Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1954, Blaðsíða 52
50
A. Vinnuaðferð og ferðalög.
Við athuganir á gróðurfari túna var farin nokkuð önnur leið en
notuð hefur verið í fyrri tilraunum. í stað þess að nota hringaðferð
C. Raunkiærs, sem gefur bæði upplj'singar um, hvað ein tegund þekur
mikið og hve oft hún kemur fyrir í túnum, var notuð algeng, en nokkuð
einfaldari aðferð. Er hún þess eðlis, að lína með 25 hnútum er lögð á
grassvörðinn og þær plöntur taldar saman, sem liggja undir hnútunum.
Sé þetta endurtekið fjórum sinnum á mismunandi stöðum, fást nokk-
urn veginn ákveðin hlutföll milli fjölda og útbreiðslu tegundanna í
sléttunni.
Aðferð þessi var notuð á flestum þeim stöðum, er kalskemmdir voru
skoðaðar á, en það var dagana frá 19. júlí til loka ágústmánaðar. At-
huganir voru gerðar á Suðurlandsundirlendi frá Reykjavík að Kálfafelli,
í Gullbringu- og Kjósarsýslu, Borgarfirði og Snæfellsnesi og norðanlands
frá Hrútafirði austur á Sléttu og Grímsstöðum á Fjöllum. Tala mældra
sléttna var alls 288 á 130 bæjum, en margar aðrar voru skoðaðar. Skipt-
ast þær þannig niður eftir byggðarlögum:
Suðurland........................ 185 sléttur
Norðurland ...................... 103 —
Alls 288 sléttur
Æskilegt hefði verið að fá heildaryfirlit af öllu landinu, en tími
entist naumast til þess, enda þótti réttara að gera heldur nákvæmari
rannsóknir á umræddum stöðum og láta aðra landshluta bíða seinni
tíma.
B. Rannsóknarefni.
Gróðurrannsóknir voru gerðar á 158 kalsléttum. Af þeirn voru 102
sunnanlands og 56 norðanlands, en til samanburðar voru einnig athug-
aðar 133 ókalnar sléttur á sömu bæjum eða tæplega ein ókalin á móti
einni kalinni sléttu. f kafla I um kal er skýrt frá þeim lið rannsókn-
anna, sem laut beinlínis að kalinu sjálfu og frostþoli hinna mismun-
andi jurtategunda, og skal vitnað til hans um þá hlið málsins, en nú
reynt að skýra frá þeim hlutfallsbreytingum, sem orðið hafa á útbreiðslu
einstakra fóðurjurta í hinu ræktaða landi frá ári til árs.
Gróðurfar mismunandi sléttuárganga.
Athugað var gróðurfar 184 sáðsléttna, sem flokkuðust þannig eftir
landshlutum og kali;