Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1954, Qupperneq 23
21
7. Ræsingarmáti og dýpt að yfirborði jarðvatns.
8. Tegund útlends áburðar og tegund húsdýraáburðar.
9. Dreifingartími áburðar.
10. Sláttutími.
11. Beitartími og tegund skepna, sem beitt var.
12. Gróðurfar sléttunnar í sambandi við fræblöndur og grasstofna, sem
notaðir hafa verið.
Öll virtust þessi atriði geta haft áhrif á mismunandi kalhættu tún-
anna, ef svo bar undir, þótt erfitt gæti verið að meta áhrif sumra þeirra.
A. Ferðalög.
Sumarið 1951 voru skoðaðar sléttur í nágrenni Reykjavíkur, Mos-
fellssveit, Kjalarnesi og Kjós dagana 25.—30. júlí. Þessum athugunum
var síðan haldið áfram sumarið 1952, sem hér segir: Á tímabilinu frá
19. júlí til 2. ágústs voru athugaðar 147 sléttur á Suðurlandi frá Ölfusi
að Kálfafelli. Á þessu ferðalagi var leitazt við að skoða sléttur, sem höfðu
mesta fjölbreytni í þeim atriðum, er gætu haft áhrif á kal, og þess vegna
gerðar athuganir jafnt niður við sjó, í miðsveitum og inn til dala.
Á tímabilinu frá 4. ágúst til 14. sama mánaðar voru teknar skýrsl-
ur í Borgarfirði og á Snæfellsnesi.
Hinn 14. ágúst voru sltýrslur teknar í Hrútafirði, og þaðan var hald-
ið norður um land og skoðuð tún allt að Grímsstöðum á Fjöllum og
norður á Slétlu. Þessum skýrslutökum var lokið síðustu dagana í
ágúst.
B. Vinnuaðferð.
Margar spurningar um atriði varðandi tún og jarðvinnslu, sem talin
voru upp hér að framan, voru lagðar fyrir bændur, og svöruðu allir
mjög greiðlega og eftir beztu getu, enda virtist áhugi manna vera mik-
ill á hugsanlegum úrbótum. Hallamælingar voru gerðar á allflestum
stöðum með sjálfvirkum hallamæli, er sýndi lialla landsins í gráðum.
Gróðurathuganir voru gerðar með aðferð, sem nánar er lýst í kafla II.
Tvær skýrslur voru að jafnaði teknar á hverjum bæ. Var valin ein
versta sléttan, en önnur góð til samanburðar.
C. Rannsóknir á kalskilyrðum.
Á ferðalögum þeim, sem að framan er getið, voru skoðaðar 288
sléttur á 130 bæjum. Sléttur þessar skiptast þannig niður eftir lands-
hlutum:
Suðurland ....
Suð-Vesturland
Norðurland ..
147 sléttur
38 —
103 —