Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 15.12.1951, Síða 19
17
nætur. Dróg það nokkuð úr þeim gróðri, sem þá var kominn, sem mátti
heita sæmilegur sauðgrcður. Síðari hlutinn allur var fremur kaldur, þótt
ekki væru frost, og gróðri fór mjög lítið fram. Úrkoma var einnig mjög
lítil.
Júní: Fyrstu 6 dagarnir voru hlýir, og komst hitinn þá upp í 15,5°.
Yfirleitt var bjartviðri og sólskin, en stöðug N átt og fremur kalt og sér-
lega þurrt. Öll tirkoma mánaðarins aðeins 3,9 mm. Sláttur byrjaði 22.,
en spretta var þó ekki góð fyrr en með júlíbyrjun.
Júlí: Fyrstu 8 dagar mánaðarins voru úrkomulausir, en þann 9. byrj-
aði að rigna. Úrkomulaust var þó frá 16.—20., en úr því rigndi af og til,
og þurrklaust var með öllu. Fyrri slætti lauk 20. jrilí. Fór svo, að mörgum
gekk illa að ná fyrri slætti. Um þann 20. var grasspretta yfirleitt orðin
mjöggóð.
Águst: Óþurrkarnir héldu áfrarn allan þenna rnánuð, og nrá segja að
með ágúst hafi þeir byrjað fyrir alvöru, og kom engin alminnilegur þurrk-
dagur héi um slóðir í ágúst. Aðeins 7 dagar voru úrkomulausir, með
NV kalda og skýjuðu lofti. Úrkoma var oft mjög mikil, og rigndi á einum
sólarhring, 24.-25., 47,3 mm. Svo til engin hey náðust inn allan mán-
uðinn. Þann 30. náðust hér inn 3 vagnar. 2. sláttur byrjaði 11. ágúst.
Kartöflur voru fyrst teknar upp þann 18. (pontiac), til matar.
September: Með septemberbyrjun tók hitinn að lækka. Stöðugar rign-
ingar héldust til 18., að undanskildum 3 dögum. Frá 19.—25. var hins
vegar þurrt, en kalt og sama og enginn þurrkur, enda þá allt svo blautt og
vatnsósa, að varla var hægt að fara um túnin. Mjög lítið náðist því af
heyjum, en allmikið náðist upp í gott sæti. 16. sept var byrjað að taka
upp kartöflur, en þó fóru þurru dagarnir frá 19.—25. í það, að koma
saman heyjum. Lokið var við að slá það síðasta af túninu 30. sept., eru
þá úti um 100 hestar. Settir voru um 30 vagnar í vothey í síðustu viku
mánaðarins.
Október: Þann 1. byrjaði að hríða og kom svolítið föl. 2. og 3. var
þurrt, en við frostmark. Úr því tók að snjóa. Frá 4. til 19. var aðeins
þurrt í 1 dag. Urn þann 10. var kominn 30 cm snjór, jafnfallinn. Skiptist
á hríð og krapahríð. Um mánaðamótin sept. og okt. voru hér niðri í
görðurn um 170 hkg af kartöflum, og var megnið af þeim tekið upp
undan snjó í krapahríðarveðrum. Var upptöku lokið þann 10. Má segja
að aldrei kæmi þurr dagur á meðan verið var að taka upp þessar kartöflur.
Ekki var hægt að taka inn vélar, því öll hús voru full af kartöflum, sem
þornuðu mjög seint. Um þann 20. hlýnaði í veðri og hélzt svo út mán-
uðinn. Tók þá upp snjó. 25. var það síðasta af heyjum hirt. Einnig var
þá byrjað á jarðvinnslu, þótt mjög væri það erfitt sökum þess hvað jörðin
var blaut.
2