Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1954, Blaðsíða 50

Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1954, Blaðsíða 50
48 tegundanna eða finna, hve oft ákveðin tegund kemur fyrir í gróður- svæðinu. Klemenz Kr. Kristjánsson (11) er brautryðjandi í þeim rannsóknum hér á landi. Árið 1923 gerir hann samanburð á gróðurfari 47 sáðsléttna og þaksléttna í nágrenni Reykjavíkur og notar aðferð þá, er kennd er við C. Raunkiær. Er það talning á jurtategundum innan ákveðins hrings, en við samanburð fleiri athugana fæst hlutfall milli útbreiðslu tegundanna og' hve oft jurtin kemur fyrir í gróðurlendinu. Klemenz gerir athuganir sínar bæði á mýra- og leirjarðvegi og skiptir túnunum í tvo floklta eftir aldri. Kemst hann meðal annars að þeirri niðurstöðu, að vallarfoxgras og háliðagras séu aðalgrösin í 1—2 ára sáð- sléttum, en með aldrinum fækki vallarfoxgrasi, en vallarsveifgras og háliðagras verði ríkjandi. Hávingul, axhnoðapunt, rýgresi og hvítsmára telur hann „annaðhvort spira mjög illa eða frjósa burt á fyrsta ári“. Hann getur þó ekki hinna upphaflcgu hlutfalla fræblandnanna, og sést því ekki breytingin, sem orðið hefur á hlutföllunum frá einu ári til annars. Árið 1923—1925 heldur Klemenz áfram rannsóknum á gróðurfari túna, en þá frá sjónarmiði fræsetu tegundanna (12). Árið 1930 skrifar Daninn H. Mölholm Hansen ritgerð um gróðurfar á landinu og gerir þar grein fyrir rannsóknum, sem hann gerði einnig með aðferð C. Raunkiær (14). Athuganir hans ná þó hvergi til ræktaðs lands. Sama ár og Mölholm Hansen gerir hinar skipulögðu gróðurrann- sóknir á útjörðinni hefur Sleindór Steindórsson frá Hlöðum (17) sams konar rannsóknir á 7 sáðsléttum í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu, er Bún- aðarfélag íslands hafði látið sá til tveimur til þremur árum áður. Hafði verið sáð ákveðnu magni af grasfræblöndu, er samanstóð af 7 algengum grastegundum í ákveðnum hlutföllum. Komst Steindór að þeirri niður- stöðu, að þá bæri orðið mest á háliðagrasi í reitunum. Minna væri af vallarfoxgrasi og vallarsveifgrasi en búast hefði mátt við. Af hásveif- grasi, túnvingli og skriðlíngresi væri hlutfallslega meira en í blöndunni, enda gætu þessar tegundir slæðzt inn úr gróðurlendinu í kring, en hávingul taldi hann lítið hafa breiðzt lit. Árið 1931 gerir Steindór svipaðar athuganir í Gróðrarstöðinni á Akureyri á 4 sáðreitum á fimmta ári og 3 reitum á öðru ári, sem ýmist eru brotnir úr rækt- uðu eða óræktuðu landi. Kemst hann þar að líkum niðurstöðum og í fyrri athugunum. Háliðagrasið er útbreiddast, en aðrar erlendar teg- undir deyja fljótt út, einkum þar, sem ekki er borinn á tilbúinn áburður. Áskell Löve (13) gerir rannsóknir á útbreiðslu vallarsveifgrasundir- tegunda í ræktuðu landi sunnan- og' norðanlands í mismunandi hæð yfir sjávarmáli. Telur hann þær vallarsveifgrasundirtegundir, sem inn- lendar eru, mun harðgerðari en hinar innfluttu, enda víki hinar síðar- nefndu fljótt úr sáðsléttu fyrir öðrum af íslenzkum uppruna. Við þessar rannsóknir sínar notaði Áskell svipaða talningaraðferð og fyrirrennarar hans, en ummál hringanna hefur liann nokkru stærri. Rannsóknir hans
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur
https://timarit.is/publication/1605

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.