Morgunblaðið - 09.07.2021, Síða 16

Morgunblaðið - 09.07.2021, Síða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2021 Páll Magnússon, núverandi leiðtogi Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi en eftir nokkrar vikur fyrrverandi, skrifar mikla grein nýlega í Morgunblaðið um stöðu Sjálfstæðis- flokksins. Það er vissulega hægt að taka undir með Páli að það er með öllu óviðunandi að flokkurinn sé undir 30% fylgi í skoðanakönnunum. Fram undan er kosningabarátta vegna alþingiskosninganna 25. september næstkomandi. Forysta Sjálfstæðisflokksins þarf að bretta upp ermar og koma á framfæri við kjósendur fyrir hvað flokkurinn stendur og hvers vegna það skiptir svo miklu fyrir þjóðina að hann verði sem sterk- astur. Forysta flokksins þarf að hlusta á grasrótina og notfæra sér þann mikla meðbyr sem fékkst í prófkjörunum. Stefnan hefur hljómgrunn meðal þjóðarinnar Sjálfstæðisflokkurinn er eini stjórnmálaflokkurinn sem virki- lega leggur áherslu á skattalækk- anir. Nokkur árangur hefur náðst í þeim efnum á kjörtímabilinu en gera þarf enn betur. Flokkurinn þarf að leggja höfuðáherslu á að skattar verði lækkaðir á lægstu og miðlungstekjur fólks. Það þarf að hækka skattleysismörkin. Þá þarf að breyta lögum um fasteignaskatt, þannig að skatt- urinn hækki ekki árlega umfram allar vísitöluhækkanir, sem allt of mörg sveitarfélög nýta sér til að auka álögur á íbúana. Sjálfstæðisflokkurinn þarf að skýra það mun betur út fyrir kjós- endum að forsenda áframhaldandi velferðar í landinu er að efla at- vinnustigið. Það verður að auka framleiðni til að tekjur þjóðarbús- ins aukist. Það er skýr munur á stefnu Sjálfstæðis- flokksins og vinstri blokkarinnar sem vill auka ríkisútgjöldin án þess að skapa auknar tekjur. Sjálfstæðisflokk- urinn þarf að leggja enn meiri áherslu á umhverfismálin. Sjálf- stæðisflokkurinn þarf að auka áherslu sína á frelsi einstaklingsins og draga úr ríkisaf- skiptum. Sjálfstæðisflokkurinn þarf að hlusta á baráttumál eldri borgara. Ég er ekki að tala um öfgahópa innan raða eldri borgara heldur þeirra sem tala á skynsamlegum nótum. Sjálfstæðisflokkurinn þarf að leggja meiri áherslu á að betur verði staðið að heilbrigðismálum með því að nýta betur einka- framtakið en nú er gert. Sjálfstæðisflokkurinn á alla möguleika á að auka sitt fylgi í næstu kosningum, en þá verður að leita til hins almenna flokksmanns og hlusta virkilega og aðlaga stefnuna þeim sjónarmiðum. Það er algjörlega nauðsynlegt að Sjálfstæðisflokkurinn nái yfir 30% fylgi í næstu kosningum. Sem sterkur Sjálfstæðisflokkur getum við lagt okkar stefnumál fram í myndun ríkisstjórnar. Viljum við vinstri vitleysu? Val kjósenda verður mjög skýrt í næstu kosningum. Viljum við áhersluatriði Sjálfstæðisflokksins í næstu ríkisstjórn og þannig von um áframhaldandi betri tíma fyrir land og þjóð eða ætla kjósendur að gefa vinstra liðinu, sem hæst hefur haft á kjörtímabilinu, tæki- færi til að stjórna landinu næstu árin? Samfylkingin sér lausnina í að hækka atvinnuleysisbætur í stað þess að leggja áherslu á verð- mætaaukningu með öflugra at- vinnulífi. Samfylkingin krefst auk- inna ríkisútgjalda og svo auðvitað að allt bjargist með inngöngu í ESB. Píratar hafa enga uppbygging- arstefnu. Eina sem þeirra mál snúast um er að gagnrýna aðra en fara svo ekkert eftir því sjálf. Allt á að bjargast með nýrri stjórnar- skrá, hvernig sem það á svo sem að gerast. Sósíalistar ætla að bjóða fram. Aukin ríkisafskipti boðuð. Sósíal- ismi hefur nú ekki gengið vel í öðrum löndum. Eitt trompið á að vera að byggja 30.000 íbúðir handa fólki. Ekki kemur fram hver á að borga. Leiðtoginn Gunnar Smári, fyrr- verandi fjölmiðlastórútgefandi og einn helsti fylgisveinn útrásarvík- inga, er ekki mjög trúverðugur að boða sósíalisma. Flokkur fólksins hefur helst af- rekað það á kjörtímabilinu að fara í mál við ríkið vegna klaufaskapar Alþingis í lagasetningu um al- mannatryggingar. Málið vannst og var þar með hægt að færa tekju- hæstu lífeyrisþegum milljarða í bætur. Stórt afrek Flokks fólksins sem berst fyrir að afnema fátækt. Viðreisn er eins máls flokkur, sem telur allt bjargast með inn- göngu í ESB. En allar líkur eru til staðar á að Viðreisn taki þátt í