Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1954, Page 32
30
Línurit X. Áhrif mism. tegunda
tilbúins áburðar á kal.
Thc effect of diff. fertilizers on
winterkilling.
% kalnar sléttur
% winterkilled fields
um norðanlands. Er það hliðstætt
þeirri niðurstöðu, sem fékkst við at-
hugun á rakanum, þótt ekki sé það
eins augljóst, enda kemur yfirborðs-
vatnið þar einnig til greina.
Suðurland S- lceland
W M £
____ Hér að framan hefur verið nokkuð
Norteiand N-tcdani rætt uin áhrif jarðvegsins og legu tún-
anna á mismunandi kalhættu og sýnd-
ar niðurstöður þær, sem skýrslutök-
urnar gáfu. Skal nú athugaður sá lið-
ur rannsóknanna, sem að meðferð tún-
anna lýtur. Eru niðurstöður þær, sem
fengizt hafa við þessar skýrslutökur,
öllu óáreiðanlegri en hinar, þar sem
þær eru eingöngu byggðar á sögusögn
annarra. Það er þó ekki svo að skilja,
að bændur gæfu vísvitandi rangar upp-
lýsingar um þau atriði, er helzt var
spurt um, heldur voru atriðin oft þess
eðlis, að erfitt var að gefa við þeim
ákveðin svör. Það þykir þó rétt að
skýra frá þeim árangri, er náðist.
Áburður.
Það virðist eðlilegt að álykta af
því, sem vitað er um mismunandi
frostþol jurta, að áburður geti valdið
nokkrum breytingum á eðlisástandi
þeirra. Niðurstöður af skýrslum þeim,
sem teknar voru af áhrifum tilbúins
áburðar á tún og gefnar eru í línuriti
X, sýna þetta einnig að nokkru leyti.
Af hlutföllum línuritsins má ráða,
að sé borið á köfnunarefni eitt saman,
hafi það heldur veikjandi áhrif á jurt-
irnar, mun betra sé að bera blöndu af
áburði og þó einna helzt fosfór og köfn-
eingöngu. Þar, sem enginn útlendur áburð-
S s.
o +
Í4 <
£ k
+ +
M <
unarefni saman eða fósfór
ur var borinn á, var meiri hluti sléttnanna kalinn. Þetta voru aðallega
þær sléttur, sem fengu eingöngu húsdýraáburð, og væri því hægt að
álykta, að húsdýraáburðurinn yki kalhættuna, samanber línurit XI, sein
sýnir hlutföll kalinna og' ókalinna sléttna, er borinn hefur verið á hús-
dýraáburður. Þetta er þó ekki alls kostar rétt ályktun, þar sem sléttur,