGUR OG HANDFARANGUR
INNIFALIÐ Í VERÐI
FLUGSÆTI BÁÐAR LEIÐIR
FLUG OG HANDFARANGUR
FLUG
VERÐ FRÁ:
49.900 KR.*
WWW.UU.IS | HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓP. | 585 40000 | INFO@UU.IS
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Mál háls-, nef- og eyrnalæknis sem
var sviptur starfsleyfi vegna
ónauðsynlegra aðgerða sem hann
framkvæmdi er það umfangsmesta
sem komið hefur á borð landlækn-
isembættisins. Þetta segir Alma
Möller landlæknir.
Heilbrigðisráðuneytið staðfesti í
morgun ákvörðun landlæknis um
að svipta lækninn starfsleyfi. Hann
starfaði á Handlæknastöðinni í
Glæsibæ þar til í lok árs 2019 þegar
stjórnarformaður stöðvarinnar til-
kynnti hugsanleg brot hans til
landlæknisembættisins.
Í skýrslu embættis landlæknis
kemur fram að alvarlegast hafi
verið að læknirinn framkvæmdi
tólf aðgerðir án viðurkenndra
ábendinga, meðal annars á börn-
um. Þá framkvæmdi hann einnig
óeðlilega margar aðgerðir á
þriggja mánaða tímabili, alls 53 af
ónefndu tagi, en aðrir læknar á
sömu stofu framkvæmdu 0-2 á
sama tímabili.
Alma segir málið alvarlegt og for-
dæmalaust. „Það er vitanlega alvar-
legt að þarna hafi inngrip verið gert í
líkama fólks án læknisfræðilegrar
ástæðu. Almenningur á skýlausan
rétt á því að fá heilbrigðisþjónustu
sem miðast við ástand og horfur á
hverjum tíma. Í þessu tilfelli var það
ekki raunin að mati óháðra sérfræð-
inga og starfsmanna embættisins.“
Hún bætir við að draga þurfi lær-
dóm af málinu. „Þetta tiltekna mál
snertir á margvíslegum hliðum eft-
irlits með heilbrigðisstarfsfólki og
stofnunum og það er eðlilegt að við
hjá embætti landlæknis ásamt heil-
brigðisstofnunum og sjálfstætt starf-
andi sérfræðingum drögum lærdóm
af þessu máli.“
Harma framferði læknisins
Handlæknastöðin sendi frá sér
tilkynningu í dag þar sem framferði
læknisins var harmað og beðist af-
sökunar á misgjörðum hans, en tek-
ið fram að stöðin beri ekki ábyrgð á
þeim gagnvart sjúklingunum.
Í tilkynningunni kemur fram að
vinnufélagar á Handlæknastöðinni
hafi vakið athygli á því að vinnulag
viðkomandi læknis gæti mögulega
verið ámælisvert.
Þann 4. desember 2019, þegar
grunsemdir lágu fyrir, hafi stjórn-
arformaður Handlæknastöðvarinn-
ar tilkynnt embætti landlæknis um
hugsanleg brot læknisins gegn
starfsskyldum. Í kjölfarið hafi
Handlæknastöðin einnig gert
Sjúkratryggingum Íslands viðvart.
Læknirinn hafði áður verið settur
í bann við skurðstofuvinnu á öðrum
vinnustað. Handlæknastöðin var
ekki upplýst um það, hvorki af
lækninum né vinnustaðnum.
Eftirlit með verkferlum innan
veggja Handlæknastöðvarinnar
verður hert og innra gæðaeftirlit
stöðvarinnar er í þróun. Í tilkynn-
ingunni kemur fram að einskis verði
„látið ófreistað til þess að hámarka
hér eftir sem hingað til fagmennsku
stöðvarinnar í hverju læknisverki
sem unnið er undir merkjum
hennar.“
esther@mbl.is veronika@mbl.is
Málið það umfangsmesta hingað til
- Háls-, nef- og eyrnalæknir var sviptur starfsleyfi vegna ónauðsynlegra aðgerða - Handlæknastöðin
biðst afsökunar á misgjörðum hans - Alma Möller landlæknir segir málið alvarlegt og án fordæma
Morgunblaðið/Kristinn
Misferli Læknirinn var tilkynntur til Landlæknis í lok árs 2019.
Föstudaginn 25. júní staðfesti
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís-
lands, með undirritun sinni 27 lög
sem Alþingi hafði samþykkt. Al-
mennt skrifar forseti undir lög í
Reykjavík eða á Bessastöðum en í
þetta skiptið var hann staddur í
Vestmannaeyjum, þar sem sonur
hans var að taka þátt í Orkumótinu
í fótbolta.
