Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1954, Side 35

Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1954, Side 35
33 Línurit XV. Áhrif mism. beitardýra á kal. The effect of grazinganimats on winterkilling. % kalnar sléttur % winterkilled fields Beit. Rannsóknir á áhrifum beitar á kal- myndun í túnum var þeim vandkvæð- um bundin, að þeir, sem gáfu upplýs- ingar á staðnum, voru ekki alltaf kunnugir beitarháttum fyrri ára, enda örðugt að gefa fullkomnar upplýsing- ar, þar sem margar sléttur voru ekki beittar af ásettu ráði, en voru þó bitn- ar af skepnum um óákveðinn tíma. Má því búast við því, að tölur um hrossa- og fjárbeit séu ekki áreiðan- legar. Skýrsla þessi var í tveim greinum. Var beitartími skráður annars vegar, en hins vegar skráð, hvaða skepnum beitt var. Skýrir línurit XIV áhrif beitartímans. Séu áhrif beitartíma á kalmyndun nokkrar, er það helzt vetrar- og vor- beit, sem virðist að einhverju leyti geta stuðlað að auknu kali, eflaust vegna þess, að þá er gengið of nærri grasinu og jurtirnar í grænu og rök- ustu blettununi beinlínis rifnar upp og svörðurinn, sem er tærður af hol- klaka, traðkaður sundur. Þess hátt- ar skemmdir munu einkum vera tíðar í nýræktinni, þar sem svörðurinn er enn mjög laus og óþéttur. 2, Z U2 3 - 3-i- - - « H JS zúíízözo-ös 1 línuriti XV eru sýndar tölur um áhrif dýrategundanna, sem bitu sléttuna. Virðist hrossabeitin vera einna verst, en hrossum er beitt á sléttur haust, vetur og vor. Tölur, er styðja þetta, eru þó of fáar, svo að ekki er vert að leggja of miltið upp úr þeim. Beit nautpenings virðist geta haft nokkur áhrif á kalmyndun, einkum ef haldið er áfram að beita öðrum skepnum á túnið um veturinn. Er það mjög algengt, að nautpeningi sé beitt á sléttur eftir slátt, jafnvel þótt seint hafi verið slegið, og getur það valdið því, að grösin ná ekki að safna þeirri forða- næringu sem skyldi. Gróðurfar miskalinna sléttna. Til þess að rannsaka, hvort ýmsar grastegundir þyldu ekki misjafn- lega vel frosthörkuna og hvernig gróðurlendi hinna kölnu og ókölnu 5

x

Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur
https://timarit.is/publication/1605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.