Morgunblaðið - 09.07.2021, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.07.2021, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Rétt einu sinni má sjá hvernig íþróttakappleikir geta heltekið heilu þjóðirnar. Við er- um alls ekki und- anskilin, eins og tiltölulega nýleg dæmi sanna. Landsleikir hleypa mestu kappi í kinn þjóða sem takast á. Danir og Englendingar áttust við í London í fyrradag í fjörlegum leik. Þótt Danir séu eilífðar stórþjóð á okkar mælikvarða hafa þeir úr mun minni hópi að velja en stærri þjóðir. Því er það samfellt gleðiefni hversu vel þeim iðulega gengur á knattspyrnuvellinum gegn margfalt fjölmennari þjóðum. Sum dönsku blöðin bera þó með sér að þau vildu meira í hlut sinna manna og ekki er frítt við að ýjað sé að á þeim bæ að sigur hafi verið hafður af Dönum með ranglátum dóm- um. Ensku blöðin, sum hver, láta ekki sinn sigur nægja og héldu því fram í leikslok að mark Dana gegn Englend- ingum hefði verið illa fengið. Í Bretlandi er enn tekist á um hvort afnám veiruhafta eft- ir rúma viku sé glannagangur af hálfu Borisar eða hvort að lokunarlosun hafi verið dregin úr hömlu vegna kjarkleysis hans. En í leikslok í London varð ekki séð að faraldur hefði nýlega herjað á eyjuna. Tugir þúsunda æddu út af Wembley í sigurvímu, grímulausir í kös með látum og öskr- um og útöndunar- hættu sem talin var sérdeilis hættuleg fyrir ör- skömmu. Þessum argandi munn- vatnsfossum mættu margfalt fleiri út á borgartorgin um England þvert og endilangt og eru myndir af því magnaðar og minna mest á stríðslokin gömlu, nema að þau voru kyrr- látari ef eitthvað var. Og þetta voru þó bara undanúrslit! En ástæðan er sú að England lítur á sig sem eina aðalvöggu knatt- spyrnunnar, en hefur ekki komist í úrslit í meiriháttar þjóðakeppni í greininni áratug- um saman. Og nú varð ljóst að úrslitaleikurinn fer fram á Wembley á sunnudaginn kem- ur. Nokkur titringur hefur verið sunnan Ermarsunds yfir því að mikilvægir leikir Evrópu- keppninnar skuli fara fram í London eftir brottför Breta úr ESB. Sambandið hefur svo lengi sett samasemmerki við sjálft sig og Evrópu í merkingu landafræðinnar, að það hefur iðulega ruglast í ríminu. Gefa má sér það, að þeim sem þjást af slíkum vandræðum líði enn verr þegar sjálfur úrslitaleikur Evrópukeppninnar fer fram í London og Englendingar, af öllum mönnum, keppi þar til úrslita við Ítali, sem sumir telja líklegt að verði næstir út úr Evrópusambandinu. Englendingar loks komnir í úrslit. Prúðustu menn breytast í bullur af því tilefni, sem er alveg upplagt} Bara leikur, en fúlasta alvara S tefna og aðgerðaáætlun í geðheil- brigðismálum til fjögurra ára sem var samþykkt á Alþingi 2016 tók til samþættingar geðheilbrigðisþjón- ustu og eflingar þekkingar. Sérstök áhersla var lögð á geðrækt og forvarnir, snemmtækar íhlutanir og sjálfsvígsforvarnir, og á að fólki væri ekki mismunað á grundvelli geðheilsu. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar var lögð áhersla á að geðheilbrigðisáætlun alþingis yrði fullfjármögnuð og henni yrði hrint í fram- kvæmd. Unnið hefur verið að því verkefni allt kjörtímabilið, og ég hef einnig lagt sérstaka áherslu á geðheilbrigðismál. Fjármagn til málaflokksins hefur verið aukið um rúma tvo milljarða á kjörtímabilinu, geð- heilsuteymi hafa verið stofnuð um land allt sem er mikil bylting fyrir þá sem þurfa á þeirri þjónustu að halda, sál- fræðingum hefur verið fjölgað talsvert í heilsugæslunni og samráð við notendur geðheilbrigðisþjónustu aukið. Sér- stakt viðbótarfjármagn, 540 milljónir, var veitt á fjárauka- lögum árin 2020 og á fjárlögum 2021 vegna Covid-19, til að efla þverfaglega geðheilbrigðisþjónustu og nú er unnið að samningagerð um þverfaglega geðheilbrigðisþjónustu fyr- ir börn og ungmenni og samningum við þjónustu sjálf- stætt starfandi sálfræðinga, auk þess sem unnið er að því að koma á fót þverfaglegum