Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1954, Side 61
59
fræmagn þess var í blöndunni og þá fremur norðanlands en sunnan.
Af þessu má draga þá ályktun, að það háliðagras, sem hingað hefur
flutzt, sé mjög harðgert og breiðist jafnvel út með árunum. Er það
eftirtektarvert, að þessi útbreiðsla er jafnvel meiri norðanlands en
sunnan, og er það á kostnað annarra jurta, sem eiga þar örðugra upp-
dráttar.
Snarr ótarp untur.
Þessi tegund hefur aldrei verið notuð í sáðblöndur hér á landi, og
liggja þar margar orsakir til. Hefur hvorki verið fáanlegt fræ af henni
né gæði hennar metin það mikils, að nokkur hafi sótzt eftir að fá
hana til ræktunar. Þó er snarrótin víðast hvar í túnum og sléttum og
þá vafalaust hvarvetna um alíslenzka stofna að ræða. I græðisléttum
nemur magn snarrótarinnar milli 10 og 25% af gróðrinum, og er meira
af henni norðanlands en sunnan. Þar sem hér er um að ræða alíslenzkt
fóðurgras, sem þroskar fræ í flestum árum, er ekkiert furðulegt, þó
að það breiðist út í nærliggjandi sáðsléttur, enda virðist það eiga sér
stað, og hefst sú innrás þegar á fyrstu árum sléttunnar, eins og línuritið
Línurit XXVI. Snarrótarpuntur. % í mism. árgöngum sléttna.
% of Deschampsia caespitosa in fields of diff. age.
Kalnar sléttur.
Winterkilled fields.