vinstristjórn eins og hún gerði eft- ir síðustu borgarstjórnarkosningar til að bjarga vinstri meirihluta Dags B. Eggertssonar. Drögum úr opinbera bákninu Forsenda þess að hægt sé að lækka skatta er að draga úr hinni gífurlegu aukningu sem alls staðar er í opinberri stjórnsýslu. Það er sífellt verið að fjölga starfs- mönnum og stofnunum. Þetta á við hjá ríkisvaldinu. Þetta á ekki síður við hjá sveit- arfélögunum. Sama hvort sveitar- félagið er stórt eða smátt. Alltaf er verið að bæta í reksturinn. Það sjá allir að með þessari stefnu er alltaf verið að kalla á auknar skatttekjur. Það verður að breyta um stefnu hvað varðar þenslu opinbera rekstursins. Það er í anda stefnu Sjálfstæðisflokksins að draga úr. Það liggur alveg ljóst fyrir að stefnumál Sjálfstæðisflokksins eiga ekkert síður nú en áður hljómgrunn meðal kjósenda þjóð- arinnar. Nú verður að leggja áherslu á að kynna málin vel þannig að hagstæð úrslit fáist fyr- ir Sjálfstæðisflokkinn til hagsæld- ar fyrir íslenska þjóð. Sterkari Sjálfstæðisflokkur nauðsynlegur Eftir Sigurð Jónsson »Fyrrverandi fjöl- miðlastórútgefandi og einn helsti fylgi- sveinn útrásarvíkinga er ekki mjög trúverðugur að boða sósíalisma. Sigurður Jónsson Höfundur er fyrrverandi bæjarstjóri í Garði. Fáir efast um gildi fornleifa og fornleifa- rannsókna. Gamlar minjar eru hluti menn- ingararfsins. Þær eru einn af lyklunum að þeirri fortíð sem geym- ir bæði aukinn skilning á menningu nútímans og á innri gerð sam- félagsins. En okkur er vandi á höndum því landið er stórt í hlut- falli við mannfjölda og vitað er um a.m.k. 130 þúsund fornleifastaði. Aðalskráning fornleifa er fyrsta skref að frekari vinnu við minjar og einnig forsenda skipulagsvinnu sveit- arfélaga. Sú skráning er löngu hafin en staðan mjög misjöfn eftir því hvar á landinu gripið er niður. Að lokinni aðalskráningu er unnt að rannsaka valdar minjar eftir efnum og ástæð- um. Hitt er svo augljóst að aðeins er kleift að kanna eða þaulskoða brot af fornleifum landsins. Sumar kunna að breyta, eða hafa breytt, skilningi á mikilvægum þáttum sögunnar eftir ítarlegar rannsóknir. Rof og veðrun á landi og við sjáv- arsíðuna eru ein helsta ógnin við fornleifar, þar næst jarðeldur og t.d. óundirbúið jarðrask vegna fram- kvæmda. Jafnt Minjastofnun sem sérfræðingar benda ítrekað á að hraða verði aðalskráningu fornleifa. Minjastofnun býr yfir 5 ára áætlun í þessum efnum. Hún gæti kostað sam- félagið um 250 milljónir króna og er verðugt verkefni fyrir okkur; verk- efni sem verður að fjármagna og sinna ef vel á að vera. Á Þingvöllum eru miklar minjar um nærri þúsund ára sögu þinghaldsins og þennan árvissa en um leið skammlífa, forna höfuðstað landsins, ef svo má að orði komast, fram á 18. öld. Mann- virkin eru m.a. margar þingbúðir en einnig eru sterkar vísbendingar um stærri byggingar á staðnum og þá eru ótaldar minjar sem eru beintengdar þinghald- inu og ýmiss konar at- höfnum og ferðum manna. Skráning og leit með bættum aðferðum hafa varpað nýju ljósi á fornleifafjársjóð Þingvalla sem verður að sýna þann áhuga og virðingu sem ber. Á ellefu alda afmæli Alþingis 2030 er tækifæri til þess að fagna verðugu átaki í fornleifarannsóknum á Þing- völlum. Slíkar hugmyndir hefur borið á góma í Þingvallanefnd. Rannsóknir gætu hafist á næsta ári með sam- stilltu átaki margra aðila og verið góð afmælisgjöf samfélagsins til sjálfs sín. Fyrsta skrefið er skipan vinnu- hóps sem hefur undirbúning að átak- inu, helst á morgun. Til þess hvet ég hér með. Aðkallandi verk- efni á Þingvöllum Eftir Ara Trausta Guðmundsson Ari Trausti Guðmundsson » Á ellefu alda afmæli Alþingis 2030 er tækifæri til þess að fagna verðugu átaki í fornleifarannsóknum á Þingvöllum. Höfundur er þingmaður VG og formaður Þingvallanefndar. Úlpa (kvenmanns) var tekin ófrjálsri hendi á Baldursgötu fyrir tveimur dögum. Í vösum voru bíllyklar, húslyklar og sími. Upplýsingar í síma 899- 3464. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Úlpa tapaðist og rðaráð. P þí ferd fe sa Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar- hringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS HVAR ER NÆSTA VERKSTÆÐI?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.