Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1954, Qupperneq 31
29
Ræsing.
Þar sem raki túnanna virðist vera mikið
atriði í kalhættu þeirra, sérstaklega í mýrar-
nýræktunum, ætti að vera nolckur fróðleikur
í því að sjá, hvaða áhrif ýmsar ræsingarað-
ferðir hafa haft á kalið síðustu tvö árin. Voru
slcurðagerðir því athugaðar og flokkaðar nið-
ur á fjóra mismunandi vegu, eins og sýnt er í
línuriti VIII. Eru í 1 flokki allar sléttur með
fullkomnu, djúpu skurðkerfi og kílræsingum.
í 2. flokki eru sléttur með fáum, djúpum
skurðum og lokræsi. í 3. flokki eru sléttur
með fáum, djúpum skurðum, og í 4. flokki
eru sléttur með grunnum eða samanföllnum
skurðum.
Hlutföllin i línuriti VIII virðast sýna, að
beztu skurðagerðirnar stuðli að hlutfallslega
mestu kali. Hér ber þó að athuga, að dýpstu
skurðirnir eru grafnir
nýlega og eru í yngstu
sléttunum. Er því um
fleiri atriði að ræða í
því sambandi. Nokkuð
gæti þó verið hæft í
því, að nýjustu og dýpstu
skurðirnir stuðluðu að kali á sinn hátt, þar sem
mikill uppgröftur er skilinn eftir á skurðbörmun-
um og hindrar, að yfirborðsvatnið renni burt, en
það er einmitt yfirborðsvatnið, sem veldur mestu
kali í nýjum túnum á mýrarjarðvegi.
Dýpt að yfirborði jarðvatns.
Erfitt var að ákveða dýptina niður á jarðvatn.
En með því að styðjast við vatnshæð í skurðum,
brunnum og tjörnum, var unnt að safna þar að
lútandi nokkrum tölum. Voru þessar mælingar
flokkaðar niður í þrennt þannig:
1. Þar, sem var dýpra en 3 m að yfirborði
grunnvatns.
2. Þar, sem voru 2—3 m. að grunnvatni.
3. Þar, sem var styttra en 2 m að yfirborðinu.
Eru tölur þessar birtar í línuriti IX.
Sýna hlutföllin í línuritinu, að helzt ber á kali
þar, sem grunnvatnið liggur ofarlega og þá eink-
Línurit IX. Áhrif af
legu jarðvatnsyfir-
borðs á kal.
The effect of
groundwater level
on winterkilling.
% kalnar slettur
% winterkilled fields
Línurit VIII. Áhrif mism.
ræsingar á kal.
The effect of draining
methods on winterkilling.
% kalnar sléttur
% winterkilled fields
75