Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 15.12.1951, Blaðsíða 63
61
bergi og eldhús hvor. Er hús þetta byggt úr hleðslusteinum og stendur
mitt á milli íbúðarhúss og kornhlöðu.
Á árunum 1946—’50 var unnið að byggingu hesthúss og hlöðu, fyrir
um 12 hross, og geymsluskálum fyrir verkfæri o. fl.
Eru þá upptaldar helztu byggingaframkvæmdir aðrar en kartöflu-
geymsla, sem byggð var 1939. Jafnhliða þessum framkvæmdum hefur svo
jöfnum höndum verið unnið að framræslu, ræktun, girðingum, vegagerð
og lagfæringum umhverfis byggingar og önnur mannvirki Tilrauna-
stöðvarinnar.
Þess skal hér getið, að allar tekjur, sem orðið hafa af bæði nautgripa-
rækt, kornrækt og garðrækt, hafa átt sinn drjúga þátt í því, að fjárhags-
lega hefur verið hægt að koma framkvæmdum áfram, því stofnframlög
hafa aldrei komið fyrr en eftriá, eða þegar framkvæmdinni var lokið, og
þá oft ekki nema lítill hluti af raunverulegum kostnaði. Vil ég einkum
nefna kornræktina og kartöfluræktina í þessu sambandi, því allur hagn-
aður af þessari starfsemi, sem öðrum búrekstri, hefur runnið til starf-
seminnar sjálfrar eða þeirra umbóta, sem gerðar hafa verið.
6. Fjárframlög og fjárhagur.
Eins og áður er getið, var það Búnaðarfélag íslands, sem stofnaði Til-
raunastöðina og sá um rekstur hennar fram til ársins 1940, en þó tók
ríkið við fjárgreiðslum til reksturs tilraunastarfseminnar, og hélzt það
fyrirkomulag til ársloka 1946, en þá tók Tilraunaráð jarðræktar allar
eignir B. í. á Sámsstöðum til leigu. Hefur stöðin síðan verið rekin sam-
kvæmt áætlun Tilraunaráðs jarðræktar, með rekstursframlagi úr ríkis-
sjóði.
í árslok 1939 hafði B. í. lagt til stofnframkvæmda og reksturs rúmlega
211 þús. krónur. í árslok 1950 var alls búið að verja af opinberu fé frá
ríki og B. í. 873.100.00 kr., eða síðan 1940 um 662 þús. krónum.
í fjárlögum 1951 var ríkisstjórninni heimilað að kaupa Tilraunastöð-
ina á Sámsstöðum af B. í. Snemma á þessu ári ákvað ríkisstjórnin að nota
þessa heimild. Var því skipuð matsnefnd, er framkvæmdi mat á öllum
eignum stöðvarinnar, svo sem jörð, ræktun, búfé, vélum, húsum og öðr-
um eignum.
Allar eignir voru metnar á 1.558 milljónir króna. Þar af var talin
eign B. í. 1.194 millj. kr., en ríkið tók Tilraunastöðina ekki á leigu fyrr
en 1. janúar 1947, eins og þegar er getið. Hefur því eignaaukning umfram
rekstursframlag verið um 685 þús. krónur, miðað við núverandi verðlag.
Má af þessu sjá að rekstur stöðvarinnar hefur verið allgóður.