Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1954, Page 54
52
Línurit XVIII. Vallarfoxgras. % í mism. árgöngum sléttna.
% of Phleum pratense in fields of diff. age.
1951 50 49 48 47 46 45 44 43 42 41 40 39 38 37 36 35 34 33 32 31 30
Vallarsveifgras.
Sé athugað línuritið yfir vallarsveifgras, sést, að þessi tegund hefur
að jafnaði fundizt í sléttum frá öllum árum, þótt nokkur breytileiki
sé á hlutfalli hennar í gróðurlendinu. Að nokkru leyti stendur sá breyti-
leiki í hlutfalli við það magn, sem notað hefur verið af þessu grasi í
fræblöndur frá ári til árs. Er það einkum eftirtektarvert með yngstu
slétturnar, en þegar um eldri sléttur er að ræða, hefur jafnvægi aftur
á móti raskazt nokkuð. Þá fer að gæta mikið hinna innlendu stofna
og slétturnar að verða líkari gömlu græðisléttunum, en í þeim er vallar-
sveifgrasið milli 10 og 20%. Ekki er auðvelt að draga ályktun um þol
hinna erlendu stofna vallarsveifgrasa af þessum tölum, þar sem ekki
er gerður greinarmunur á erlendum og' íslenzkum stofnum í línurit-
inu. Þó virðast athuganir benda til þess, að á 8. og 9. ári beri orðið
lítið á erlendu stofnunum, en þá hafi íslenzkir stofnar komið í þeirra
stað. Vallarsveifgras virðist svipað að magni í hinum kölnu sléttum.