Kveðið er á um það í stjórnarskrá
að forseti gefi lögum gildi með und-
irritun sinni, en það þurfi að gerast
innan tveggja vikna frá því að þing-
ið samþykkir frumvarpið. Ekki
þykir vænlegt að forseti brjóti á
stjórnarskrá og embættismaður
forsætisráðuneytisins ók því með
skjölin til Landeyjahafnar og tók
svo Herjólf til Eyja.
Forsetinn gat því skrifað undir
lögin, og fram er tekið á skjölunum
sem birtust í stjórnartíðindum,
„Gjört í Vestmannaeyjum“. Forset-
inn hefur einnig skrifað undir lög á
Akureyri og í Reykholti í Borgar-
firði. Þá féllst hann einnig á tillögu
ráðherra um framlagningu laga-
frumvarps þegar hann var staddur
í Staðarskála í Hrútafirði.
27 lög undirrituð á Orkumótinu í Eyjum
Morgunblaðið/Eggert
Forsetinn Guðni Th. Jóhannesson und-
irritaði fjölda laga í Vestmannaeyjum.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Samtök ferðaþjónustunnar (SAF)
vara sterklega við gjaldtöku land-
eigenda af ferðaþjónustufyrir-
tækjum sem hafa birst síðustu
vikur í ýmsu formi, m.a. í
tengslum við eldgosið í Geldinga-
dölum og umferð um land Hjör-
leifshöfða. Þau telja vafa leika á
lagastoð gjaldtöku í báðum til-
fellum. Þetta kemur fram í yfirlýs-
ingu sem SAF birti 30. júní þegar
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
setti lögbann, að beiðni eigenda
jarðarinnar Hrauns, á lendingar
Norðurflugs ehf. við gosstöðv-
arnar. Staðfestingarmál vegna lög-
bannsins verður tekið fyrir í Hér-
aðsdómi Reykjaness 14. júlí,
samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins.
Jóhannes Þór Skúlason, fram-
kvæmdastjóri SAF, sagði nokkur
dæmi um að landeigendur hafi
ákveðið að krefja ferðamenn eða
ferðaþjónustufyrirtæki um gjald
vegna umferðar um lönd í þeirra
eigu. Slík mál hafi komið upp á
undanförnum árum í Mývatns-
sveit, við Geysi, Kerið, á Sól-
heimasandi, við Kötlujökul, Hjör-
leifshöfða og nú síðast lögbannið á
lendingar þyrlna Norðurflugs við
eldgosið.
„Að okkar mati eru ekki skýrar
lagaheimildir fyrir svona gjaldtöku
í öllum tilvikum. Þær þarf að
skoða vel í hverju tilviki,“ sagði
Jóhannes. „Við höfum bent á það
varðandi þyrlulendingarnar við
gosið að það sé eðlilegt ef menn
ætla að innheimta gjöld af ferða-
þjónustufyrirtækjum að þau fái þá
einhverja þjónustu, aðstöðu eða
réttindi fyrir gjaldið. Að það sé
ekki bara lagt á gjald fyrir ekki
neitt og eins hátt og mönnum sýn-
ist. Okkur þykir það hvorki eðli-
legt né sanngjarnt.“
Jóhannes sagði að SAF hafi t.d.
til hliðsjónar þjónustugjöld í þjóð-
görðum þar sem greitt er fyrir til-
tekna þjónustu. Þyrlur lendi á
Reykjavíkurflugvelli með allri
þeirri þjónustu sem þar er til stað-
ar og greiði lendingargjöld sem
eru miklu lægri en krafist er fyrir
lendingarleyfi á ógrónum melum
við Geldingadali. Þar séu ekki einu
sinni vindpokar til að sýna vind
við jörð hvað þá önnur aðstaða.
Jóhannes nefndi dæmi um
gjaldtöku landeigenda þar sem
tekjunum er varið til að byggja
ferðamannastaðina upp. Það eigi
t.d. við um bílastæðagjöld við
Seljalandsfoss, í Námaskarði og
eins við Kerið.
„Ferðaþjónustufyrirtækin eiga
ekki annars kost en að velta þess-
um gjöldum út í verðlagið. Fyrir
áfangastaðinn Ísland, sem nú þeg-
ar er einn af dýrustu áfangastöð-
um heimsins, þýðir það að hann
verður enn dýrari en ella. Hætt er
við að þetta endi með því að ferða-
mennirnir ákveði að fara þangað
sem ekki er jafn dýrt að vera og
hér,“ sagði Jóhannes.
Morgunblaðið/Eggert
Gosáhugi Ekkert kostar að ganga að gosstöðvunum. Hins vegar er krafist lendingargjalds af þyrlum á svæðinu.
SAF efast um heimildir
landeigenda til gjaldtöku
- Óeðlilegt að rukka gjöld án þess að neitt komi á móti