Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1954, Blaðsíða 39
37
Línurit XVII. Þáttur mism.
fræblönduárganga í kali
sléttna.
Winterkilling in fields of
diff. age.
% kalnar sléttur
% winterkilled fields
75 .
Ofangreindar rannsóknir virðast að
sumu leyti henda i þá átt. Sé þetta rétt
ályktun, er fróðlegt að athuga, hvort
blöndur og tegundir eins árs hafi reynzt
verr en annarra ára.
Til þess að kleift væri að gera sér
grein fyrir þessu atriði, var safnað gögn-
um um aldur þeirra séttna, sem sáð
hafði verið til, og eru hlutföll kal-
skemmda í ýmsum árgöngum sléttna
af Sambandsfræi gefnar í línuriti XVII.
Sést af línuritinu, að kal hefur eink-
um orðið í yngstu sléttunum og þá frem-
ur sunnan- en norðanlands. Kal er hins
vegar lítið í sléttum frá 1945 og eldri.
Af öðrum skýrslum sést einnig, að af
öllum kölnum sléttum hafa um 60%
verið frá tveggja til fjögui’ra ára gaml-
ar, en þær ókölnu frá þeim tíma aðeins
milli 35 og 45% af heildartölunni. Hvað
gróðurfar snertir getur þessi mismun-
ur aðallega orsakazt af þrennu:
1. Að á síðustu árum hafa verið not-
aðar í fræblöndur grastegundir,
sem ekki eru eins harðgerðar og
þær, sem notaðar voru á fyrri ár-
um.
2. Að erlendir grasstofnar siðustu ára
séu lingerðari en eldi'i stofnar.
3. Að eldri sléttur séu orðnar það mik-
ið blandaðar íslenzkum, harðgerð-
um gróðri, að þær kali ekki fremur
en græðisléttur.
1. Fræblöndur.
Á undanförnum árum liefur Samband ísl. samvinnufélaga séð mest-
megnis um kaup og dreifingu á grasfræi hér á landi. Við þessar rann-
sóknir kom einnig i Ijós, að yfir 90% af öllum skoðuðum sáðsléttum
voru af Sambandsfræi.
Til þess að komast að raun um það, hvort aukið kal yngstu sléttn-
anna hafi orsakazt af notkun fræblandna með lingerðari tegundum,
var leitað til Sambandsins, sem góðfxislega lét í té upplýsingar um allar
tegundir og hlutföll grasfræs fræblandna sinna frá 1930—1951. Eru
tegundir blandnanna birtar í töflu V.