Morgunblaðið - 09.07.2021, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2021
70 ÁRA Gústaf Hinrik fæddist 9. júlí 1951 í Stykkishólmi og fagnar því sjö-
tugsafmæli sínu í dag. Hann ólst upp í Hólminum og gekk þar í grunnskóla,
en starfaði lengst af hjá útgerðarfyrirtækinu Þórsnesi hf. Allir eldri Hólm-
arar þekkja Gústaf Hinrik sem er þekktur fyrir sitt breiða bros og góða og
hressa lund. Hann var vallarvörður hjá Íþróttafélaginu Snæfelli í mörg ár og
muna margir eftir honum þaðan.
Gústaf Hinrik bjó lengst af í Stykkishólmi, en flutti um tíma til Borgarness
og síðan þaðan til Reykjavíkur. Hann er núna búsettur í Hafnarfirði.
Helstu áhugamál Gústafs Hinriks eru bocchia sem hann spilaði mikið með
Íþróttafélaginu Firðinum í Hafnarfirði, en síðustu ár hefur hann lítið spilað.
Hann hefur líka mjög gaman af golfi og er oft að pútta á golfvellinum hjá
Hrafnistu í Hafnarfirði.
Í tilefni dagsins ætlar Gústaf Hinrik að heimsækja heimahagana í Stykkis-
hólmi og þá verða fagnaðarfundir hjá ættingjum og vinum og eitthvað
skemmtilegt gert í tilefni dagsins.
FJÖLSKYLDA Foreldrar Gústafs Hinriks eru hjónin Guðbjörg Árnadóttir,
f. 13.3. 1925, sem starfaði lengi á Sjúkrahúsinu í Stykkishólmi en er núna bú-
sett á Hrafnistu í Hafnarfirði, og Ingvar Ragnarsson, útgerðarmaður í
Stykkishólmi, f. 3.9. 1924, d. 25.5. 1996. Þau bjuggu lengst af í Stykkishólmi
en fluttu síðan til Reykjavíkur. Gústaf Hinrik á fjögur systkini.
Gústaf Hinrik Ingvarsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Næstu daga áttu eftir að vekja
mun meiri eftirtekt en áður. Fólk sogast
að þér. Leitaðu til einhvers sem getur
hjálpað þér með erfiðar ákvarðanir.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þegar þú gerir þitt besta þá er það
bara nóg. Haltu þínu striki varðandi ásta-
málin.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Stattu vörð um heilsu þína og
hamingju, það gerir það enginn fyrir þig.
Ekki láta hluti liggja á glámbekk.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Það er engin ástæða til að láta
hugfallast, þótt það verkefni, sem þú fæst
við, reynist eitthvað snúnara en þú áttir
von á. Þú ert á grænni grein í peninga-
málum.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Sýndu öðrum tillitssemi og umburð-
arlyndi og þú munt fá þá framkomu
endurgoldna þúsundfalt. Taktu upp hansk-
ann fyrir aðila sem þér finnst órétti beitt-
ur.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þótt yfirleitt sértu staðfastur/föst
áttu það samt til að láta ginnast af gylli-
boðum. Fylgdu hjartanu og hafðu hlutina
eins og þér finnst fallegir.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Einhver varpar skugga á drauma þína
um tíma. Gerðu ekki meiri kröfur til ann-
arra en sjálfs þín.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Daður á netinu kemur við
sögu. Treystu þínum innri áttavita í þeim
málum. Þú stendur á krossgötum.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Í dag skaltu hugsa vel og
vandlega um langtímamarkmið þín í fram-
tíðinni. Það sem hentar þér hentar
kannski ekki öðrum.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Það er mikilvægt að þú gefir
þér tíma til hvíldar og slökunar. Alls konar
tilfinningar gera vart við sig í kvöld þegar
þú hittir gamlan vin.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Nú verður þú að bretta upp
ermarnar og kippa þeim mörgu hlutum í
liðinn sem þú hefur látið dankast alltof
lengi. Vertu opinská/r við börnin.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Með því að vera þögull áhorfandi
ertu í bestu aðstöðunni til þess að meta
hvað er rétt. Félagslífið er fjörugt og
margar veislur fram undan.
isvísindum árið 2007.“ Ása var þegar
komin með 3 börn og í náminu eign-
aðist hún yngsta barnið. Hún hóf
starf hjá Veritas árið 2008, en þegar
Flaga fór úr landi með starfsemina
fékk hún vinnu hjá dótturfyrirtæki
Veritas, Vistor, og var þar fyrst á
heilbrigðistæknisviði fyrirtækisins.