geðheilsuteymum fyrir börn í heilsugæslunni. Stefna og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum frá 2016 gilti til ársins 2020 og því var á síðari hluta kjörtímabilsins kominn tími til að móta nýja framtíðarsýn í geðheilbrigðismálum. Í lok árs 2020 boðaði ég til geðheilbrigðisþings þar sem unnið var að mótun nýrrar framtíðarsýnar í geðheilbrigðisþjónustu til ársins 2030. Á geðheilbrigðisþinginu komu fram skýrar ábendingar um að skilgreina þyrfti og samein- ast um heildstæðan þjónustuferil þar sem öll þrjú þjónustustig geðheilbrigðisþjónustu ynnu saman að því að tryggja notendum og fjöl- skyldum þeirra skilvirka þjónustu. Til að tryggja að raunverulegar úrbætur nái fram að ganga er mikilvægt að veitendur og notendur geðheilbrigðisþjónustu komi saman að því að rýna þjónustuna og vinna að mikilvægu breyt- ingaferli frá upphafi. Afrakstur geðheilbrigðisþingsins var skýrsla um fram- tíðarsýn í geðheilbrigðismálum til ársins 2030 sem nýlega var birt í samráðsgátt stjórnvalda, og var opin til umsagn- ar þar til í byrjun júlí. Unnið verður úr umsögnun í heil- brigðisráðuneytinu og lokaskýrsla birt með haustinu. Í júní var svo boðað til vinnustofu um 100 fulltrúa veitenda geðheilbrigðisþjónustu og notenda í þeim tilgangi að rýna þjónustuferla í geðheilbrigðisþjónustu og gera tillögur að úrbótum. Sú vinna var einnig mikilvægt innlegg í næstu skref í að bæta geðheilbrigðisþjónustuna, okkur öllum til heilla. Svandís Svavarsdóttir Pistill Framtíðarsýn í geðheilbrigðis- málum til ársins 2030 Höfundur er heilbrigðisráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Baldur S. Blöndal baldurb@mbl.is A lda netglæpa hefur skekið heimbyggðina síðastliðna mánuði. Fórnarlömbin eru eins ólík og þau eru mörg, margvísleg þjónusta liggur til að mynda niðri hjá Bauhaus vegna árása á tölvukerfi móðurfélagsins á Norðurlöndum. Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, tók þátt í þemaþingi Norð- urlandaráðs um mánaðamótin og gerði netöryggi og nethernað að um- talsefni. „Ógnin liggur fyrir og það var nú rætt þarna á þessum fundi eins og alltaf hefur verið gert, m.a. í tillögum mínum sem komu út í fyrra. Norðurlöndin eru útsett fyrir þessu á mismunandi hátt og þau hafa sínar varnir. Það sem hefur skort hér er skipulagt átak. Það er nú vonandi eitthvað að styrkjast en við erum eft- irbátar annarra á þessum sviðum,“ segir Björn. Alþingi sloppið vel Stórar íslenskar ríkisstofnanir hafa að mestu leyti sloppið við net- árásir þó einkaaðilar hafi fengið að kenna á því. „Það hefur ekki verið ráðist á Alþingi hér að því er við vit- um eins og hefur verið gert við Stór- þingið í Noregi. Það voru gerðar tvær árásir á það. Það er samt ekki sagt frá öllu í þessum efnum,“ segir Björn. Hann segir því ljóst að við stönd- um frammi fyrir þessari ógn, en til þess að rannsaka hver hættan sé, þurfi menn að læra af þeim fregnum sem berist reglulega utan úr heimi. Tillögur hans hafi því snúist um hvernig best sé að mæta ógninni. „Það sem ég legg til, og fékk góðar undirtektir á þemaþingi Norð- urlandaráðs, er að það eigi að sam- eina krafta Norðurlandanna. Við vit- um ekki endilega hver stendur að þessu en við getum grunað og þeim mun fleiri sem ganga í lið með þeim sem hafa grunsemdir, og styðja full- yrðingar þeirra, þeim mun áhrifa- ríkara er það gagnvart árásar- aðilum.“ Sjálfur fórnarlamb netglæps Björn lét sjálfur nýlega glepjast og lagði „frekar lága“ fjárhæð inn á ókunnan reikning. Hann lét lögreglu fljótlega vita og með skjótum gagn- aðgerðum tókst honum að koma í veg fyrir að skúrkarnir hefðu af honum fé. Ítrekuð auglýsing á Facebook undir nafni þjóðkunns Íslendings lokkaði hann í gildru. „Ég lét blekkjast en það var ekki árás. Ég prófaði að fara inn í þetta til þess að átta mig á því hvernig þetta virkar. Eins og ég segi þá fór ég inn í lítinn anga af þessu og sá strax hvernig svikið er. Þeir misnota ein- staklinga og þeir misnota nöfn ein- staklinga á netinu til þess að gera sig trúverðugri,“ segir Björn. Hann bætir við að sitt mál sé bara eins og títuprjónn miðað við það sem aðrir hafi lent í. „Ég segi frá því en aðrir þegja yfirleitt um svona lag- að. Þetta er náttúrlega hálf- neyðarlegt að lenda í klónum á svona glæpamönnum, menn verða samt að fjalla um þá til að átta sig á því.