Morgunblaðið - 09.07.2021, Page 28

Morgunblaðið - 09.07.2021, Page 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2021 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Alheimurinn er ljóð (e. The Uni- verse is a Poem) nefnist einkasýn- ing Sigurðar Guðmundssonar myndlistarmanns sem opnuð verður í dag kl. 15 í Bræðslunni á Djúpa- vogi en hálftíma fyrr mun Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra af- hjúpa nýtt útilistaverk eftir Sigurð, „Frelsi“, við hátíðlega athöfn. Verk- ið er gert í minningu um þrælinn Hans Jónatan sem talinn er vera fyrsti þeldökki maðurinn sem settist að á Íslandi og bjó á Djúpavogi frá árinu 1802. Mun minnisvarðinn standa við Löngubúð. Á sýningunni má sjá valin og ólík verk eftir Sigurð sem spanna yfir 50 ára tímabil, það elsta frá árinu 1969 og það yngsta unnið á þessu ári. Verk hans hafa ætíð verið ljóðræn í eðli sínu, þó unnin hafi verið í ólíka miðla og hefur Sigurður einnig gefið út bækur með ljóðum og skáldskap en í fyrra gaf hann út bókina Ljóð og Ljóð. Síðasta sýningin í Bræðslunni Í tilkynningu eru verkin á sýning- unni sögð ljóð í sjálfu sér, líkt og sýningartitillinn gefi til kynna, og segir ennfremur að Sigurður líti á alheiminn sem ljóð og að í samskipt- um sínum við hann finnist honum bæði gott og rétt að upplifa alheim- inn sem ljóð. Er með því vísað í ljóð hans, „Alheimur“, frá 2019. Sigurður býr og starfar á Djúpa- vogi, í Reykjavík, Amsterdam og Xiamen í Kína og er sýningin sam- starfsverkefni Múlaþings, Kínversk- evrópsku menningarmiðstöðvar- innar – CEAC og ARS LONGA, með stuðningi frá Uppbyggingar- sjóði Austurlands. Sýningarskrá kemur út samhliða sýningunni, sem unnin er í samvinnu við Studio Studio og gefin út af ARS LONGA. „Við konan mín höfum verið nokkuð dugleg að koma heims- menningunni til Djúpavogs,“ segir Sigurður en þau hjónin hafa staðið fyrir alþjóðlegri myndlistarsýningu árlega í Bræðslunni, Rúllandi snjó- bolta, allt frá árinu 2014. Einkasýning Sigurðar í Bræðsl- unni, sú sem opnuð verður á morg- un, verður hins vegar síðasta sýn- ingin sem sett er upp í Bræðslunni. „Fiskeldið er að taka yfir þessa byggingu sem við höfum haft þar,“ útskýrir Sigurður en að þau Ineke, eiginkona hans, ætli engu að síður að sýna áfram í bænum á vegum ARS LONGA, safnsins sem þau hafa stofnað sem mun standa fyrir sýningum og einnig bókaútgáfu. „Safn er ekki bygging, safn er ak- tívítet, en við þurfum byggingu til þess að sýna verkin og láta listvið- burði eiga sér stað,“ útskýrir Sig- urður fyrir blaðamanni. Mörg lykilverk Á sýningu Sigurðar verða 26 verk til sýnis og það nýjasta er frá þessu ári. „Sum af þeim eru dálítið stór og fyrirferðarmikil og mörg lykilverk í mínum ferli,“ segir Sigurður um verkin á sýningunni og að mikið sé í sýninguna lagt. Hann er spurður að því hvort þetta sé yfirlitssýning um verk hans og feril og segist hann ekki vita það sjálfur. „Nei, þetta er ekki týpísk stofnanayfirlitssýning, þær eru öðruvísi,“ segir Sigurður svo. Sam- hliða sýningunni verði gefin út sýn- ingarskrá í bókarformi, harðspjalda, sem hann sé afar ánægður með. Í sýningarskránni má finna fyrrnefnt ljóð Sigurðar, „Alheiminn“, úr ljóða- bókinni Ljóð og Ljóð sem hefur að geyma ljóð og texta eftir Sigurð sem spanna hálfa öld, líkt og sýningin. Sig- urður hefur alltaf litið á list sína sem ljóð og segir hann mörg verkanna á sýning- unni titluð í þeim dúr, „First Poem“, „Second Poem“ og þannig mætti áfram upp telja. Ekkert ónáttúrulegt Sigurður er spurður út í þá heimssýn sína að alheimurinn sé ljóð og að gott og rétt sé að líta á hann með þeim hætti. „Þetta er marglaga hugsun og ég orti nú ljóð um þetta sem er í ljóðbókinni minni og heitir „Alheimur“. Þá fór ég að velta fyrir mér hver orti þetta ljóð sem alheimurinn er,“ svarar Sig- urður og vísar