Síðan var fyrirtækið MEDOR stofn-
að árið 2010 og hún var deildarstjóri
hjúkrunar- og lækningavörudeildar
þar. „Við vorum að selja allt frá
plástrum og upp í stór myndgrein-
ingartæki, og MEDOR er t.d. núna
einkageirann. „Ég fór að starfa hjá
nýsköpunarfyrirtækinu Flögu, sem
Helgi heitinn Kristbjarnarson stofn-
aði. Þetta var ótrúlega dýrmætur
tími og einstök stemning í kringum
fyrirtækið, bæði frumkvöðla- og fjöl-
skyldustemmning, en við vorum að
þróa og framleiða svefnrannsókn-
arbúnað. Þarna fékk ég áhuga á
svefnrannsóknum og ég ákvað að
fara í meistaranám þar sem ég rann-
sakaði kæfisvefn, astma og vélinda-
bakflæði undir leiðsögn Þórarins
Gíslasonar og lauk M.Sc. í heilbrigð-
Ó
lafía Ása Jóhannesdóttir
fæddist í Reykjavík 9.
júlí 1971 og ólst upp í
Garðabænum. Hún
gekk þar í Flataskóla og
Garðaskóla og var í bæði fótbolta,
handbolta og djassballett, auk þess
að vera í kór og læra á píanó. „Pabbi
spilaði á harmonikku og við fórum öll
systkinin í tónlistarnám.“ Ólafía Ása,
sem alltaf er kölluð Ása, segir að þeg-
ar kom að menntaskólaárunum
ákvað hún að feta í fótspor systkina
sinna og fara í MR. „Það var gott að
skipta alveg um umhverfi og kynnast
aðeins öðruvísi heimi.“
Á menntaskólaárunum kom ástin
inn í líf Ásu. „Ég hélt einhvern tíma
partí á Lindarflötinni og Siggi kom
þangað, en hann er úr Hafnarfirði og
var í Iðnskólanum í Reykjavík.“ Þau
Sigurður urðu par upp frá því, en Ása
fór sem skiptinemi til Bandaríkjanna
árið 1989 og var þar í fótbolta, frjáls-
um og körfubolta í New York-ríki.
„Það voru mikil viðbrigði, en rosalega
lærdómsríkt og ég græddi alveg heil-
mikið á þessari reynslu og fitnaði um
10 kíló. Tók sem sagt Ameríku alveg
með stæl.“
Þegar heim var komið fór hún aft-
ur í MR en var ekki viss um hvert
hugur hennar stefndi. „Ég var að
vinna í Borgarleikhúsinu eftir námið
og ætlaði þá að verða leikari, en svo
vildi ég líka verða læknir eða verk-
fræðingur. Siggi var alltaf að vinna
og við búin að leggja fyrir og við
keyptum okkur íbúð í miðbænum.
Síðan ákváðum við bara að skella
okkur til Ítalíu og bjuggum í Flórens
í eitt ár. Mættum bara þangað án
nokkurs skipulags. Vorum ekki einu
sinni með hótel , bara með síma-
númer hjá ítalskri konu, en allt gekk
þetta upp. Við fundum yndislega íbúð
sem við leigðum, lærðum ítölsku, át-
um spaghetti og drukkum rauðvín,
en vorum líka að passa börn.“
Þegar þau komu heim frá Ítalíu fór
Ása í hjúkrunarfræði í HÍ. „Ég varð
strax ófrísk og eignaðist bæði barn á
1. og 2. ári í náminu, en hélt bara
ótrauð áfram og lauk náminu á rétt-
um tíma og útskrifaðist árið 1999.“
Eftir námið vann Ása einn vetur á
Landspítalanum, en fór svo strax í
að selja covid-prófin.“ Eftir 10 ár hjá
MEDOR vildi Ása bæta við sig og fór
í MBA-nám í HR 2018. Eftir námið
fékk hún stöðu framkvæmdastjóra
hjá Stoð. „Veritas keypti Stoð 2018
en fyrirtækið er rótgróið fram-
leiðslu- og þjónustufyrirtæki á heil-
brigðissviði. Fyrirtækið er 39 ára
gamalt og var stofnað í kringum
smíði á stoðtækjum, eins og spelkum
og gervilimum. Stoð útvíkkaði svo
starfsemina í hjálpartæki, hjólastóla,
sjúkrarúm og fleira og núna erum við
að horfa til framtíðar og selja líka
vörur til þeirra sem vilja stunda
hreyfingu án hindrana. Við keyptum
Flexor fyrir tæpum tveimur árum
með það að markmiði að bæta við þá
þjónustu. Framkvæmum göngu-
greiningu, sérgerum innlegg og selj-
um m.a. stuðningssokka og
íþróttaskó.“
Það þarf að vera vel skipulagður til
að halda stórt heimili og vinna mikið.
„Öll börnin okkar hafa farið í suzuki-
tónlistarnám hjá Tónskóla Sigur-
sveins og þar er maður með í tónlist-
arnáminu, svo það er ekkert hægt að
gera það með vinstri hendinni. En ég
hef svo gaman af þessu, elska að hafa
mikið að gera og orðin nokkuð fær í
skipulagningu.“ Fjölskyldan stundar
Ólafía Ása Jóhannesdóttir framkvæmdastjóri Stoðar – 50 ára
2020 Ása með MBA útskriftarskírteinið 2020.
Byggir draumahús í Borgarfirði
Fjölskyldan Hjónin Sigurður og Ása á Hornströndum með yngstu dæt-
urnar, Maríu Kristínu og Hrafnhildi Höllu . Myndin er tekin sumarið 2018.
SigurÁs Ása er liðtæk í smíðavinnunni og í dag mun dansinn
duna á nýbyggðum pallinum í afmælisveislunni í Borgarfirði.
Til hamingju með daginn