“ Einkaaðilar þekkingarmeiri Björn telur ábyrgðina liggja hjá hinu opinbera en ítrekar þátt al- mennings í því að tryggja netöryggi hérlendis: „Netvarnir eru ein- staklingsbundnar, það er að kenna fólki að fara varlega með tölvurnar sínar og kaupa sér netvarnir og passa upp á slíkt. Það eru fyrirtæki og opin- berir aðilar og það er ekki hægt að ná árangri á þessu sviði án þess að það sé samstaða á milli allra þessara aðila og skipulagðri fræðslu sé haldið uppi fyrir almenning. Síðan þarf að vera náið samstarf milli opinberra aðila og einkafyrirtækja þar sem einkafyrir- tæki eru jú með tækjabúnaðinn og þekkinguna í meira mæli en opin- berir aðilar. Það er svolítið ein- kennilegt ef Netöryggisráðið sem ný- verið var skipað í er eingöngu skipað fulltrúum opinberra aðila. Það þarf að virkja allan almenning í þessu til þess að hvetja fólk til að segja frá þessu.“ Allir þurfa að standa saman Að segja frá því að hafa orðið fyrir netárás getur rúið fyrirtæki og stofnanir trausti. „Það er ekki bara skömm heldur er það líka trúverð- ugleiki. Ég er bara enduróma það sem miklu klárari menn segja, trú- verðugleiki og traust er undirstaða í viðskiptum. Ef menn fá þá hugmynd að eitthvert fyrirtæki sé galopið fyrir tölvuglæpamönnum vilja þeir ekki skipta við þá. Enda held ég að tölvu- varnir séu bestar hjá einkafyrir- tækjum, bönkum og þeim fyrir- tækjum sem eru á þessu sviði.“ Björn segir alla þurfa að leggj- ast á eitt til að tækla vandann. „Það næst enginn árangur nema allir standi saman, þetta er eins og að tak- ast á við veiruna. Ef einhverjir neita að láta bólusetja sig vitum við að það er eitthvert gat einhvers staðar.“ Netglæpi þurfi að tækla eins og veiruna AFP Tölvuárásir Netglæpir hafa færst mjög í vöxt á síðustu árum. Biden forseti sótti Bretland (G-7) heim snemma sumars og í fram- haldinu fund Nató- ríkjanna. Hann mætti undir yfir- skriftinni „Banda- ríkin eru komin til baka“. Ekki var gerð glögg grein fyrir því hvað átti að felast í þessum orð- um, en sjálfsagt var þar helst um að ræða sneið til fyrirrenn- arans í Hvíta húsinu. Vestra hefur það löngum verið sögð óskráð regla að forsetar forðast skens í garð pólitískra and- stæðinga þegar þeir sækja er- lend ríki heim. Sé forsetinn sjálfur mættur eru Bandaríkin að hitta umheiminn og fer ekki vel á skætingi í garð fjar- staddra andstæðinga. Hitt er annað mál að sjálfsagt má finna dæmi um að Donald Trump hefði mátt halda sig betur við regluna. Það sem pirraði evr- ópska leiðtoga Nató þó einna mest af samkiptunum við Trump var að hann gekk fast eftir því að þeir efndu loks, a.m.k. að hluta, marggefin loforð sín um að greiða sitt í rekstrar- kostnaði banda- lagsins. Það mundi ekki breyta því að eftir sem áður félli lang- mestur hluti byrðanna á Banda- ríkin. Nú er ljóst að ákvarðanir sem gerðar hafa verið í nafni Bidens hafa hleypt illu blóði í Natóríkin sem studdu hernaðaraðgerðir. Lítið sem ekkert samráð hefur verið haft við samherjana í bandalaginu og er óánægja út af því hvernig þar er staðið að verki. Er lítill ágreiningur um að þau vinnubrögð lofa ekki góðu og þá síst fyrir yfirvöld í Afganistan sem skilin eru eftir illa búin og það hraðar en þau máttu vænta. Líklegt er að þessi framvinda sé ekki hjálp- leg, svo ekki sé kveðið fastar að og það fyrr en síðar. Þeir sem væntu auk- ins samstarfs með nýjum herrum í Hvíta húsinu urðu fyrir vonbrigðum} Óvæntur einleikur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.