í framhaldi í 17. aldar heimspekinginn Espinosa sem taldi að náttúran byggi til náttúru. „Ég er nú ekki vísindamaður fyrir fimm- aura en alheimurinn er líklega bú- inn til af öðru efni sem er þá líka náttúra. Ég kem ekki auga á, í mínu lífi, eitthvað sem er ónáttúrulegt. Það er kallað einhverjum öðrum nöfnum en þetta er bara öðruvísi tegund af náttúrunni og það eru til margar tegundir af náttúru,“ segir Sigurður. Sýningu hans í Bræðslunni lýkur 15. ágúst og sýn- ingarstjóri er Kristín Dagmar Jóhannesdóttir, í samvinnu við þau Rut Halblaub og Þór Vigfússon. Gott að upplifa alheiminn sem ljóð - Forsætisráðherra afhjúpar á morgun nýtt útilistaverk Sigurðar Guðmundssonar á Djúpavogi - Einkasýning hans, Alheimurinn er ljóð, verður opnuð um leið með verkum frá árunum 1969-2021 Morgunblaðið/Einar Falur Náttúrulegt „Ég kem ekki auga á, í mínu lífi, eitthvað sem er ónáttúrulegt. Það er kallað einhverjum öðrum nöfnum en þetta er bara öðruvísi tegund af náttúrunni,“ segir Sigurður Guðmundsson myndlistarmaður. Jarðskjálfti „Earthquake“, verk frá árinu 1969. Ljósmyndir birtar með leyfi listamannsins Annað „Second Poem“, eitt verk- anna á sýningunni, frá árinu 2019. Upplýst „Illuminated Poem“, verk eftir Sigurð frá árinu 2019. Alheimsljóð „The Universe is a Poem“, verk frá árinu 2020. Tríó Amasia kemur fram í Siglu- fjarðarkirkju í kvöld kl. 21.30 á Þjóðlagahátíð á Siglufirði. Mun tríóið leika sveiflandi dans og þjóð- lagatónlist og þá meðal annars tangóa eftir Astor Piazzolla en í ár eru 100 ár liðin frá fæðingu tón- skáldsins. Í Amasia eru Ármann Helgason klarínettuleikari, Hlín Erlendsdóttir fiðluleikari og Þröst- ur Þorbjörnsson gítarleikari. Tón- leikarnir bera yfirskriftina „Tónlist milli stríða“. Fleira er á dagskrá Þjóðlagahá- tíðar í dag. Í Bátahúsinu kl. 20 mun Ragnheiður Gröndal syngja íslensk þjóðlög og með henni leika Guð- mundur Pétursson á gítar, Haukur Gröndal á klarínett, Kjartan Valde- marsson á píanó og Matthías Hem- stock á slagverk. Skuggamyndir frá Býsans leika svo kl. 23 á veit- ingastaðnum Rauðku en sveitina skipa Ásgeir Ásgeirsson á saz og bouzouki, Haukur Gröndal á klarín- ett, Eric Quick á slagverk og Þor- grímur Jónsson á kontrabassa. Frekari upplýsingar um hátíðina, flytjendur og dagskrá má finna á vefsíðu hennar, siglofestival.com. Tríó Amasia eftir velheppnaða tónleika í Hallgrímskirkju í Saurbæ 4. júlí. Tríó Amasia leikur í Siglufjarðarkirkju á Þjóðlagahátíð Sýning Höddu Fjólu Reykdal, Ljósmosagrár út í hvítt, var opnuð í gær í NORR11 á Hverfisgötu 18. „Í verkum sínum skoðar Hadda blæ- brigði litanna í náttúrunni og hvernig þeir breytast eftir birtu og í mismunandi veðurbrigðum. Litir steinanna, skeljanna, sandsins, fjallanna og hafsins eru rannsókn- arefni Höddu Fjólu. Hún skoðar hvernig litir mosans breytast eftir árstíðum, hvernig frostið hefur áhrif á liti skeljanna og fjallanna í kringum okkur og hvernig sumarið hefur áhrif á liti laufanna og trjánna,“ segir í tilkynningu. Um vinnuferli Höddu Fjólu segir að það einkennist af litskýringum þar sem hún skrásetji upplifanir sínar í náttúrunni í orð og vinni svo verkin út frá þeim. Leiðarstefið í verkum hennar séu fínlegar doppur í láréttum og lóðréttum línum eða hringir, lag ofan á lag, svo úr verði þéttur vefur lita og forma. Með þessari tækni nái Hadda Fjóla fram þeirri upplifun sinni af blæbrigðum litanna sem hún skrásetji í náttúr- unni. Hadda Fjóla útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1998 og hefur haldið fjölda sýninga hér á landi og í Svíþjóð þar sem hún bjó í tíu ár. Sýningin er á vegum Listvals og sýningastjóri er Elísabet Alma Svendsen. Litbrigði Hadda Fjóla fyrir framan eitt verka sinna. Hún sýnir nú í NORR11. Kannar blæbrigði lita náttúrunnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.