Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1954, Side 29
27
Línurit V. Áhrif
mism. yfirborðs
túna á kal.
The effect of
levelness of fields
on ivinterkilling.
% kalnar sléttur
% winterkilled /ields
Yfirborð túnsins.
Skýrslurnar voru teknar um yfirborð túna og
áhrif þess á kalmyndunina. Var ætlunin að bera sam-
an beðasléttur, þýfð tún, hólótt og' slétt, en þetta reynd-
ist ekki kleift sökum þess, að beðasléttur eru nú lítt
finnanlegar og' því síður verulega þýfð tún.
Línurit V sýnir hlutfallið milli slétts og hólótts
yfirhorðs í kölnum og ókölnum túnum norðan- og
sunnanlands.
Þegar tún voru valin við skýrslutöku þessa í tveim
flokkum, góð og vond, var engin hliðsjón tekin af
yfirborðinu, og g'átu slétt og hólótt tún valizt óhindrað
í hvorn flokk sem var. Línuritið gefur til kynna, að
sléttu túnin séu meira kalin en þau hólóttu, bæði á
Suður- og Norðurlandi, en einkum þó á Suðurlandi.
Einnig sýna athuganir, að kalblettirnir eru að öllu
jöfnu minni í hólóttu túni en á sléttum. Þess skal
getið, að undir hólótt tún eru flokkuð tún, sem stánda
á hólum, og' mjög kúptar sléttur, en undir slétt tún
falla allar jafnar sléttur, þótt á þeim sé nokkur vatns-
halli. Þar, sem hólótt tún voru kalin, var það einkum í
lautum og slökkum, sem skaflar gátu setið í og vatn
staðið í á vorin.
Jarðvegur.
1 línuriti VI eru skráð hlutföll milli kalinna og
ókalinna sléttna, sem eru ræktaðar á mismunandi
jarðvegi. Hefur jarðvegurinn verið flokkaður í 7 gerð-
ir. Var leitazt við að gera þessar jarðvegsákvarðanir
á staðnum með hliðsjón af umhverfinu, og' er því liklegt, að flokkun
þessi sé nokkuð ónákvæm.
Eins og línuritið gefur til kynna, hafa mýrarnar kalið einna mest,
en tún, grædd úr mögrum lyngmóa, næst. Aftur á móti hefur valllendið
staðið sig nokkuð vel og' einnig melur, sandur og grónar klappir.
Þetta er skiljanlegt, þar sem mýrarnar og leirmóarnir hafa mestan
eiginleika til þess að halda vatni. Þegar vatnið frýs, þenst þessi jarð-
vegur meira út og slítur rætur eða verður þéttari og loftlausari, svo
að jurtunum verður hættara við kali þar en annars staðar.
~ s
—
•o £
O o
x a;
Raki.
Raki í sléttum var ákvarðaður í þrem mismunandi stigum:
1. Þurrt land.
2. Land með nægum raka.
3. Rakt land.